Fálkinn - 15.05.1963, Side 26
KVENÞJOÐIN
Ritstjóri: Kristjana Steingrímsdóttir, húsmæðrakennari.
Fyrst þarf að undirbúa hárið. Burstið
það vel og lengi og núið hársvörðinn
með fingurgómunum, þar til það hitar
í hann. Burstið hárið lokk fyrir lokk
frá hársverði og upp. Það losar um
óhreinindin, styrkir hársvörðinn og
starfsemi fitukirtlanna.
Vætið nú hárið vel með volgu vatni.
Bezt er að gera það undir handúðaran-
um. Nú er sápan sett í. Núið henni í
með föstum öruggum handtökum frá
hnakka fram að enni. Þvoið hvirfilinn
sérstaklega vel, þar eru mestu óhrein-
indi, munið einnig eftir undirhárun-
um. Núið hárbroddana milli fingurgóm-
anna. Sé hárið litað og með „perma-
nenti“ í eru þeir frekar óhreinir. Skolið
með volgu vatni, frá hnakka að enni.
Látið bununa koma beint niður á hvirf-
ilinn. Endurtakið þetta og gætið þess
að skola vel í seinna skiptið. Endið með
köldu vatni, ef þið þolið, það lokar
hársverðinum.
Þvoið hárið með gætni, nuddið það
ekki meðan það er rennandi vott og
greiðið það ekki strax. Burstið hárið
meðan það er hálfblautt. Þá glansar
það betur og auðveldara er að leggja
það. Vefjið hárið upp hálfblautt — það
má hvorki vera of blautt, né of þurrt.
Veljið hárþvottaefnið með vand-
virkni. Munið að það bezta er aldrei of
gott. Hægt er að fá sápu, sem ætluð er
fyrir feitt, þurrt eða eðlilegt hár. Marg-
ir kvarta undan því að hárið verði feitt
og leiðinlegt og flasa myndist. Þetta
getur átt rætur sínar að rekja til þess,
Framh. á bls. 28.
Það sparar bæði tíma og rými og léttir ótrúlega vinnu við
heimilisstörfin, þegar allt er haft í röð og reglu. Það er mun
auðveldara að geta allt að því með lokuð augu gengið að
hlutunum en þurfa að róta lengi til að leita að þeim. Festið
því lykkju í hvern bursta og síðan krók innan á skáphurð-
ma — og hengið svo burstann á sinn stað eftir hverja notkun
USTIN AÐ HAFA ALLT í RÖÐ OG REGLU
26
FALKINN