Fálkinn


Fálkinn - 09.12.1963, Page 61

Fálkinn - 09.12.1963, Page 61
lengi fengist við þann starfa og gert margar myndir. Hann hefur átt all viðburðaríka ævi var m. a. flugmaður í heim- styrjöldinni fyrri. Hann hefur verið kallaður Maðurinn sem ekki gerir mistök. Þessi mynd gerist í Afríku og er tekin í Tanganyika. Er hún byggð á bók eftir Harry Kurnitz. John Wayne fer með aðal- hlutverkið og þarf víst ekki að kynna hann frekar hér. Hardy Kriiger fer með stórt hlutverk í myndinni. Hann er einn af kunnustu yngri þýzku leikur- unum um þessar mundir. Hin ítalska Elsa Martinelli fer með aðalhlutverkið. Áður en hún hóf kvikmyndaleik var hún sýningarstúlka og Ijósmynda- fyrirsæta, og þá hófst ævin- týrið. Maður nokkur, sem heit- ir Kirk Douglas og sést hefur stöku sinnum á hvíta tjaldinu, sá mynd af henni í Life og bauð henni hlutverk í mynd sem hann var að gera The Indian Fighter. Það var árið 1956. Og eins og sjá má hér að framan eigum við von á mörg- um góðum myndum um jólin og eru nokkrar þeirra líklegar til að hljóta miklar vinsældir. Má segja að sjaldan hafi jóla- myndirnar verið betri en í ár. En hér eru ekki upptaldar allar myndirnar því Gamla Bíó og Nýja Bíó höfðu, þegar þetta er skrifað, ekki tekið neina ókvörðun. Kiaftaverkið Framhald af bls. 57. inu með því að flytja DNA á milli hópanna. Þetta var gert á hugvitssaman hátt, og sjá — sumar bakteríurnar í fyrri hópnum urðu ónæmar fyrir eitrinu. Þannig fékkst sönnun fyrir því, að erfðaeiginleikarn- ir væru skráðir í kjarnasýruna DNA. En hvernig fer DNA að því að stjórna allri uppbygg- ingu mannsins frá örlitlu eggi til hugsandi veru? Það er ekki nóg að eiga hugvitsamlegt skrá- setningarkerfi, það þarf líka að koma teikningunum til starfs- mannanna. Hvernig fer þetta mjósnúna, langa mólekúl að stjórna byggingarverksmiðjum mannslíkamans. Menn hafa lengi undrast yfir félagslyndi termítanna. Sam- starfið innan eins termítabús er svo heilsteypt, að hvert einasta verk sem unnið er, er fyrst og fremst fyrir þjóðfél- »gið en ekki fyrir einstakling- inn sjálfan. Termítarnir eru svo háðir hvorum öðrum, og þá fyrst og fremst drottningu sinni, að ef hún deyr, deyja allir þegnar búsins með henni. Fólk í heitari löndum hagnýt- ir sér þetta, þegar það vill losa sig við skaðræðistermíta, sem byggt hafa drottningarríki sitt í húsagrunni þeirra. Það er leit- að að drottningunni og hún drepin. Stuttu seinna deyja all- ir þegnar hennar af einhverj- um óskiljanlegum ástæðum. Það má líta á termítabú sem eina veru. Eitt dýr sem saman stendur af mörgum aðskildum einingum, sem allar vinna fyrir heildina. En það má einnig líta á mannveruna sem eitt termíta- bú. Maðurinn samanstendur af milljörðum og aftur milljörð- um af frumum. Hver fruma er einstaklingur út af fyrir sig, sem aflar sér fæðu, dafnar og skiptir sér, en vinnur samt allt sitt verk í þágu fyrir heildina. Flestar frumur mannsins eru staðbundnar og því aðeins múrsteinar í líkamsbyggingu mannsins, en sumar eru þó al- gjörlega fríar ferða sinna, eins og til dæmis hvítu blóðkornin í blóðinu, og því sjálfstæðir einstaklingar á líkan hátt og termítarnir innan drottningar- búsins. Það eru frumurnar sem taka höndum saman og sameina krafta sína í formi mannslík- amans. Þróunin hefur kennt þeim, að á þann hátt tekst þeim bezt að fullnægja þörfum sín- um. Þessi samvinna þeirra er þó fyrir löngu komin á það hátt stig, að samsteypufélagið (maðurinn) er orðið miklu þýðingarmeira en meðlimirnir (frumurnar). Meðlimirnir eru þó enn þungamiðjan, og það er í framleiðslu þeirra, sem DNA sýslar fyrst og fremst með. Aðalbyggingarsteinar frum- anna eru próteinin, sem eru flókin eggjahvítusambönd. Þau eru mjög margvísleg að gerð, og þjónar hver gerð sínu mark- miði í uppbyggingu frumanna. Byggingarverksmiðjurnar fyrir próteinin finnast í útfrymi frumanna, og þar eru þau smíðuð í fjöldaframleiðslu eftir teikningum, sem DNA lætur í té. En nú kemur babb í bátinn. DNA er aðeins í frumkjörn- Framhald á næstu síðu. Vóruúrvnl IflcQQíirinii er indæll bragðið eftir því. úrvulsvorur ID . JOHNSON & KAABER hA FALKINN 61

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.