Andvari - 01.01.1943, Síða 49
ANDVAIU
Vér viljum skilnað —
45
Af nýlegum blaðaummælum og m. a. af skýrslum Jóns
Krabbe, fulltrúa íslands í Kaupmannahöfn, má sjá, að þessi
afstaða er óbreytt og að Danir hafa enga löngun til að spyrna
;i móti sjálfstæðiskröfum Islands eftir stríðið, þótt þeir hins
Vegar telji óviðeigandi og beinlínis móðgandi, að gengið só
endanlega frá formleguin skilnaði án frjálsra viðræðna og
sainkomúlags og á meðan bæði löndin eru hernumin.
Buhl, fyrr verandi forsætisráðherra Dana, hefur i viðtali við
Jón Krabbe lagt áherzlu á, að Danir hafi sýnt svo ríkan skiln-
lng á málefnum íslendinga, að þeir hlytu að álíta sig örugga
llln> að sjálfstæðisóskir þeirra yrðu uppfylltar undireins og
sambandsþjóðirnar fengju tækifæri t.il að eiga viðræður sam-
an> og Jón Krabbe, einn hinna þrautreyndustu fulltrúa ís-
jands í nreira en aldarfjórðung, hefur í bréfi til ríkisstjórnar-
jnnar komizt svo að orði, að það væri sannfæring sín, „að
ausn fáist á málum þessurn, sem fullnægir algerlega öllum
°slcum Alþingis 1941, þegar hægt verður að hefja frjálsar
viðræður.“ Og enn fremur segir hann: „Ef frjálsar viðræður
'ei'®a mögulegar, áður en timabilið er útrunnið, held ég, að
astheldni við lagaatriði verði ekki þrándur í götu lausnar,
sem allur þorri islenzku þjóðarinnar kann að óska.“
bannig er fullvíst, að Danir hafa engan vilja til þess að
Undra stofnun lýðveldis á íslandi eftir stríðið, enda hafa
1 eii’ 0g engan möguleika til þess. Að þessu leyti er því engin
JÍ laeBa að ln’ða, þar til hægt er að ráða málinu lil lykta með
1Jalsu samkomulagi.
Hins
vegar er það nokkurn veginn vist, að einhliða sam-
l O '~/l Jjck\j uwnxvui ii t iolj cl
dsslit nú af hálfu Islands mundu vekja sára gremju og
,Vl c 1 Islands garð í Danmörku og jafnvel víðar. Jón Krabbe
mst svo að orði í skýrslu til ríkisstjórnarinnar: „Aftur á
jJoti er Það álit mitt, að það mundi vekja mótþróa og óvild í
^anmörku gagnvart íslenzku þjóðinni um mjög langnn tima,
,. AlÞin§i ákveður einhliða sambúðarslit án frjálsra við-
na. Án tillits til þess, sem hægt væri að bera fram af
^garökum af íslands hálfu, mundi slík einhliða ákvörðun
111 sambandsslit og það, sem þar af leiddi í sambandi við