Fálkinn - 15.05.1963, Blaðsíða 7
ar eru vön að vera. Og þar
sem þetta er skemmtilegt bréf
þá ætlum við að birta það
enda þótt bréfritari hafi beð-
ið okkur að gera það ekki.
Kæra pósthólf!
Þú hefur hjálpað svo mörg-
um. Gætirðu nú ekki hjálpað
mér? Og komið þessari mynd
á framfæri í einhverju góðu
blaði. Sem fyrst. (P. S., ekki
birta bréfið).
Þórarinn Jón Magnússon
11 ára Hafnarfirði.
Og bréfinu fylgdi þessi
mynd.
Rex Gildon og Cliff Richard.
Kæri Fálki!
Ég' hef ánægju af að lesa
þig og ég tala nú ekki um
síðan nýja framhaldssagan
byrjaði. Hún er fyrirtak. Mig
langar til að biðja þig um að
birta fyrir mig heimilisföng:
Rex Gildon og Cliff Richard,
ef þú mögulega getur komið
því við. Ég ber mikla virð-
ingu fyrir þessum mönnum
sem ég skrifa um að ofan. Ég
er því sólgin í heimilisföng
þeirra eins og gefur að skilja
því þeir eru myndarlegir og
duglegir að koma sér áfram.
Svo þakka ég þér.
Ein verulega hrifin.
Svar:
Heiviilisföngin eru þessi: Bex
Gildon, Gloria Film Verleili, 5
Karlsplatz, Munchen 2, Deutsch-
land. Cliff Richard, Brittania
Film Distributors Ltd., 10 Green
Street, London Wl. Viö vonum
aö þessar upplýsingar nœgi þér
til aö komast í bréfasamband viö
þessa ágætu menn.
Leiðrétting.
Sveinn Benediktsson hefur
komið að máli við blaðið.
Tjáði hann okkur, að hús það
við Skólavörðustíg, sem talað
er um í greininni Hús skáld-
anna og kallað Tobbukot,
hafi aldrei verið kallað því
nafni, heldur alltaf nefnt
hús Þorbjargar Sveinsdóttur.
Hafi fyrrnefnt uppnefni að-
eins komið fram í Alþingis-
rímum, en ekki festst við
húsið.
Um þéringar.
Háttvirta blað!
Ég hef í vetur og vor fylgst
með umræðum sem fram hafa
farið í blaðinu (Pósthólfinu)
um þéringar. Fátt hefur þar
komið fram merkilegt og
ekkert sem talizt getur veru-
lega snjallt. Nú megið þið
ekki halda að ég sé að skrifa
ykkur þetta bréf til að koma
með það snjalla. Það er mis-
skilningur. Ég skil bara ekki
í því fólki sem getur látið sér
detta í hug að fella niður þér-
ingarnar. Þær eru svo nauð-
synlegar oft og mörgum sinn-
um að mér finnst óþarfi að
ræða um í fullri alvöru að
leggja þær niður. Á rudda-
mennska að vaða hér uppi
og á að bera almenna kurteisi
fyrir borð? Ég spyr bara
svona. Hver eru rök þeirra
sem vilja fella niður þéring-
arnar? Það væri fróðlegt að
sjá þau en ekki eitthvert
ofstæki.
Svo ráðið þið alveg hvort
þið birtið þetta bréf eða ekki.
Þið getið hent því í bréfa-
körfuna. Þau eru víst ekki
fá bréfin sem lenda þar.
U. R.
Og EIvis Presley.
Kæri Fálki!!
Mig langar til að biðja þig
að hjálpa mér. Getur þú ekki
frætt mig um heimilisfang
Elvis Presley Helzt heima hjá
honum, ég á við það sem
kallað er lögheimili. En ef
það er ekki hægt, þá bara hjá
kvikmyndafirmanu sem hann
vinnur hjá, eða einhvers stað-
ar annars staðar.
Svo þakka ég kærlega fyrir.
Inga.
Svar:
Því miöur höfum viö ekki
lögheimili Elvis en viö höfum
hins vegar kvikmyndafirmaö
sem hann vinnur hjá. Samkvœmt
því er utanáskriftin: Elvis Pres-
ley Paramount Studios, 51^2
Marathon Street, Hollywood,
California, V. S. A.
ÞETTA ER BORÐSTOFUSETT HINNA VANDLÁTU
a ' "M 1 .'•'' •;•.
jjjfi U^ggggJ Æ ■
TEIKNAÐ AF
SIGVALDA
THORDAR-
SON
FRAMLEITT
AF
HELGA
EINARSSYNI
*
GLÆSILEG-
ASTAOG
YANDAÐ-
ASTA SETT
SEM NÚ ER A
MARKAÐNUM
HÍBVLAPRVÐI HALLARMÚLA SÍMI 38177
fXlkinm 7