Fálkinn - 30.05.1962, Side 20
Jafnan er það svo, að uppi verður fótur og fit
þegar heyrist í nýjum þul í útvarpinu. Menn
deila um rödd hans og lestur, en sjaldan eru
menn á eitt sáttir um það efni. Hvað sem öll-
um deilum líður, þá eru flestir sammála um
það, að þulir útvarpsins hafi viðfelldnar og
þægilegar raddir, enda er það brýn nauðsyn,
að menn, sem daglega lesa í útvarp hafi áheyri-
lega og þægilega rödd, sem hlustendum fellur
alltaf jafnvel í geð, hversu oft sem hún heyrist.
Flestir, sem hlusta daglega á útvarp, þekkja
raddir þulanna, en fæstir þekkja þá í sjón eða
er þeim málkunnugir. Því eru það margir,
sem brjóta heilann um, hvernig þessi þulur eða
hinn sé í hátt og hvort hann sé jafn alúðlegur
og röddin gefur til kynna. Því var það að Fálk-
inn brá sér einn dag upp í útvarp og litaðist um
í húsakynnum þulanna. Er nú ætlunin að kynna
lítilsháttar þá menn, sem sitja að baki hljóð-
nemans.
20
FALKINN