Fálkinn


Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 35

Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 35
PERM A SIMS 3396S * * * Okkar fjölbreytta úrval af perma- nentolíum gefur möguleika á að gera hár hverrar konu vel krullað og þó silkimjúkt. Einnig sú yngsta biöur um tízkuklippingu GARÐSENDA 21 Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl). Þér fáið byr undir báða vængi í þessari viku. Margir -— bæði ungir og gamlir — njóta einstakrar sælu á sviði ástamálanna, ekki hvað sízt þeir, sem fæddir eru í kringum 30. marz. En þetta mun hafa mikil peninga- útlát í för með sér. Nautsmerkið (21. apríl—22. maí). Greinilegur uppgangstími er framundan hjá yður á næstunni með fjölda tækifæra og möguleika. Þér fáið meira fé handa í milli en áður, svo að fjárhagsörðug- leikarnir eru úr sögunni, í bráð að minnsta kosti. Tvíburamerkið (23. maí—21. júní). Þér eigið yður girnilegt markmið, en þessa viku er útlit fyrir mótlæti í þeim efnum, sem þér verðið að komast yfir. En takmarkið er ennþá jafngullið og heill- andi og engin ástæða til þess að hætta að berjast til þess að ná því. Krabbamerkið (22. júní—22. júlí). St.rax í byrjun vikunnar gleðjist þér með lífsglöðu og heilbrigðu fólki. Látið ekki neikvætt og vansælt fólk hafa áhrif á yður. Varizt að umgangast það og sækist heldur eftir félagsskap við hið fyrrnefnda. Happatala vikunnar er 8. Ljónsmerkið (23. júlí—22. ápúst). Enn einu sinni hafið þér komizt klakklanst yfir erf- it.t tímabil og það ætti að veita yður aukið sjálfstraust og lífstrú. Erfiðleikarnir voru nær eingöngu á sviði einkalífsins, en áhrifa þeirra gætt.i einnig á atvinnu yð- ar og líðan alla. Jómfrúarmerkið (23. ágúst—22. sept.). Bjartir tímar framundan. Jafnvel mál, sem þér voruð búnir að gefast upp við, komast aftur á hreyfingu og allt útlit fyrir að þau leysist farsællega. Astamálin verða með erfiðasta móti og þér eigið sjálfur sök á því. Vogarskálarmerkið (23. sept.—22. okt.). Þér eigið afar auðvelt með að eiga samskipti við annað fólk og umgangast það. Hvernig væri nú að not- færa sér þennan hæfileika til eigin framdráttar? Þet.ta gæti komið sér vel fyrir yður bæði fjárhagslega og á sviði einkalífsins. SporðcLrekamerkið (23. okt.—21. nóv.). Þér skuluð njóta þeirrar ástarhamingju, sem þér eig- ið kost á, sérstaklega ef þér eruð fæddur í kringum 20. nóvember. Þér eigið í örlitlum erfiðleikum vegna mis- skilnings. Gott ráð við þeim er að tala hreinskiLnislega út um málið við þá, sem hlut eiga að máli. Bogjyiannsmerkið (22. nóv.—22. des.). í þessari viku virðast tilfinningar yðar ekki vera í sem beztu jafnvægi. Þessi vika mun einkennast af miklum spenningi og óróa. Það ríður á fyrir yður að þrauka sem bezt af þessa viku, því að þær næstu verða léttari og skemmt.ilegri. Steingeitarmerkið (23. des.—20. jan.). Þér hafið unnið vel og afrekað mikið að undanförnu og eigið þess vegna fyllilega skilið að hvíla yður ofur- lítið. Þér gerið það ekki með því að leggjast í leti, heldur skipta um starf, grípa til tómstunda yðar um st.und, unz alvara lífsins tekur við að nýju. Vatnsberamerkið (21. jan.—19.febr.). Þér hafið nú þegar fengið vísbendingu um, að hið nýbyrjaða ár mun engu síður verða hagstætt en það sem nýlega er liðið. Þess vegna er hinn stöðugi ótti yðar og kvíði óþarfur. Reynið að njóta lífsins betur og reyn- ið að losna við þennan stöðuga nagandi kvíða. Fiskamerkið (20. febr.—20. marz). Þeir, sem fæddir eru undir þessu merki, munu eiga stormasama viku. Hún verður í hæsta máta viðburða- rík, og ekki verða allir þeir viðburðir gleðiríkir, en samt ekki heldur til að valda sorg. Þér vanrækið um of þá manneskju, sem í rauninni er yður mest virði og hefur alltaf reynzt yður bezt, þegar á reyndi. Q FALKINN 35

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.