Fálkinn - 26.04.1965, Síða 34
Klassíska
flóttamanna-
platan
■
■
■
■
Sex
heimsfrœgir
píanóleikarar
*
1
fyrsta
sinn
á
International
Piano
Festival
hljómplötu
EinstœS 12" LP hljómplata
í stóru margra blaSa albúmi, gefin út til aðstoðar fyrir
flóttafólk í heiminum. Tilvalin gjöf.
Dýrmœt eign. Verð aðeins kr. 275.00.
*
HLJÓMPLÖTUDEILD
heimsku og vanþakklœti ung-
frúin hefði sýnt er hún kunni
ekki að meta þann heiður. Hvað
það snerti tók landeigandinn
aftur á móti algerlega málstað
dóttur sinnar; kvaðst einskis
meta aðaishyski það, og telja
sér og œtt sinni fremur skömm
en hitt að mægjast við það og
hefði dóttir Soffía þar sýnt og
sannað svo að ekki var um að
villast að hún væri skilgetin
dóttir hans. Við þetta reiddist
systir hans svo, að hún hélt á
brott með þeim ummælum, sem
áður er getið, en um leið og
landeigandinn tók málstað dótt-
ur sinnar af heilum huga, var
sem aftur vaknaði öll ást hans
til hennar. Og þar sem hann
hafði í minni orð herra AU-
worthys, þess mæta manns, að
ekki sæmdi að beita hana neinni
þvingun, og þar sem hann þótt-
ist hafa heimt hana aftur, eftir
að hún hafði dvalizt með systur
hans, sem hann hafði minna
álit á nú en nokkru sinni, venti
hann kvæði sínu í kross og það
svo að um munaði. Og þegar
hún hét honum svo því, að eftir
þetta skyldi það vera hennar eina
takmark að annast hann sem
bezt og helga lif sitt honum ein-
um, var honum öllum lokið. Þá
var það, að hann faðmaði hana
að sér og kyssti, og hét henni
þvi á móti, að aldrei skyldi hann
framar neyða hana til nokkurs
hlutar; þau skyldu standa saman
og ekkert skilja þau að — sizt
af öllu systir hans, jómfrú West-
ern.
FERTUGASTI KAFLI.
Tvö sendibréf.
Morguninn eftir að þetta gerð-
ist, komst herra Allworthy að
því fyrir hendingu, að Svarti
Georg hafði falið manni nokkr-
um að ann'ast fyrir sig kaup á
litilli jörð og kom honum það
einkennilega fyrir sjónir, þar
sem hann vissi, að Svarti Georg
átti ekki neina peninga. Maður-
inn kvað það vera öðru nær,
hann hefði þegar afhent sér 500
sterlingspund í þessu skyni. Tók
herra Allworthy þá að gruna
margt og bað hann að sýna sér
CONSUL COKTINA
bílaldga
magnúsar
skipliolti 21
§ímar: 21190-21185
Uaukur ýulfttuHtfMcH
HEIMASÍMI 21037
sjóðinn. Gerði hann það, og bar
Herra Allworthy þegar kennsl
á, að þar var kominn sjóður sá,
sem hann hafði sjálfur greitt
Tom Jones forðum áður en leiðir
þeirra skildu. Sagði hann mann-
inum, að þessir peningar hefðu
áður verið sín eign, og væri hann
þess fullviss, að ekki hefði Svarti
Georg komizt yfir þá með heið-
arlegu móti. Og þar sem maður-
inn vissi, eins og raunar allir,
að herra Allworthy var maður,
sem óhætt var að trúa, féllst
hann á að varðveita bæði pen-
ingana og leyndarmálið um hríð,
þangað til það skýrðist.
Vera má að þessi atburður
hafi orðið til þess, að herra All-
worthy tók að gruna, að ef til
vill væri Svarti Georg ekki sá
eini, sem svikið hefði Tom Jones.
Og þegar hann kom heim aftur
til ekkjunnar, var leigjandinn
þar fyrir, sem áður er nokkuð
frá sagt; kvað ekkjan hann hafa
miklar og góðar fréttir að færa,
því að Fitzpatrick væri' eikki
einungis enn á lífi og úr allri
hættu, heldur hefði þessi mað-
ur heimsótt hann og hefði Fitz-
patrick játað fyrir honum, að
hann hefði ráðist á Tom Jones,
sem þá hefði að sjálfsögðu ver-
ið tilneyddur að verja sig, og
mundi þessi vitnisburður ger-
breyta málstað Tom Jones,
þannig að hann yrði dæmdur
sýkn saka. Hafði ekkjan um það
mörg orð, að alltaf hefði hún
►
34
FALKINN