Andvari - 01.01.1943, Síða 35
AN'DVARI
Vér viljum skilnað —
31
III.
Það er tæplega liægt að sakast um það við höfunda sam-
bandslaganna, þótt þeir væru ekki svo forsjálir að setja i
þau ákvæði um það, hvernig skyldi fara að, ef löndin, annað-
hvort eða bæði, yrðu hernumin um skemmri eða lengri tíma.
Hernám Danmerkur i apríl 1940 skapaði vandamál, sem ís-
lendingar urðu að ráða fram úr skjótt og hiklaust. Enginn
hefur horið brigður á, að þar hafi verið valin hin rétta leið.
Sambandslögin urðu að verulegu leyti óframkvæmanleg
vegna utanaðkomandi atburða, sem hvorug sambandsþjóðin
gat við ráðið eða átti sök á. Það var auðsætt, að Danir gátu
ekki lengur farið með utanríkismál íslendinga og að kon-
ungur gat ekki farið með hið æðsta vald í málefnum Islands.
^ mis önnur atriði samningsins, sem minna máli skiptu, urðu
°g óframkvæmanleg í bili.
Islendingum var nauðsyn að taka utanríkismálin og hið
æðsta vald i sínar hendur, þegar svo stóð á. Samkvæmt viður-
kenndum neyðarrétti var íslendingum heimilt að taka í sínar
hendur þær framkvæmdir, sem Danir áttu að sjá um sam-
kvæuit samningnum, en gátu ekki vegna hernámsins, að svo
iniklu lejdi sem um var að ræða ómótmælanlega nauðsyn
íslenzku þjóðarinnar. En hin breyttu atvik þurftu ekki að
leiða til þess, að sambandslögin að öðru leyti féllu úr gildi,
til þess bar enga nauðsyn. Islendingar höfðu rétt til að taka
að sér framkvæmd allra þeirra mála, sem nauðsynlegt var
fyrir líf og tilveru þjóðarinnar. Af þessu leiddi, að ýmis
ákvæði sambandslaganna voru óframkvæmanleg, meðan þau
atvik héldust, sem sköpuðu neyðarástandið, en eklci að sam-
bandslögin væru þar með endanlega fallin úr gildi, eða að
ekki væri hægt að framkvæma nein ákvæði þeirra, enda hafa
ymis þeirra verið i gildi, t. d. ákvæðin um jafnrétti islenzkra
°g danskra þegna í báðum löndunum.
Akvarðanir Alþingis 1940 u.m, að Islendingar tækju sjálfir
a® s®r nieðferð utanríkismálanna og hið æðsta vald í málurn
Slnum, voru því sjálfsagðar og óvefengjanlegar að alþjóðalög-
l,ni, þær voru óhjákvæmileg afleiðing neyðarástandsins, „en
3