Andvari - 01.01.1943, Blaðsíða 79
andvam
SkilnaSur íslands og Danmcrkur
75
þess, að yfirlýsing, er virðist alveg ótvíræð og oftar en einu
sinni hefur verið gerð heyrinkunnug, fékkst frá þessu stór-
veldi 14. okt. 1942, um viðurkenning á hinni fyrirhuguðu
stjórnarformsbreytingu hins íslenzka ríkis, eftir liðið ár 1943,
þ. e. að ísland yrði gert lýðveldi 1944. Er þá einnig liðinn sá
tími, sem „uppsögn“ samkv. sambandsl. var miðuð við, og
hafa ýmsir hér á landi (og væntanlega í Danmörku) talið það
viðfelldnast, að fullnaðarúrskurður biði þeirrar stundar. Þótt
þessi síðastnefnda ástæða sé hégóminn einber og taki ekki
tali, má þó vera, ef vel gengur, að bið þessi komi eigi að sök,
°g ættu þessir menn þá að vera ánægðir með niðurstöðuna
°g gera nú eigi frekari tilraunir til þess að trufla þau nauð-
synlegu vinnubrögð í málinu, sem nú eru eftir.
t milliþinganefndinni varð það að samkomulagi, með tilliti
«1 þess, sem á undan var gengið, að leggja til (eins og nál.
greinir), að lýðveldisstjórnarskráin tæki gildi 1944, hinn 17.
jánínwnaðar. Ætti ekki að þurfa að skýra fyrir íslendingum,
sá dagur — fæðingardagur Jóns Sigurðssonar — er til
aJlrar viðhafnar vel fallinn. — Sökum þeirra vafninga, sem
siðan virðast vera upp komnir í einni af þeim flokkaálmum,
er að málinu áttu að standa (þótt það hik verði vonandi ekki
langætt), telur sá, er þetta ritar, það óhjákvæmilegt í þessu
sambandi og vegna aðstöðu þeirrar, er hann hefur í stjórnar-
skrárnefndinni, að iýsa yfir því, að eigi varð þess að siðustu
á neinn hátt vart, að nokkur nefndarmaður hefði sérstöðu
eða vildi áskilja sér hana, að því er þessa ákvörðun snerti,
um gildistökutíma hinnar væntanlegu stjórnarskrár. Allir
virtust samþykkjast það orðalaust. Bér og að sálfsögðu að gera
ráð fyrir, að stjórnmálaflokkarnir yfirleitt standi með full-
trúum sínum og hviki ekki frá hinum íslenzka málstað. —
Sjálfstæðisflokkurinn hefur, eins og fyrr, algerlega tekið af
skarið um það á nýlega afstöðnum landsfundi sínum (17.—
-0- júní s. 1.). Bera því vitni eigi aðeins hinar þróttmiklu ræð-
Ur, er ýmsir fundarmenn fluttu við ágætan róm, svo sem for-
niaður flokksins, Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson alþm.,
Sigurður Eggerz o. fl. (birtar að miklu leyti í Morgunblaðinu