Fálkinn


Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 17

Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 17
Eyjafjallajökull frá Hlíðarenda. Myndin er úr ferðabók Hollands. andi hugsunarhætti foreldra hans og sveitunga. Afleiðingarnar urðu honum bitrar og afdrifaríkar. En sérhvað bíður síns tíma. 5. Ólafur Loftsson hvarf aftur úr Fljóts- hlíð að lokinni gleði jólafrísins. Hann hélt áfram fyrri háttum í Reykjavík, stundaði kvennafar og óreglu. Brátt fóru að berast af honum sögur austur á æskustöðvarnar, og komust til eyrna foreldra hans og velunnara og þóttu miður fagrar. Heyrðist einnig að hann væri í tygi við eina alþekktustu lausa- leiksdrós Reykjavíkur. En þegar líða fór á vor, fór brátt að bera á því, að ráðskona sýslumanns- ins á Hlíðarenda var farin að þykkna allmikið undir belti. Komust brátt á stjá sögur, að Ólafur Loftsson væri vald- ur að þunga hennar. Sýslumannshjón- unum þótti þetta slæm tíðindi. Sýslu- maður færði málið í tal við Loft hrepp- stjóra í Nikulásarhúsum. Hann tók máli sýslumanns vel og lofaði honum að rita Ólafi syni sínum bréf og biðja hann að eiga stúlkuna og snúa til betra líf- ernis. En Ólafur hirti ekkert um skrif föður síns eða ráð og leið svo af sum- arið. Um haustið, þann 21. september, fæddi Guðrún Árnadóttir ráðskona á Hlíðarenda dóttur, var hún skírð og nefnd Guðrún. Loftur Ámundason hreppstjóri í Nikulásarhúsum viður- kenndi fyrir prestinum, að sonur sinn Ólafur væri faðir að barninu. Síðan tók hann meyna að sér og ól upp. Loftur hreppstjóri var siðavandur maður og undi illa við svo búið. Hann sneri sér til vinar síns Vigfúsar sýslumanns Þór- arinssonar og bað hann fulltingis í mál- inu. Sýslumaður brást vel við, því hann hafði einnig beðið álitshnekki, þar sem ráðskona hans, hin mesta myndarstúlka, hafði fallerast með hinum versta lausa- gosa, slíkum sem Ólafur Loftsson var sagður eftir sögnum sem bárust að sunn- an. Um haustið ritar sýslumaður vini sín- um Geir biskupi Vídalín í Reykjavík og segir honum tíðindin af framferði Ólafs: „Doctor Loftsson útrétti það hér eystra á jólum síðastliðins vetrar, að hann er nú faðir orðinn hjá ráðskonu minni og kom nú hingað heppileg í ólest- ina.“ Síðar um haustið ritar sýslumaður aftur til biskups um sama efni og er þá búinn að fá nánari fréttir af líferni og framferði Ólafs Loftssonar. Sýslumaður spyr biskup, hvort það sé satt, sem heyrzt hafi um Ólaf, „að hann sé því- lík hetja, að hann hafi getað barnað fjóra kvenmenn á einu misseri, af hverj- um tvær séu í Reykjavík, ein á Akra- nesi og ein ráðskona þar eystra.“ Sé þetta satt vill sýslumaður, að húsbænd- ur hans reki hann til að kvongast ein- hverri af unnustum sínum fyrir sunnan, „því að Rangárvallasýsla muni ekki uppbyggjast mikið af búskap hans, og faðir hans hirti ekki um búskap hans þar, vildi helzt hafa hann sem fjærst sér, og í vetur spurði hann mig einu sinni,“ segir sýslumaður, „hvort eigi mundi mögulegt að láta Ólaf sigla, svo hann aldrei meir sæi hann.