Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1961, Blaðsíða 18

Fálkinn - 31.05.1961, Blaðsíða 18
Sigurður Nordal, prófessor: UM NORBMENN I. Ætti ég með einu orði að lýsa Norðmönnum, eins og þeir hafa komið mér fyrir sjónir, mundi ég vilja kalla þá vor- þjóð. Þau tvö skáld þeirra, sem mest hafa mótað þjóðlíf þeirra á síðustu öld, hafa bæði skilið þetta og stuðlað að því að glæða það. Henrik Wergeland kvað: Ung má verden endnu være, slegtens sagas lange lære endnu kun dens vuggesange og dens barndoms eventyr. og Björnstjerne Björnson sagði: Jeg vælger mig April, i den det gamle falder, i den det ny faar fæste. Det volder lidt rabalder, dog fred er ej det bedste, men at man noget vil. Ég ætla í sem fæstum orðum að nefna nokkur dæmi þess, í hverju mér hefur fundizt þessi vorhugur, gróandi æsku- þróttur þjóðarinnar, vera fólginn. Um leið ætti að einhverju leyti að skýrast, hvernig á honum stendur. II. Saga Norðmanna á 19. öld hefur borið svip æskunnar, framsóknar dugandi unglings, sem allt í einu gerir sér grein fyrir kröftum þeim, sem í honum búa, og neytir .þeirra út í æsar. Það var engu líkara en þjóðin risi upp um 1814, hvíld og endurnærð af margra ára svefnmóki, eins og kolbítur úr öskustó, og sækti fram með fágætri orku og árangri á öllum sviðum athafna og menningar. Samt má vitanlega sjá margvíslegan aðdraganda þeirrar viðreisnar á undanförnum öldum, ef betur er að gætt. En tækifærin voru minni, meðan Noregur var hjálenda. Mikið af hæfileikum hefur farið for- görðum vegna þess, að skilyrði menntunar og þroska skorti Myndin hér að neðan er af háskólanum í Osló, en við hlið hennar eru skáldið Björnstjerne Björnson og Karólína kona hans á heimili þeirra í Aulestad. í landinu sjálfu. Þeir, sem brutust áfram og náðu mestum frama, eins og Tordenskjold og Holberg, urðu að leita sér starfssviðs annars staðar, og afrek þeirra urðu föðurlandi þeirra ekki að eðlilegri frægð né notum. Það gefur að skilja, að ekkert hefur komið fram hjá norsku þjóðinni á 19. öld, sem bjó ekki í henni áður. Munurinn er sá, að tápinu og gáfunum voru smám saman sett stærri takmörk, opnaðar fleiri brautir, betur að þeim hlúð og búið, og þeim var nú beitt í þágu eigins lands. Hér er hvorki rúm né þörf á að telja fram allt það, sem þessi fámenna þjóð hefur afrekað frá 1814. Hún var þá ekki nema ein milljón að tölu og í höfuðstaðnum, Kristianíu, voru 11.000 íbúar. Öll verkleg og andleg menning bar þess merki, að landið hafði lotið erlendu valdi í hálfa fimmtu öld, ekki verið annað en sel frá höfuðbóli. Síðan hafa Norðmenn rutt sér til rúms sem fyllilega sjálfstæð þjóð, jafnokar hinna norrænu þjóðanna á flestum sviðum, en á sumum komizt feti framar. Þeir hafa að tiltölu við fólksfjölda orðið mesta siglingaþjóð veraldar- innar, sýnt þar furðulegt framtak, sem fáir vita um til hlítar. C. J. Hambro sagði mér einu sinni, að þegar hann kom til Kaliforníu, hefði það komið sér alveg á óvart að fá vitneskju um, að mestallar strandferðir við vesturströnd Ameríku væru í höndum Norðmanna. Þarna væru menn á siglingu árum saman án þess að koma heim til Noregs. Þá hafa Norð- menn komið upp stórfelldum iðnaði og orkuverum og hag- nýtt sér auðsuppsprettur landsins, sem að ýmsu leyti er hart og naumgjöfult, með hugkvæmni og atorku í senn. í bók- menntum og listum hafa þeir orðið ein af forystuþjóðum heimsins síðustu hundrað árin, og er því til sönnunar nóg að nefna fáein nöfn: Henrik Ibsen, Björnstjerne Björnson, Knut Hamsun, Sigrid Unset, Edvard Grieg, Edvard Munch og Gustav Vigeland. í flestum greinum vísinda hafa þeir átt menn, sem markað hafa spor og of langt yrði upp að telja. Háskólinn í Osló, sem tók til starfa 1813 með einum sex kennurum, er nú tvímælalaust einn af bezt skipuðu há- skólum Norðurlanda. Landkönnuðir eins og Fridtjov Nansen og Roald Amundsen, sem sameinað hafa persónulegt þrek og áræði og vísindalegan áhuga og hæfileika, hafa borið hróð-

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.