Andvari - 01.01.1943, Qupperneq 72
68
Gísli Sveinsson
ANDVAHI
ugt er á þá leið, að uppsögn (eftir 1943) fær ekki gildi, fyrr en
að síðustu hefur farið fram um hana þjóðaratkvæði ineð þeim
hætti, að þrír fjórðungar allra kjósenda komi til atkvæöa-
greiðslu og greiði þá þrír fjórðungar af þeim atkvæði með upp-
sögn. Fyrir þessar sakir uggðu ýmsir, er fram í sótti, um úr-
slitin á sínum tíma, ef slælega yrði að þessu gengið og þjóðin
héldi eigi málinu og sjálfri sér vakandi. Og því verður eigi
neitað, að íslendingar voru a. m. k. að því komnir að sofna á
verðinum.
Um þær mundir, er sjálfstæðismálið var að komast i höfn
sambandslaganna, og upp úr því, voru sambandsdeilurnar
lagðar á hilluna og íslenzkir stjórnmálaflokkar gáfu sig að
öðrum verkefnum. Grundvallaðist þá í aðalatriðum flokka-
skipting sú um innanlandsmál, er síðan hefur þróazt. Svo
virðist sem þá hafi jafnframt, sumpart vísvitandi og sum-
part óafvitandi, hugir manna horfið frá hinu eiginlega sjálf-
stæðismáli, eins og öllu væri óhætt og nú lægi á öðru meira.
Rök mátti færa bæði með og móti þessum málahvörfum, en
niðurstaðan varð hreint sinnuleysi um hríð um „mál mál-
anna“, sein eigi aðeins sljóvgaði fólkið og einnig þá sjálfa,
sem við stjórnmálin fengust, heldur varð afleiðingin að öðru
leyti hin versta, því að á því tímabili ólst upp — eins og nú
gefur raun sorglegt vitni — ný kynslóð, sem yfirleitt hvorki
þekkti neitt til sjálfstæðismálsins (nema þá lítillega af lausri
afspurn), né hafði neinn hug á að kynna sér það eða öðlast
nokkurn áhuga á undirbúningi hinnar réttu fullnaðarlausnai'
þess, sem eigi gat orðið önnur, né mátti verða, en fullkominn
stjórnmálaskilnaður við Danmörku.
Ekki er að efa, að í öllum stjórnmálaflokkum hér hafa
ávallt verið til áhugamenn í þessu efni eins og öðrum, þótt
ekki hafi allténd mikið á því borið, — og líka því miður
áhugalausir menn í sjálfstæðismáli þjóðarinnar, sem stund-
urn hefur leitt þá út í ónot i hinna garð. Hér á landi hafa
flokkar því síðan 1918 .lítt getað ásakað hver annan í þessu
tilliti. En á síðkastið hefur þetta á ýmsa lund mjög breytzt
til batnaðar.