Andvari - 01.01.1943, Page 68
64
Sjálfstæðismálið
ANDVARI
í framhaldi af ályktunum flokksþings Framsóknarmanna
1941 og í samræmi við ályktanir Alþingis frá 17. maí sama ár
um sjálfstæðismálið og stjórnskipulag íslands telur fundur-
inn, að stefna beri að þvi, að fullur skilnaður íslands og Dan-
merkur verði gerður á árinu 1944 og lýðveldi jafnframt sett
hér á stofn með stjórnarskrárbreytingu, enda fari þjóðarat-
kvæðagreiðsla um málið fram svo tímanlega, að unnt sé að
kjósa forseta lýðveldisins 17. júní 1944.“
Ég hygg, að það dyljist engum, að ályktun þessi beri það
með sér, að Framsóknarflokkurinn vill nú sem fyrr fá alla
flokka þingsins til samstarfs um að leiða sjálfstæðismálið lil
lykta.
Góðir íslendingar!
Innan skamms verður fullnaðarákvörðun gerð á Alþingi í
sjálfstæðismálinu, ef til vill verður hún gerð á mjög nálægiun
tíma. Um þá ákvörðun þingsins ber yður, islenzkir kjósendur,
að greiða atkvæði. Ekkert má hindra yður frá þátttöku í þeirri
atkvæðagreiðslu, nema alveg óviðráðanleg forföll. Minnizt
þess, að íslenzka þjóðin er nú eftir margra alda baráttu að
endurheimta frelsi sitt. Launið forsjóninni þá sæmd, sem yður
fellur í skaut, að vera bornir til þess að mega taka þátt í þeim
sigri. Fylkið yður með málinu, svo að sú atkvæðagreiðsla
verði kynborinni þjóð samboðin. Verði þessi atkvæðagreiðsla
þá einnig órækt vitni þess, að þjóðin þekki köllun sína. Minn-
izt við kjörborðið liinna mörgu, vösku sona þjóðarinnar, sem
um undanfarnar aldaraðir hafa háð hina hörðustu baráttu
fyrir frelsi hennar.
Engin tillit, engar annarlegar tilfinningar mega verða þess
valdandi, að nokkur kjósandi greiði þannig atkvæði, að ís-
land hafi ekki sæmd af því, hvernig atkvæði hans féll. Þér, ís-
lenzkir kjósendur, á herðum yðar hvílir mikil ábyrgð. Sannið
það með atkvæði yðar, að þér séuð rétt kjörinn til þess að
lifa þessa úrslitastund í ævi þjóðarinnar.
„Hver þjóð, sem í gæl'u og gengi vill búa,
á guð sinn og land sitt skal trúa.“