Andvari - 01.01.1943, Qupperneq 83
andvaiu
Stofnun lýðveldis á íslandi
79
varðar. Með ákvörðunum Alþingis 10. apríl 1940, sein allir þing-
menn stóðu að, tókum vér æðsta valdið inn í landið og höfum
síðan á grundvelli laganna gert þær breytingar á stjórnarskrá
vorri, að hægt er nú að afnema konungdæmið og stofna hér
lýðveldi á fullkomlega löglegan hátt, með því að Alþingi sam-
þvkki slika stjórnarskrárbreytingu einu sinni og meiri hluti
kjósenda gjaldi síðan jákvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Sósialistaflokkurinn hefur frá upphafi verið eindregið fylgj-
andi þvi, að íslenzka þjóðin notaði rétt sinn til þess að skilja
að fullu við Dani og stofna hér lýðveldi 1943.
I stefnuskrá flokksins, er samþykkt var á stofnþingi hans
haustið 1938, standa þessi orð:
..Flokkurinn vinnur að sjálfstæði og öryggi íslenzku þjóðar-
mnar, með frelsisbaráttu sinni innanlands og með samstarfi
sínu við bræðraflokkana. Flokkurinn skoðar sig sem arftaka
þeirra, sem á undanförnum öldum hafa háð baráttu fyrir frelsi
■slenzku þjóðarinnar, fyrir því að leysa hana undan erlendri
°S innlendri áþján, þar sem vitanlegt er, að fullt frelsi ís-
lenzku þjóðarinnar er þá fyrst fengið, þegar þjóðin sjálf ræð-
Ul' sameiginlega auðlindum landsins og atvinnutækjum, þegar
enginn einstaklingur er lengur kúgaður á einn eða annan hátt
°S menningin jafnt sem auðæfin er orðin almenningseign.
j lokkurinn vill því vernda það sjálfstæði, sem íslenzka þjóðin
þ°lur öðlazt, fullkomna það með myndun sjálfstæðs, fullvalda
'slenzks lýðveldis og tryggja það varanlega með fullum sigri
sósía]ismans.“
Og í starfsskrá flokksins, sem samþykkt var um leið,
stendur:
’.Flokkurinn vill, að íslendingar verði stjórnskipulega full-
íomlega sjálfstæð þjóð, skilji að fullu við Dani 1943, taki
s.lallir i hendur öll sín mál og stofni lýðveldi á íslandi.“
. Sósíalistaflokkurinn var, er hann markaði þessa stefnu sína,
1 fullkoninu samræmi við þá hreyfingu, er hann var vaxinn
j’l'P at, hina róttæku verldýðshreyfingu íslands. Sósíalista-
0 dvurinn varð til við samruna Kommúnistaflokksins og
'mstri anns Alþýðuflokksins, en báðir þessir flokkar höfðu
6