Fálkinn


Fálkinn - 15.05.1963, Síða 15

Fálkinn - 15.05.1963, Síða 15
lézt um þingtímann 2. ágúst 1899. Hann sat alls á þingi 32 ár, og átti lengi met í þingsetu, og var því ekki hnekkt fyrr en fyrir nokkrum árum. Benedikt var mikill málafylgjumað- ur og einn mælskasti maður um alla sögu. Hann var skörungur um flesta hluti, mikill atkvæðamaður á alþingi og óvæginn við andstæðinga. Benedikt Sveinsson varð arftaki Jóns Sigurðsson- ar í sj álfstæðisbaráttunni og sannur leiðtogi þess hluta þjóðarinnar sem lengst vildi halda um kröfurnar á hend- ur Dönum. En þess verður að gæta, þegar þessir mikilhæfu foringjar eru bornir saman, að á árunum eftir miðjan níunda tug síðustu aldar, var meira af menntuðum og mikilhæfum mönnum á alþingi, en nokkurn tíma fyrr. Veturinn 1880—81 er einhver sá harð- asti vetur 19. aldarinnar. Frosthörkur voru afskaplegar og búpeningur féll víða um sveitir. Landið var illa búið undir harðindi, verzlun var í hinum mesta ólestri og atvinnutæki frumstæð, jafnt til sveita og sjávar. Framsýnustu menn landsins sáu, að til þess að þjóðin ætti að geta lifað sómasamlega í land- inu og standast straumköst komandi tíma, yrði að spyrna við fótum, og hefja nýja sókn til framfara og frelsis. Fólk hafði síðustu árin flúið land, auðsjáan- legt var, að harðindin myndu stórlega auka fólksflóttann til Vesturheims. Vesturheimsfaraagentarnir létu heldur ekki á sér standa, að brýna fyrir fólki, að tilgangslaust væri að búast við betri afkomu á íslandi. En hins vegar væru næg tækifæri til góðrar lífsafkomu í nýja heiminum. Enda varð þróunin sú næstu árin, að fólkið flutti í stórhópum til Ameríku. Talið er að árið 1887 hafi um 2000 manns flúið til Vesturheims. Framsýnustu menn landsins sáu, að hér yrði að hefja nýjan áróður. Þjóðin yrði að öðlast að nýju trú á sjálfa sig og landið. Til þess var kjörið ráð, að efla sjálftæðisbaráttuna og nota fjár- ráðavald alþingis til þess að hvetja þjóðina til framfara og sóknar. Þessi leið var farin undir forustu mikilhæfra forustumanna og leiddi til mikilla tíð- inda og góðra, þegar stundir liðu. Benedikt Sveinsson skildi þarfir þjóð- arinnar vel í þessum efnum. Hann var hatramur andstæðingur dönsku stjórnar- innar og átti henni grátt að gjalda. Hann var sýslumaður í einu harðbýl- asta héraði landsins. Hann var einnig vitandi þess, að fólkið í sýslu hans var að vakna. Þar voru í nánd veðrabrigði í hagrænum efnum, sem efldu trú þess á landið og möguleika framtíðarinnar, þrátt fyrir harðindi og afskiptaleysi hinna hálfdönsku embættismanna. Jón Sigurðsson alþingismaður á Gautlönd- um, var hvatamaður að miklum átök- um í félagsmálum Þingeyinga. Hann var samherji Benedikts og mikill vinur. Nýkjörið alþing kom saman 1. júlí 1881 í nýbýggðu húsi við Austurvöll i Reykjavík. Þrátt fyrir harðindi í landi og erfiðleika margs konar í efnahagslífi þjóðarinnar, var vor í lofti. Á þessu alþingi kom fram frumvarp, sem átti eftir að marka stefnuna í sjálfstæðis- málinu næsta ársfjórðunginn. Annmark- ar „frelsisskrárinnar“ voru orðnir aug- ljósir. Það var því upprunnin stundin til þess að knýja á endurskoðun, sem alþingismenn höfðu raunverulega boð- að í bænarskrá til konungs á fyrsta þinginu eftir gildistöku hennar. Á alþingi sumarið 1881 bar Bene- dikt Sveinsson fram frumvarp til endur- skoðunar á stjórnarskránni. Frumvarp- ið dagaði uppi eftir talsverðar umræð- ur. Landshöfðinginn, Hilmar Finsen, reyndi að þegja frumvarpið í hel og tók ekki þátt í umræðum um það. Árið 1883 bar svo Benedikt frumvarpið fram að nýju. En það fór á sömu leið. Þá voru orðin landshöfðingjaskipti, en hinn nýi landshöfðingi, Bergur Thor- berg fór að dæmi forvera síns og tók ekki þátt í umræðum um frumvarpið. En brátt átti það frumvarp eftir að verða hreyfiaflið í stjórnmálum lands- ins, þó það hlyti ekki afgreiðslu að þessu sinni. Eins og þegar var sagt, voru þeir Framh. á bls. 28. FÁLKINN 15

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.