Fálkinn


Fálkinn - 15.05.1963, Síða 6

Fálkinn - 15.05.1963, Síða 6
Óskagjöf fermingarbarnsins er PIERPONTI ARBAIXIDSÚR HEFUR ALLA KOSTIIMA: ★ Höggvarið ★ vatnsþétt ★ glæsilegt ★ árs ábyrgð ★ dagatal ★ óbrjótanleg gangfjöður ★ verð við allra hæfi. ★ Dömuúr — herraúr, glæsilegt úrval. Sendi í póstkröfu um allt land. Garðar Olafssan• ursmiður Lækjartorgi. — Sími 10081. ,FERROGRAPH'dýptarmælar „Ferrograph“ dýptar- mælirinn er útbreidd- asti dýptarmælirinn í smábátum í Englandi. „Ferrograph“ kostar aðeins kr. 13.800.00 frá verksmiðjunum í Eng- Iandi. ,Ferrograph‘ fer sigur- för hér sem annars staðar. Leitið nánari upplýsinga. Einkaumboðsmenn á íslandi: VÉLAH OG SKIM* ÆF. HAFNARHVOLI . SÍMI 18140. UMBOÐSMAÐUR Á AKUREYRI SIGTRYGGUR ÞORBJÖRNSSON, RAFORKU. Sumardagurinn fyrsti og 17. júni. Vikublaðið Fálkinn, Reykjavík. Sú er tilurð þessa bréfs, að ég eins og venjulega, rölti niður í bæ fyrsta dag í sumri með börnin mín og tók þátt í þeim hátíðahöldum sem þar fóru fram. Nú má enginn álíta svo að ég ætli að fara að skammast heldur er ég hér með tillögu eða aðfinnslu sem ég tel að eigi fullan rétt á sér. Mér finnst að hátíða- höldin á þessum dögum sumardaginn fyrsta og 17. júní séu fallin í of þröngar skorður. Þetta er sama pró- grammið ár eftir ár og aldrei kemur neitt nýtt og skemmti- legt fram sem gaman er að. Nú má vel vera að erfitt sé að sjá um þessi hátíðahöld og að erfitt sé að brjóta upp á einhverju nýju. Þetta sé sá búningur er bezt henti og annað verði ekki fundið. En má ekki reyna? Er útilokað að breyta eitthvað til og reyna eitthvað nýtt? Það er orðið meira en hundleiðinlegt að hafa þessi sömu prógrömm ár eftir ár. ég vona að þið komið þessari hugmynd minni á framfæri. Svo þakka ég ykkur gott blað um leið og ég sendi ykk- ur mínar beztu kveðjur. Virðingarfyllst, K. R. J. Svar: ViÖ þelckjnm lltiö til þessa máls en líklegt er aö ekki sé auöleystur sá vandi aö finna nýja háttu á þessum hátlöahöld- um ár hvert. En viö komum þessari aöfinnslu þinni á fram- færi og vonum aö liún veröi lesin af þeim sem hafa meö þessi mál aö gera. Vilja ekki dansa. Fálkinn Reykjavík! Kvenfólkið hefur víst alltaf og verður víst alltaf karl- mönnunum til einhverra leið- inda. Þó virðist mér þetta vera að ágerast í seinni tíð hvað svo sem því veldur. Ég er utan af landi eins og þú ef til vill sérð á póststimpl- inum og um daginn skrapp ég vikutíma í bæinn. Eitt af því sem ég gerði mér þá til skemmtunar var að skreppa á skemmtistað. Þetta var í alla staði almennilegur og vel tilhafður staður og þarna gat maður fengið keypt í glasið sitt það sem templararnir ekki vilja. Að vísu fannst manni nokkuð um verðið en það þýðir víst ekki að horfa í svoleiðis þegar maður er að skemmta sér. Fólkið á þessum skemmtistað fannst mér líka mjög til fyrirmyndar, vel- klætt og ekki hávaða mikið. Eitt var þó sem ég get ekki látið hjá líða að minnast á. Kvenfólkið vildi ómögulega dansa og að tveimur undan- skildum þá neituðu allar sem ég bauð upp. Þetta finnst mér ókurteisi af verra taginu og þekkist ekki í mínu byggðar- lagi. Ég vil taka það fram til að koma í veg fyrir misskiln- ing að ég var ekki drukkinn því þótt ég sé ekki á móti víni þá geri ég lítið af því að drekka það. Mér finnst það sem ég hef sagt frá hér að of- sem eigi þegar í stað að upp- ræta. Svo þakka ég ykkur blaðið og þá sérstaklega framhalds- söguna og Nikka Nös. Ykkar einlægur, Bóas. Svar: ViÖ látum í Ijósi okkar inni- legustu samúöarkveöjur vegna þessa máls Bóas minn og erum þér sammála um aö þetta er hin mesta ókurteisi. Þú segist ekki hafa veriö fullur og viö trúum þér fyllilega um þaö, og sjáum ekki nokkra ástæöu hjá kvenfólkinu til aö neita þér um dansinn. En eins og þú sagöir í uppliafi þá er nú kvenfólkiö alltaf svolítiö skrltiö. Það var eitt sinn í vetur að okkur barst bréf frá Billý þar sem beðið var um texta er byrjar „Ég verð færður í fangelsi að morgni“. Ekki kunnum við þennan texta en báðum lesendur að senda hann ef einhver kynni. Það stóð heldur ekki á svörunum og við höfum nú í nokkrum blöðum birt texta sem okkur hafa borist. Vonum við að Billý hafi þegar fengið nóg og uni glöð við sitt. Aftur á móti liggja hér hjá okkur milli tuttugu og þrjátíu bréf með þessum texta sem við sjáum okkur ekki fært að birta en þökkum lesendum kærlega fyrir þeirra mörgu svör. Um daginn barst okkur skemmtilegt bréf sem var svo- lítið öðruvísi en bréfin til okk- 6 FALKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.