Fálkinn


Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 22

Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 22
 M.Wtvvr-'-S'-:- ■C" • • : . ■ ■ Mýir lesendur geta byrjaö hér: Eftir margra ára fjarveru snýr Bettina aftur til fæðingarbæjar síns, Tiibingen. Á ytra borði er ástæðan til heimkomunnar sú, að maður hennar, Julian Brandt apótekari, sækir um skilnað, til þess að gifta sig aftur. Þrjú börn Bettinu, Albert, Doris og Wolfgang hafa alist upp í þeirri trú, að móðir þeirra sé látin. Börnin mótmæla ákaft áætlun föður síns um að giftast aftur Gabrielu Holthuys, ungri konu, sem Albert fullyrðir að sé léttúðardrós. Hið sanna er, að Gabriela átti barn í lausaleik og stóð ein uppi. Hún bjó með ríkum manni og fékk slæmt orð á sig af því. Albert hefur hitt móður sína, án þess að vita hver hún er. Minna gamla, sem alið hefur börnin upp, grátbænir Bettinu að fara aftur, en þegar hún neitar því segist hún ætla að sýna henni mynd af Doris annars vegar og Hohenperch prins hinsvegar, en hann var ástæðan til þess að Bettina hvarf að heiman. 22 FÁLKINN Doris starði á þessa fögru konu, sem sat við hlið henni í sófanum. Gat það átt sér stað, að þessi ókunna kona væri móðir hennar, sem dó í Davos fyrir átján árum. — Nei! hrópaði hún aftur. — Það er ómögulegt. Móðir mín er dáin. Hún spratt á fætur. Dökk augu hennar leiftruðu og kinnar hennar voru rjóðar af reiði. Nafn móðurinnar var henni heilagt. Hvernig gat gjörsamlega ókunn kona birzt skyndilega og fullyrt, að hún væri móðir hennar. í fyrstu var Bettina ráðvillt. Þegar hún skynjaði viðbrögð dóttur sinnar, fannst henni að hjarta sitt væri orðið að steini. Hafði hún í rauninni nokkurn rétt til þess að kalla þessa ungu og fallegu stúlku dóttur sína? Hafði hún ekki að eilífu glatað börnum sínum, þegar hún yfirgaf fjölskyldu sína og heimili? Aftur fann hún, að hún var dauðþreytt, og nú varð löng og djúp þögn. Frá götunni heyrðust kunnugleg hljóð, — gamall hestvagn sem ók skrölt- andi niður götuna og dyrnar á apótek- inu, sem stöðugt opnuðust og lokuðust aftur. En þögnin var eins og múr um- hverfis þessar tvær verur, sem sátu í sófanum. Doris vissi ekki hvað hún átti af sér að gera. Helzt langaði hana til þess að hlaupa upp í herbergið sitt og læsa þar að sér. Þá heyrðist skyndilega fótatak í stiganum undir þeim. Julian er að koma, hugsaði Bettina. Ég vona að það sé Wolfgang, hugsaði Doris, því að ef einhver gat komið til hjálpar á þessari stundu, þá var það Wolfgang. Hún hrópaði niður: —- Wolfi! Wolfi! Við erum búin að fá heimsókn. Og það var einmitt Wolfgang sem kom. Hann stökk upp stigann í löngum skrefum og stóð skyndilega fyrir framan þær. Hann var í bláköflóttri skyrtu, stuttbuxum, stuttum sokkum og sandölum. Dökkt hár hans var ógreitt og augun óvenjulega blá í sól- brúnu andlitinu. Þetta voru augu Bettinu. .. . Bettina fékk kökk í hálsinn. Þarna stóð þá annar sonur hennar! Hún virti vandlega fyrir sér andlit hans og reyndi að gera sér í hugarlund það sem hræð- ist á bak við þetta breiða enni. Wolfgang brosti til hennar sínu blíð- asta brosi og hneigði sig djúpt. Síðan sneri hann sér að Doris og andlit hans var eitt stórt spurningarmerki. — Þú skilur það Wolfi, að. . . . Hún þagnaði í miðri setningu og leit niður í gólfið. Síðan leit hún snöggt á Bettinu. — Þú skilur, að þessi kona.... hún segist sem sagt.... segist vera móðir okkar! Wolfgang var að því kominn að hlæja. Honum datt skyndilega í hug gamanmynd, sem hann hafði nýlega séð í bíó. En hann stillti sig og leit forvitnislega á Bettinu. Ævintýra- manneskja? En áður en hann hafði

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.