Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1961, Blaðsíða 16

Fálkinn - 31.05.1961, Blaðsíða 16
Röddin var eins og hörpubassi. Syngur etatsráðið? — Nei, það geri ég ekki. .. ., það er að segja. . . . einu sinni gat maður nátt- úrlega tekið á lagi. Hann var orðinn ungur í annað sinn. Það var víst þetta heilnæma loftslag og hafgolan, sem gerðu það að verkum. Etatsfrúin sendi boð eftir honum, en hann sinnti því ekki. — Ég fer ekki, sagði hann. —- Lof mér að hafa frið stundarkorn. Hvað vill hún mér eiginlega? Og frú Anderson kinkaði kolli og var á sama máli. Hann skyldi bara sitja kyrr. — Við getum gjarnan talað um við- skiptamál, sagði hún. Þá er yður vafa- laust óhætt að sitja kyrr. — Já, við yður vildi ég gjarnan eiga viðskipti. Lofið mér að heyra. Við skul- um gjarnan gera ofurlitla verzlun. — Hví ekki mikla verzlun? — Jú, mikla verzlun. Því stærri, því betra, ha, ha, ha. En frú Anderson var alvara. Hún vildi fá að líftryggja hann. — Einmitt það, sagði etatsráðið undr- andi. Er frúin agent? — Það var fyrir nokkrum árum. Ég varð að hjálpa manninum mínum að vinna fyrir heimilinu. Hvað átti ég að gera? Og hún skýrði þetta nánar fyrir hon- um. Það þurfti ekki að vera svo há upp- hæð. Hún ætlaði ekki að féfletta hann. — Jú, sagði etatsráðið. Ef ég líftryggi mig, þá tek ég háa líftryggingu. Og þegar alls er gætt, þá getur verið hyggi- legt að líftryggja sig. — Ég skal senda skjölin heim til mannsins míns til undirskriftar, sagði frúin. Fyrir siða sakir verður læknirinn að skoða yður, enda þótt þér séuð hraustur eftir útliti að dæma. Ég skal óðara senda lækninn. Þegar etatsráðið hitti konu sína, sagði hann stuttarlega: — Ég var að sinna viðskiptum. Hvað vildirðu mér? — Varstu að tala um viðskipti við hana? — Ég líftryggði mig. Það hefur mikla þýðingu að líftryggja sig. Hún er full- trúi bezta félags. — Versta félags, sagði etatsráðsfrú- in af sannfæringu. Hún er áreiðanlega frá versta félaginu. Etatsráðinu þótti vænt um að hafa getað gert frú Anderson til þægðar. Hann rak sjálfur eftir því, að samning- urinn yrði undirritaður við fyrsta tæki- færi. Og þegar læknirinn frá nágranna- landinu kom, var etatsráðið í bezta skapi og lét skoða sig. Og auðvitað var ekkert að honum. Hreint ekki neitt. Frúin rétti honum höndina og þakk- aði honum fyrir. — Hef ég virkilega gert yður greiða með þessu? spurði hann — Stóran greiða. Þér hafið bjargað mér. Ég má ekki segja meira. Etatsráð- 16 ið lét sinn betri mann fá yfirhöndina og sagði: — Ég held nærri því, að ég gæti fengið aðalræðismanninn til þess að líf- tryggja sig, ef yður væri nokkur þægð í því. Þá kallaði frú Anderson hann vin sinn og velgerðarmann. Og um leið horfði hún í kringum sig og roðnaði á báðum vöngum. -—- Mér finnst við ættum að nota tækifærið meðan læknirinn er hér, sagði etatsráðið við aðalræðismanninn. Við gerum víst frúnni mikinn greiða með þessu. Það er ekki þar fyrir, að hún hefði beinlínis sagt það en. . . . — Hún hefur sagt mér hreint út, að hún sé fátæk, sagði aðalræðismaðurinn. Það er ákaflega raunalegt. Eins og hún hefur falleg augu. Og' aðalræðismaðurinn vildi ekki standa að baki etatsráðinu. Hann líf- tryggði sig fyrir jafnhárri upphæð og et. atsráðið. Auk þess hafði hann sérstaka ástæðu til að gera frú Anderson ofur- lítinn greiða. Hún hafði nýlega þakkað honum fyrir kvæðið. Hann sagði. -—- Hvernig væri að við líftryggðum konur okkar líka? — Hvað. Konur okkar? spurði etats- ráðið. Nei, það gengur aldrei. Ég fæ konuna mína aldrei til þess að láta skoða sig. ^ — En mér finnst þetta vera beinlínis skylda okkar. Það var þögn stundarkorn. Etatsráð- ið sat í þungum þönkum. — Hún skal mega til, hrópaði hann skyndilega. Ég fer til hennar þegar í stað. Sjaldan hafði etatsráðsfrúin séð mann sinn jafn ákveðinn. Hann lét all- ar mótbárur sem vind um eyrun þjóta. — Það er skylda okkar, sagði hann með orðalagi aðalræðismannsins. — Er það ,skylda okkar? En nú var etatsráðið fljótur að hugsa og hann hljóp ekki á sig. Hann varð hátíðlegur á svip og kinkaði kolli: — Já, það er skylda okkar. Við eig- um dóttur, sem við deyjum einhvern tíma frá. Og enda þótt dóttirin væri gift millj- ónamæringi, þoldi etatsráðið engin mót- mæli. Ókunni læknirinn fékk nóg að gera. Hann skoðaði gesti sumarhótelsins í krók og kring og gaf vottorð um heil- brigðisástand þeirra. Hann var ungur maður, dökkeygður og í ljósum fötum. Hetjan Oxenstand gat ekki boðið hon- Frh. á bls. 26. FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.