“ Leggur sýslumaður til, að Ólafur Loftsson kvongist Elínu Þórðardóttur frá Hlíð- arhúsum, Sighvatssonar, sem var al- kunn lausaleiksdrós í Reykjavík. Ólaf- ur átti með henni barn í desember 1805, og var það 4. lausaleiksbrot hennar. Auðséð er af bréfum sýslumanns, að hann ber undir niðri talsverða um- hyggju fyrir Ólafi, þrátt fyrir allt. Hann segir: „Mundi Ólafur Loftsson ekki geta átt betri úrkosti, ef satt væri, að faðir Elínar gæti og vildi útvegað honum assistentsstöðu hjá syni sínum á Bíldu- dal.“ Ef til vill er umhyggja sýslumanns svona mikil vegna Lofts föður hans. Sýslumaður vorkennir gamla mannin- um og langar til að fá biskup til að koma syni hans á réttan kjöl. En Ólafs biðu önnur örlög sem brátt verður sagt. Auðséð er af bréfum sýslumanns, að allmiklar sögusagnir hafa gengið um Ólaf Loftsson og líferni hans. Enda spyr sýslumaður biskup, hvort Ólafur „sé þvílík hetja, að hann hafi getað barn- að fjóra kvenmenn á einu misseri." Ekki er það rétt, að Ólafur hafi átt fjög- ur börn á svo skömmum tíma. Auk barn- anna tveggja, sem getið var, átti Ólaf- ur barn með Elínu Egilsdóttir Sandholt í byrjun apríl 1806, og er talið 3. lausa- leiksbrot hans. En 4. lausaleiksbrot hans var með Margréti Sigurðardóttur vinnu- konu í Nesi við Seltjörn, var það Loftur f. 10. janúar 1808, og var Ólafur þá sigldur af landi burt. Tómas Klog land- læknir tók Loft í fóstur og fluttist hann með Klog til Danmerkur. En það er af Guðrúnu Árnadóttur ráðskonu Vigfúsar sýslumanns á Hlíð- arenda að segja, að Vigfús sá henni fyr- ir hinu bezta mannsefni. Hann hefur ekki viljað láta hana gjalda falleringar- innar, enda var vandalaust að gifta hana, því að hún var hin myndarleg- asta stúlka og mikill kvenskörungur. Hún giftist Magnúsi fálkafangara á Ár- bæ í Holtum og varð hjónaband þeirra farsælt. Eftir þessa atburði virðist Loftur hreppstjóri Ámundason hafa hætt að styrkja son sinn til námsins. Gamli maðurinn hefur verið stórlyndur, og ekkert viljað hafa með son sinn meir, þar sem hann sneri á þær brautir sem voru honum lítt að skapi. Ólafur hefur tekið þessu fáskipti af hendi föður síns bannig, að hann hefur ekki lengur haft samband við þau, enda bar hann brátt til annarra stranda. 6. Biskup hefur látið afskiptalaus mál Ólafs Loftssonar, þó að sýslumaður Rangæinga leitaði til hans. Biskup hafði sem sagt ekkert með siðferðisbrot hans að gera, þar sem hann hafði ekki lokið stúdentsprófi og um leið guðfræðinámi þeirrar aldar. En Tómas Klog landlæknir virðist hafa látið framferði Ólafs lönd og leið, enda hefur hann litið allt öðru vísi á lausaleiksbrot, en íslenzkir emb- ættismenn yfirleitt. Þar kom, að Ólafur Loftsson varð út- skrifaður frá landlækni. Haustið 1807 tók hann sér fari með skipi frá Reykja- vík og hugðist sigla til náms við Kaup- mannahafnarháskóla. En í þennan mund stóð ófriðurinn í Norðurálfunni sém Frh. á bls. 28 Sýslumaöur spyr biskup, hvort það sé satt um Ólaf, „að haiin sé þvílík hetja, að bann hafi getað barnað fjóra kvenmenit á einu misseri ..." SÍÐARI HLUTI GREINAR JÓNS GÍSLASONAR FÁLKINN 17

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.