Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1943, Page 13

Andvari - 01.01.1943, Page 13
andvari Einar Hjörlcifsson Ivvaran 9 hversu rikt raunsæisstefnan sem skáldslcaparstefna var honum í blóð borin. Öllu miskunnarlausari realistisk saga hefur naum- ast verið samin af íslenzkum manni. II. Eftir nær 5 ára dvöl í Kaupmannahöfn fór Einar Hjörleifs- son, sumarið 1885, lil Vesturheims. Hann mun nú hafa verið orðinn því alveg afhuga að taka próf við háskólann, en hins Vegar mun-hann ekki hafa haft efni á þvi, né aðrar ástæður, að dveljast lengur við bókmenntanám í háskólabænum við Eyrarsund. Hann varð að leita sér atvinnu til þess að geta lifað. Hann var þá kvæntur fyrri konu sinni, Maren Mathilde, danskri bonu. Var sambúð þeirra stutt, því að hún andaðist árið 1887. Höfðu þau eignazt tvo drengi, er báðir dóu á fyrsta ári. Móður S1na hafði Einar misst 1884. Henni mun hann liafa unnað mjög. hetta hafa því verið erfið sorgarár og reynslutími fyrir hinn onga, viðkvæma mann, sem nú var að hefja lífsstarf sitt. — En litlu síðar kynntist hann ungri stúlku í Winnipeg, Gíslínu Gísladóttur frá Reykjakoti í Mosfellssveit. Giftust þau 22. sept. 1888. l>ag hefur óefað verið hin mesta lífshamingja Einars, að hann fékk þessarar konu. Vafalaust má telja, að það hafi leitt ‘h sambúð hans við þessa ágætu konu, hversu margar hinar göfugustu sálir í skáldsö gum hans eru ltonur. Astæður til jiess, að Einar fór ekki heim til íslands, heldur 'eslur um haf, hafa sjálfsagt verið ýmsar. Fjöldi fólks af ‘ orourlöndum leitaði um þessar mundir til hins nýja heims, Sei staklega frá íslandi og Noregi, þeim löndunum, er ekki höfðu 11 't stjórnmálalegt frelsi og voru fátæk meðal annars af langri ei lendri óstjórn og kúgun. Þótt nokkuð væri farið að rofa til í )e’ni efnum hér á landi, voru jió Ameríkuferðir aldrei tíðari ei’ a pessum árum, svo sem kunnugt er. Það var ekki álitlegt 11 Eoma heim til íslands próflaus eftir margra ára dvöl er- endis við háskólanám. Einar hafði dæmi Gests Pálssonar, vinar sins og að ýmsu leyti — skoðanabróður, fyrir sér. Og margir ngætir menn hér heima réðu honum eindregið frá því að hverfa heini að svo stöddu.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.