Fálkinn


Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 18

Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 18
SMÁSAGA EFTIR ÁRNA GUNNARSSON BLAÐAM. Enn einu sinni var komið laugardagskvöld. Það hafði rignt fyrr um daginn, en nú var stytt upp. Þegar hann kom út úr strætisvagninum spegluðust ljós götunnar í blautu malbikinu. Umferðin var þegar orðin mikil £ bæn- um. Bílarnir gösluðu eftir götunni og fólkið forðaði sér lengra upp á gangstéttina til að forðast vatnssletturnar frá þeim. Hann bölvaði tilver- unni, einmanaleikanum, bíl- unum og þessu káta og bros- andi fólki, sem var allt í kringum harm. Hann bölvaði líka sjálfum sér, og hann fann hvernig einhver angist og ótti fór að naga hann að innan. Þetta tilgangslausa sífellda ráf og leit að þvf sem hann aldrei fann. Hann hraðáði sér. og skeitti engu um pollana og fólkið. Honum var fróun í því að heyra fótatak sitt og hann reyndi að stíga fastara og fastara til jarðar og það var eins og höggin fylltu upp í þennan óendanlega tómleika, sem kvaldi hann. Hann gekk inn í vínstúk- una, og bað um sterka blöndu af áfengi. Hann drakk á- fergjulega úr fyrsta glasinu og bað fljótlega um annað. Þegar hann hafði Iokið úr því fóru áhrifin að segja til sín. Eftir að hafa tæmt þriðja glasið leið honum betur, og tómleikinn hVarf. Það voru fáir komnir og hann beið eftir einhverjum, sem hann þekkti og gæti talað við. Honum var farið að líða vel og angistin hvarf á bak við sljóleikann og friðinn, sem kom yfir hann. Hann fékk sér í fjórða glasið, og hann var ákveðinn í að verða- drukkinn. Nú fór fleira fólk að koma inn, og vinur hans, sem hann ætlaði að hitta þarna, kom. Þeir fengu sér borð í salnum og það fylltist fljótlega af fleiri vinum og kunningjum. Hann var orðinn vel kátur og nokkuð ölvaður. Hann hló með sjálfum sér að svartsýn- inni og leiðanum, sem hafði kvalið hann fyrr um kvöldið og pantaði meira vín. Hljómsveitin var byrjuð að einhverju hjá þeim, sem hann aldrei fann. Þessi sífellda tilgangslausa leit. Þær höfðu grátið, þær höfðu orðið reið- ar, en það hafði aldrei snert hann neitt. Nú skyndilega langaði hann til að elska. Hitta ein- hverja stúlku, sem honum gæti þótt vænt um. Hann vildi verða hamingjusamur. Það var hlé hjá hljómsveit- inni og strákarnir komu að borðinu aftur. Það komu einnig tvær stúlkur. Hann þekkti aðra, en hina ekki. Hann horfði á hana og hún á hann. Þau fóru að tala um fólkið í kringum sig, og sú sem hann ekki þekkti opin- beraði sig, með því að segja að hún væri tryllt í riáúng- ann, sem lék á píanóið. Hann hló og spurði hana hverriig væri að vera „tryllt í ein- hvern“ Hún vissi það ekki, en sagði honum að hann væri heimskur. Þá hló hann aftur. Þau fóru að tala um hvað þau ættu að gera eftir dans- leikinn og vinur hans sagðist geta boðið þeim heim, því Þegar hann kom á skemmti- staðinn og hafði skilið eftir frakka sinn í fatageymslunni, gekk hann inn á salernið. Hann greiddi sér og horfði lengi á andlit sitt í speglinum. Hann fór að hugsa um það hvers vegna hann þyrfti að vera svona óhamingjusamur. Af hverju gat hann ekki fund- ið þessa hamingju sem aðrir virtust hafa nóg af. Var hann að leita að einhverju, sem ekki var til, eða leitaði hann ekki á réttum stöðum Það var eitthvað sem hann þráði svo innilega, einhver ró, einhver friður. leika. og kunningjar hans við borðið farnir að dansa. Honum leið of vel til þess að hann gæti staðið upp til að þreyta sig þarna úti á gólfinu. Hugsanir hans fóru að reika, og hann fór að hugsa um allar stúlkurnar, sem hann hafði þekkt og verið með. Hann hafði talið sér trú um að hann elskaði sumar þeirra. Hann hafði verið hamingju- samur, ánægður með sjálfan sig og tilveruna. Svo varð hann leiður á þeim, og varð aftur hamingjusamur þegar hann losnaði við þær. Hann hafði alltaf verið að leita að foreldrar hans væru ekki heima. Nú byrjuðu þau að dansa aftur. Hann gekk til stúlku, sem sat við næsta borð og bauð henni upp. Þegar hann tók utan um hana sá hann að andlitið á henni var allt örótt eftir bólur. Þegar fyrsta laginu lauk, þurfti hann skyndilega að ná í kunningja sinn sem gekk þarna fram hjá. Það var mjög áríðandi, og hann gekk með henni að borðinu aftur. Hún leit á hann, þegar hann þakkaði fyrir sig, og hann vissi hvað hún hugsaði. Hann vorkenndi henni. Hann fór ekki að dansa aftur fyrr en skömmu áður en dansleiknum lauk. Þá dansaði hann við stúlku, sem hann þekkti og hann bauð henni í partíið, sem átti að halda heima hjá vini hans. Hún þáði það. Hann var orð- inn óstyrkur á fótunum, og allir hlutir í kringum hann voru orðnir svo óverulegir. Hann var orðinn tilfinninga- laus og löngunin til að elska var horfin. Þau fengu sér leigubíl heim til vinar hans. Hópurinn var orðinn stór, og þau keyptu: tvær flöskur af áfengi ’ á léiðinni. Stúlkan, sém hann þékkti ekki, sat Við hliðina á honum í bílnum. Hún var orðin nokkuð drukk- in. Hún hló hátt. og það fór í taugarnar á honum. Hann fór að skamma hana, en hún sagði honum að halda kjafti. Honum kæmi ekkert við hvað hún gerði Þegar þau komu á áfanga- staðinn hélt hann áfram að drekka Þau byrjuðu að dansa eftir tónlist í útvarpinu. Sum voru byrjuð að elskast. Hann drakk og þau drukku. Aftur fór hann að hugsa, og nú sérstaklega um eina stúlku, sem hann hafði haldið að hann elskaði. Hún var góð og blíð. Hann grét þegar hann vildi hana ekki lengur. Nú langaði hann að hitta hana aftur. Hann gekk fram í í anddyrið til að hringja. Hann mundi hvaða síma- númer var heima hjá henni. Þegar hann gekk fram hjá einu herberginu sá hann vin sinn þar inni með einni stúlkunni. Hann veifaði og vinur hans veifaði á móti. Hann heyrði óljóst að renni- lás var rennt niður, síðan var staðið upp og hurðinni lokað. Hann gekk að símanum og hringdi. Móðir hennar kom í símann. Hún hafði auðsjáan- lega sofið og var reið. Hann spurði eftir blíðu stúlkunni. Móðirin spurði hvað hann meinti með því að hringja dauðadrukkinn um miðjar nætur, og skellti á. Hann hringdi aftur. Það svaraði enginn. Síminn hafði ugglaust verið tekinn úr sambandi. Hann skildi tólið eftir á borð- 18 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.