Fálkinn


Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 12

Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 12
Hún brosti með sjálfri sér. — Auðvitað var þetta vit- leysa sem aðeins henni gat dottið í hug. Hún hugsaði um það með biturri kaldhæðni, að karlmaður er héldi lof- orð sitt, væri reglulega sjaldgæft fyrirbrigði. Orðið „alltaf“ þýddi hjá þeim í mesta lagi nokkrir mánuðir. Þetta bréf var skrifað fyrir að minnsta kosti 12 árum. Já, það hlutu að vera 12 ár síðan. Hún hafði fundið það af tilviljun, þegar hún var að leita í gömlum skjölum, og lesið það aftur. Þar stóð: „Ég verð að beygja mig fyrir ákvörðun þinni, en þú getur ekki hindrað mig J að vona, að sá tími komi, að þú játist mér. Aldrei mun nokkur önn- ur koma til greina, ég mun halda áfram að bíða eftir þér. Hvort sem það verður eitt ár tvö eða tuttugu ár, þar til þú kemur, það hefur enga þýðingu. Ég ætla að láta útbúa herbergi handa þér hjá mér, bjart og sólríkt, eins og ég veit að þú vilt hafa það. Þar skal alltaf vera vöndur af eftirlætis blómun- um þínum, túlipanar á vorin og krysantemur á haustin. Ég mun ætíð bíða, bíða. . . Hún vafði sjalinu þéttar að sér og hellti einu sinni enn konjaki í glasið. Það var svo hljótt í kringum hana, en hún var orðin vön þess- ari kyrrlátu einveru. Hún var ekki lengur ung, hún átti hvorki heimili, mann eða börn, hún flutti af gisti- húsi í mötuneyti, af mötu- neyti í gistihús. Hún var eins og fugl án hreiðurs. Það var henni einni að kenna, að líf hennar var svona, vegna heimsku hennar, drambs og' skemmtanafýkn — vegna alls þessa, er hafði komið henni til að vanmeta raun- verulegt verðmæti lífsins. Hún gat ekki hætt að hugsa um bréfið. Hún hafði ekki enn þá rifið það, þó að hún væri búin að eyðileggja öll bréf sín og skjöl. Hún vissi að hún átti ekki eftir langt ólifað. Auðvitað sagði lækn- irinn það ekki beinlínis, en hún vissi vel að endirsins yrði ekki langt að bíða, ef til vill yrði það á morgun, eftir nokkra mánuði eða í mesta lagi eftir ár, ef hún færi varlega. Hún hafði aldrei kunnað að fara varlega, því sat hún nú hér og drakk konjak, sem 12 FÁLKINN henni var bannað að drekka og reykti vindlinga, sem gerðu veikt hjarta hennar enn þá verra. En hvaða máli skipti hvort það yrði dagur, mánuður eða ár, fyrir jafn einmana konu og hana, konu, sem hafði sjálf eyðilagt líf sitt svo algjörlega? Þetta bréf. . . . Hún hafði hugsað um bréfritarann svo árum skipti. Minningin um hann og ást hans, er hún hafði vísað á bug, hvarf fljótlega í hringiðu lífs hennar. Bréfið var hið eina. er eftir var af stuttu og ástríðuþrungnu tímabili, hún hafði verið í örlitlum vafa þá og dottið í hug, að ef til vill gæti hún orðið hamingjusöm með honum. Þar til eggjandi og seiðandi rödd hins óþekkta, ævintýralöngunin, hafði yfir- gnæft fíngerða og veik- byggða rödd hamingjunnar. Hún las bréfið aftur og aftur og háðsbros lék um varir hennar. Hann var ekki eini maðurinn í lífi hennar, sem talað hafði um eilífa ást, svarið henni eilífa tryggð og staðhæft, að hann myndi aldrei gleyma henni. Hún trúði ekki á ást og enn síður á tryggð, já allra síst á tryggð. En ein hugsun tók að ná yfirhöndinni í eirðarlaus- um hugarheimi hennar. hug- arheimi hennar, sem stöð- ugt leitaði spennu, geðshrær- ingar eða einhvers, sem gæti gefið einskisverðu og innan- tómu lífi hennar fyllingu. Áður en hún eyðilagði gömlu bréfin sín hafði hún lesið þau aftur. Þau fylltu hjarta hennar sársauka, sem var betri en auðnin, er var nú nálega það eina, sem hún fann til, eins og sál hennar væri þegar látin. Hún hafði lesið um fegurð sína, hve menn elskuðu hana heitt og girntust hana. Síðan hafði hún litið í spegilinn, virt andlit sitt fyrir sér án nokk- urrar miskunnar, hrukkurn- ar. sem fegurðarlyfin unnu ekki lengur á andlit rosk- innar, sjúkrar konu. Og með- an hún eyðilagði þessi gömlu vottorð um fyrri fegurð og liðnar gleðistundir, kastaði þurrkuðum blómum og öðr- um minjagripum, fannst henni sem hún lifði á ný, í sársaukanum, sem þessar gömlu minningar vöktu með henni. Nú var það einnig á enda, aðeins þetta eina bréf eftir. Hugsunin lét hana ekki í friði: Hvers vegna ekki? Auðvitað datt henni ekki í hug að hann biði í raun og veru eftir henni. Og þó, hann hafði verið alltöðruvísi en allir þeir karlmenn, er hún síðar kynntist. Ef til vill höfðu tilfinningar hans til hennar verið öðruvísi? Ef til vill hafði það verið ástin? Henni fannst, sem það myndi verða henni verðug lífslok að lifa einnig þau vonbrigði. Hafði hún ekki ætíð fremur kosið sér þúsund geðshræringar en kyrrláta hamingju? Hvers vegna þá ekki einnig þessa síðustu geðshræringu, þessi síðustu vonbrigði? Það yrðu henni mátuleg lífslok. Hulunni einnig svift frá þessari síð- ustu blekkingu.... Nokkrum vikum síðar gekk hún hægt um þorpið, sem hann bjó í. Það hafði tekið hana nokkurn tíma að kom- ast að því hvar hann bjó. Hún hafði fengið að vita að líf hans var eins og hún bjóst við að það væri, kyrrlátt, en fullt af elju og atorku. Hann var læknir og bjó með móður sinni, sem var ekkja. Er hún gekk þarna um göturnar, reyndi hún að ímynda sér hvernig það hefði verið að vera gift honum í raun og veru. Ef hún hefði búið hér og þurft að deila með honum viðburðasnauðri og tilbreytingalítilli tilveru. Það hefði verið óþolandi, niðurdrepandi leiðinlegt, hugsaði hún. Eða hefði það kannski ekki verið það, þrátt fyrir allt? Hún reyndi að ímynda sér sjálfa sig sem læknisfrú, gifta önnum köfn- um manni, sem aðeins sjaldan hefði haft tíma til að veita henni dálitla tilbreytingu. Einstöku sinnum farið í ferða- lög í sumarleyfinu, kunn- ingjahópur, sem saman stóð af virðulegum og dyggðug- um smáborgurum. Ef til vill hefði hún eignast börn? Já, ef til vill. Skyndilega fannst henni hjarta hennar loga af ókenni- legri þrá, brennandi þrá eftir öllu því, sem hún aldrei eignaðist, og aldrei myndi eignast, af því að hún hafði sjálf forsmáð það. Það var heimskulegt af henni að fara hingað. Auð- vitað hafði hann gleymt henni fyrir löngu, Þessi þátt- ur í lífi hans hlaut nú að búa í vitund hans sem gömul,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.