Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 10
Skopmynd af þrælum tóbaksins frá 18. öld.
son Indíafari var tíu ár í siglingum,
svo varla hefur hann kennt íslending-
um að taka tóbak.
Næst er minnzt á tóbak í bréfi, sem
sr. Arngrímur lærði skrifar vini sín-
um Óla Worm. Bréfið er skrifað á latínu
að venju lærðra manna á þeirri tíð og
hér fer á eftir kafli úr því í lauslegri
þýðingu Ólafs Davíðssonar: „Mig fýsir
að fræðast fyrst um hver áhrif tóbakið
hefur, þegar menn draga það að sér
gegnum pípu, svo reykurinn kemur út
um munn og nef, hve skammturinn á
að vera mikill og hve oft á að taka;
hvort menn eigi að neyta þess á fast-
andi maga, eins og sjómenn hafa sagt
mér, eða á annan hátt. Sumir segja, að
þegar menn draga að sér reykinn á
þennan hátt, þá sé það hollt fyrir höfuð
og brjóst. Sumir segja líka, að þegar
kriilMriH
(12143)1)1
121:14211
<2112121
ekki minnkað. Salan hefur fremur vax-
ið þar en minnkað á síðustu árum og
neftóbaksneytendur þar eru flestir
komnir á efri ár og hafa ef til vill lengi
og vel tekið í nefið og þurfa þess vegna
stöðugt stærri skammt.
Sjaldgæft er, að neftóbaksmaður reyki
einnig. Lykt og bragðskynjun er svo
samtengd, að sá, sem bæði reykir og
tekur í nefið, hlýtur að fara á mis við
mikinn hluta nautnarinnar. En neftóbak
er framleitt á marga mismunandi vegu,
og ilman þess skiptir höfuðmáli fyrir
nautnina. Sevilla á Spáni varð mjög
snemma miðstöð neftóbaksverzlunarinn-
ar í Evrópu og Sevillaneftóbak er ein
af þeim tegundum, sem mest eru not-
aðar í dag. Næstum því allt neftóbak
er að mestu leyti tóbak frá Vestur-Indí-
um. Menn geta fengið neftóbak í öllum
gæðaflokkum, en almennt er neftóbaki
skipt í þrennt: Gróft, meðal og fínt.
Fer flokkun þessi eftir kornastærð. Á
velgengnisárum neftóbaksverzlunarinn-
ar var írskt, skozkt og neftóbak frá
Sheffield mjög frægt og enskir neftó-
baksframleiðendur höfðu lengi markað-
inn í höndum sér.
★
Árið 1615 hafa menn fyrst sögur af
tóbaki á íslandi. Þá stóð svo á, að Jón
Ólafsson Indíafari, tók sér far með ensk-
um sjómönnum frá Vestfjörðum. Jón
segir frá því, að einn skipverja, sem
Rúben hét, hafi tekið tóbak á hverju
kvöldi. Þann mann hafi hann fyrstan
séð fara með tóbak. Jón kvaðst hafa
lært að taka tóbak af honum. Jón Ólafs-
Dósir voru mjög skrautlegar og Neftóbaksdósir úr gulli með onys-
margar voru með upphleyptum steinum. Franskir gullsmiðir voru
myndum. snillingar í að gera slíkar dósir.
10 FÁLKINN