Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1961, Blaðsíða 14

Fálkinn - 31.05.1961, Blaðsíða 14
Enginn gat þolað frú Anderson, nema karlmennirnir. En hiín kveikti tika í þeim svo um munaði... SMÁSAGA EFTIR KNUT HAMSUN Það voru margir gestir á sumargisti- húsinu, bæði karlar og konur og jafn- vel útlendingar. Það var eitthvað smá- vegis að þeim öllum, ofþreyta eða því um líkt og nú var þetta fólk komið til þess að hvíla sig í nokkrar vikur í litla fiskiþorpinu við hafið. Flestir voru gift- ir og til þess að geta verið í friði, höfðu þeir ekki maka sinn með sér. Fólk skemmti sér eftir föngum og þeir sem voru farnir að eldast urðu ungir í annað sinn undir ljósakrónun- um í salnum. En allir sögðu: Hér er heilnæmt loftslag og það er hafgolunni að þakka. Þetta var menntað og tigið fólk. Það voru auðkýfingar, tvær prófessorsfrúr og framkvæmdastjórar. Og þarna var aðalræðismannsfrú og etatsráðsfrú, og höfðu báðar eiginmenn sína með. Gull- intenntur herramaður úr höfuðborginni var kallaður framkvæmdastjóri, enda 'þótt stæði á nafnspjaldi hans: Otto Mengel, stórkaupmaður. Gestgjafafrúin hafði sérstakt lag á því, að hækka gesti sína í tigninni þegar hún kynnti þá. Um Mengel framkvæmdastjóra er annars ekki nema allt það bezta að segja. Hann var víst vel efnaður maður og hafði frímúraramerki í úrfestinni. Þá vakti það nokkra undrun þegar hetjan Oxen- stand, sem hingað til hafði ekki lotið neinum, hneigði sig áberandi djúpt, þeg- ar hann heilsaði Mengel framkvæmda- stjóra; Það kom seinna í ljós að herra Mengel stundaði okur í höfuðborginni. Ofurlítill kritur var meðal gestanna, en það var aðeins kunningjakritur og bak við það lá engin illgirni. En líftrygg- ingaagentinn frá nágrannalandinu hafði hlotið rótgrónar óvinsældir gestanna vegna þess, að hann hafði reynt að lokka þá til þess að líftryggja sig. Það var eins og hann ætti von á því að ein- hver gestanna myndi deyja, en það var enginn þeirra sem kærði sig um að deyja. Þeir kölluðu hann framkvæmda- stjóra til þess að vekja sjálfsvirðingu hans, en það bar engan árangur. Hann nefndi sig bara Andersen agent og leið- rétti þá, sem kölluðu hann fram- kvæmdastjóra. Hann var eintóm verzlunarhyggjan þessi náungi. Það var ekkert að honum, og hann svaf vel og át mikið og var mesti hreystiskrokkur. Dag nokkurn sagði aðalræðismannsfrúin: Burt með þennan Andersen. En frú Milde vissi vel, hvers vegna aðalræðismannsfrúin heimtaði að And- ersen yrði rekinn. Hann hafði ekki kunnað að meta ástúðlegt viðmót henn- ar. Kvöld nokkurt hafði aðalræðis- mannsfrúin setið einsömul í myrkrinu í garðinum og herra Andersen hafði orðið reikað þar fram hjá. Hún ávarp- aði hann og kallaði hann framkvæmda- stjóra, — já, og hún hafði jafnvel ympr- að á því að hann væri svo hraustlegur, að það hefði styrkjandi áhrif á taugar sínar að horfa á hann. — Einmitt það, sagði Andersen. — Komið þér nú og verið þér ofurlít- ið skemmtilegur. — Það er of dimmt, svaraði hann. — Já, en við skulum fyrir alla muni ekki fara inn í þessa ljósadýrð. — Jú, sjáið þér til: ég hef reynslu fyrir því, að ég sé betur í björtu en dimmu, sagði Andersen. Hann var mesti sérvitringur. Og það var almenn skoðun að hann hefði enga unun af náttúrufegurð. Fólk hafði séð hann standa og horfa þurrum augum út á hafið. Hetjan Oxenstand reyndi einn daginn að gera gys að honum, en hon- um varð nú ekki kápan úr því klæðinu. Það var bezta skemmtun að hlusta á svör agentsins. Hin unga frú Trampe, fegurðardrottningin, spurði hann einu sinni meðan setið var undir borðum: — Eruð þér þá ekki kvæntur? — Nei, svaraði hann. En ég hef samt sem áður ekki sloppið við mótbyr um ævina. Og svo er von á nýju frúnni. Það hafði komið símskeyti frá ná- grannalandinu, þar sem óskað var eft- ir herbergi handa konu. í símskeytinu stóð, að það mætti gjarna vera lítið her- bergi, en það varð endilega að vera á fyrstu hæð.' Gestgjafakonan svaraði og sagði að herbergið væri til reiðu. Allir gestir veitingahússins biðu með eftirvæntingu eftir frúnni. Hvers vegna vildi hún búa á fyrstu hæð? Var hún hölt? Ungu frúrnar, sem aðeins höfðu, verið þrjú eða fjögur ár í hjónabandinu óskuðu helzt, að frúin væri ekki lagleg. Hetjan Oxenstand sagði: Hún má gjarn- an vera lagleg. Hún getur þó ekki boð- ið yður byrginn, frú Trampe. Tveim dögum seinna kom hún. Ek- illinn ók greitt alla leið að dyrunum og nam þar snögglega staðar. Frúin steig út úr vagninum. Gestirnir hættu tennisleiknum. Allir horfðu á frúna. Hún hafði stóran hatt og var skraut- lega búin, og þegar hún kom út úr vagninum, sáu allir að hún var ung. — Ég heiti frú Anderson, sagði hún við gestgjafafrúna. — Hvað heitir hún, spurði aðalræðis- mannsfrúin. — Anderson, sagði frú Trampe feg- urðardrottning. — Ein enn þá með þessu nafni. Það er ekki verandi hér lengur. Aðalræðismannsfrúin hafði á réttu að standa: Það gat enginn þolað frú Anderson — nema karlmennirnir. En hún kveikti líka í karlmönnunum svo að um munaði. Það var ekki svo auðvelt að skilja þetta svona um leið. Hún var ekki fríð kona og hún hafði heldur ekki jafnskær augu og frú Trampe, — þau þoldu ekki samanburð. En hún hafði dimm og hættuleg augu, — já, þannig var það. Auk þess líktust augabrúnirnar tveim íglum, sem teygðu saman ranana. Og hún var ljóshærð og varirnar voru eins og blóm. Það var nú svo. Frú Anderson fór seint á fætur á morgnana og gestgjafafrúin varð að minna hana á stundvísi: morgunverður klukkan nákvæmlega 9. Frú Anderson sagði: — Ég skal mæta klukkan nákvæm- lega 9 — nema á morgnana. Og þá varð jafnvel aðalræðismann- inum það á að líta á hana. Og aðalræð- ismaðurinn var nú þannig gerður, að enginn þurfti að kenna honum að lesa úr augum. Hann var af frægri skálda- ætt og orti sjálfur ágæt kvæði um nátt- úruna og mennina. Þegar tímar liðu fékk Anderson reikninginn. Hún bað þegar um greiðslufrest. Hún ætti ekki peninga, UNDIR SUMARSÓL 14 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.