Fálkinn - 30.05.1962, Blaðsíða 6
PANDA DG LANDKDNNUÐUPINN MIKLI
„Það getur verið að fleki sé hæggengari en flugvél“,
svaraði landkönnuðurinn spurningu Panda. „En hann
hefur sína kosti, það er sjaldan, sem þarf að nauð-
lenda fleka.“ En þessi athugasemd sannaði, að jafn-
vel þrautreyndum landkönnuði gat orðið skyssa á,
því að nú lenti flekinn í flúðum og Panda tók eftir því
að þeir stefndu að fossi. „Hjálp“, hrópaði hann, en óp
hans kafnaði í vatnsniðnum.
Þá greip ofsahræðsla, þegar flekinn kom fram á
barminn. Panda reyndi að ná taki á flekanum, en
féll svo niður í fossana og kom í fiskinet eins hinna
innfæddu. „Þakka þér fyrir björgunina“, sagði Panda
kurteislega við hinn klunnalega björgunarmann sinn.
En svipur hans minnti Panda á smettið á Smakkara
kóngi. „Ég er ekki fiskur“, sagði hann, ég er Panda“.
„Panda“, sagði sá innfæddi og sleikti út um, „Panda-
fiskur, nammi — slamm, ný tegund af fiski, verð að
reyna það“.
Hinn heppni veiðimaður gortaði mjög af veiði sinni
og brátt fóru allir veiðimennirnir að segja sögur af
stórum fiski, sem þeir höfðu veitt. Og einn sagði frá
því, þegar hann hafði veitt sjálfan fljótsnykurinn.
„Gerðu ekki gys að fljótsnykrinum, hann getur etið
okkur alla“. Það mátti segja, að þessi viðvörun hefði
komið á réttum tíma, því að allt í einu kom höfuð
upp úr vatninu. „Sjáið þið“, hrópuðu ofsahræddir
mennirnir, „þarna er fljótsnykurinn“.
8 FÁLKINN