Andvari - 01.01.1943, Síða 60
56
Jörundur Brynjólfsson
ANDVAIU
stjórnin og Framsóknarflokkurinn telur það alveg sjálfsagt mál,
að sambandslagasamningnum verði sagt upp eins fljótt og lög
standa til, og þar af leiðandi er ríkisstjórnin og flokkurinn
reiðubúin til að vinna að því. Ríkisstjórnin og Framsóknar-
flokkurinn lítur svo á, að sambandslagasamningnum eigi að
segja upp, meðal annars til þess, að vér tökum utanríkis-
málin að fullu í vorar hendur, og þar af leiðandi er ríkis-
stjórnin og Framsóknarflokkurinn reiðubúin til þess að íhuga
eða láta íhuga sem fyrst, á hvern hátt utanríkismálum vor-
um verði komið fyrir bæði sem haganlegast og tryggilegast,
enda telur ríkisstjórnin sér skylt að gefa því máli alveg sér-
stakan gaum.“
Ekki varð annars vart en að þjóðin væri samdóma yfirlýs-
Ingum flokkanna í málinu og mjög ánægð yfir svörunum. Á
þessu sama þingi var borin fram af hálfu Alþýðuflokksins
tillaga um að skipa utanríkismálanefnd. Þessi tillaga var
samþykkt, og síðan hefur starfað utanríkismálanefnd.
Árið 1937 er á Alþingi flutt þingsályktunartillaga af nokkr-
um þingmönnum úr Framsóknarflokknum og Alþýðuflokkn-
um, en við hana kom fram breytingartillaga flutt af nokkrum
mönnum úr Sjálfstæðisflokknum. Þingsályktunin, sem sani-
þykkt var í sameinuðu Aljjingi, hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela rikisstjórninni að undirbúa nú
þegar, í samráði við utanríkismálanefnd, j)á tilhögun á með-
ferð utanríkismála, innan lands og utan, sem bezt kann að
henta, er íslendingar neyta uppsagnarákvæðis sambandslag-
anna og taka alla meðferð málefna sinna í eigin hendur. Til-
lögur um mál þessi séu síðan lagðar fyrir Alþingi. Allur kostn-
aður við undirbúning málsins greiðist úr ríkissjóði."
Eins og ályktun þessi ber með sér, er hún í beinu framhaldi
af yfirlýsingum þeim, er flokkarnir á Alþingi gáfu 1928.
(Þessu var einnig Bændaflokkurinn samþykkur, en hann var
ekki til 1928.)
Af hálfu allra flokkanna komu fram við umræðurnar um
málið ótvíræðar yfirlýsingar um, að sjálfsagt væri, að íslend-
ingar segðu sambandslagasamningnum upp og tækju að fullu