Andvari - 01.01.1943, Blaðsíða 90
86
Einar Olgeirsson
ANDVAHI
Alþýða íslands og Danmerkur má gjarnan taka sér þessa
afstöðu norsku og sænsku alþýðunnar 1905 til fyrirmyndar.
Hiklaust ber alþýðu íslands að fylgja þvi fram að gera land
sitt að lýðveldi. Og vilji verklýðshreyfing Danmerkur standa
jafn vel á grundvelli þjóðfrelsis og sósíalisma og verklýðs-
hreyfing Svíþjóðar stóð 1905, þá ber henni að standa einhuga
með því, sem íslendingar gera til þess að afla sér þjóðfrelsis
nú. Þau fyrirbæri, sem benda á aðra al'stöðu hjá mönnum, sem
staðið hafa í samandi við íslenzka verklýðshreyfingu, eru tákn
um spillingu, sem þar hefur komizt inn, um hnignun ákveð-
ins „foringja“-hóps, þegar borið er saman við afstöðu þá, er
verklýðshreyfing Norðurlanda tók 1905. Og reynslan mun sýna,
að sú spilling hefur ekki náð til fjöldans sjálfs, heldur tak-
markast við lítinn foringjahóp.
Sú ákvörðun íslenzku þjóðarinnar og Alþingis íslendinga,
að stol'na hér lýðveldi í síðasta lagi 17. júní 1944, væri í fullu
samræmi við norrænar sambúðarvenjur og gæti á engan hátt
haft spillandi áhrif á framtíðarsambúð vora við frelsiselskandi
þjóðir Norðurlanda. Aðeins einstaka afturhalds- og yfirdrottn-
unarseggir meðal Dana og máske Svía kynnu að fyrtast, og
íjandskapur slíkra manriá yrði hvorki sjálfstæði lands vors
né vinsamlegri samvinnu við Norðurlönd að fótakefli. Norska
þjóðin mun vafalaust standa með oss sem heild.
En þeir íslenzkir stjórnmálamenn, sem um fram allt vilja
fá að reyna samningslipurð danskra valdhafa um þjóðfrelsis-
mál að stríði loknu, ættu að bjóða sig fram sem sjálfboðaliða,
þegar færeyska þjóðin fer að semja um algeran skilnað við
Dani og aðstoða þá til þess að fá það þjóðfrelsi Færeyingum
til handa með samningum, sem Islendingar munu taka sér í
krafti ótvíræðs réttar síns til þjóðfrelsis.
Það ætti ekki að vera nein ástæða til þess að óttast, að
samvinna milli Danmerkur og íslands um þau mál, sem þessi
lönd þurfa að hafa samstarf um sem frjáls ríki, yrði að neinu
leyti slæm, þótt íslendingar stofni ekki sjálfstæðismálúm sín-
um í neina hættu með drætti á því að stofnsetja hér lýðveldi.