Fálkinn


Fálkinn - 26.04.1965, Blaðsíða 27

Fálkinn - 26.04.1965, Blaðsíða 27
Auðvitað Agfa Rapid 7 ■ RAPID ER NÝ AD- FERÐ SEM GERIR ÖLEUM KLEIFT AÐ TAKA GÓÐAR MYNDIR Rapid Hvað er Þér leggið Rapid-ka- settuna á myndavélina. lokið henni, snúið þrisv- ar sinnum, myndavélin er tilbúin til notkunar. i stjornurnar Kæri Astró, Ég er fædd 1947. Mig langar að vita eitthvað um fram- tíðina og hvaða vinna hentar mér bezt. Einnig langar mig að vita um óstamálin, hvort ég giftist ung eða ekki. Og í hvaða merki mun maðurinn minn þá verða? Hvernig verður heilsan? Er ráðlegt fyrir mig að fara út í eitthvert sérnám? Með fyrirfram þakklæti, Lillý. Svar til Lillýjar: Þú munt að öllum líkindum giftast í seinna lagi, en ásta- málin munu yfirleitt ganga vel hjá þér, þó að þér hætti til að vera nokkuð fljótfær stund- um. Það býr mikill eldur og orka í þér, en á sviði ástamál- anna ertu fremur kaldlynd. Þú hefur merki Vatnsberans á geisla sjöunda húss, og er því mikið af vonum þínum bundið við hjónaband og ástamál, því giftingunni eru tengdar vonir til að geta starfað meira að félagsmálum eða að einhverju starfi, sem hugur þinn hefur lengi staðið til. Allar líkur eru einnig á, að maður þinn verði nokkuð eldri en þú. Stundum bendir merkið á geisla sjöunda húss til sólmerkis mannsins, sem maður giftist, en það þarf þó ekki að vera, enda held ég að maður fæddur í Vatnsbera- merkinu mundi einungis æsa upp eldinn í þér. Þú munt að öllum líkindum fyrr eða síðar hafa löngun til að koma fram opinberlega. í fimmta húsi eru Sólin, Merkúr og Venus í Bog- mannsmerkinu. Þessar plánet- ur þarna finnast oft í kortum þeirra, sem koma fram opin- berlega og þá í sambandi við leiklist og ýmislegt þess háttar. Þú hefur Ljónsmerkið rísandi; það gefur einnig hæfileika til listrænnar tjáningar ekki sízt þar sem það er í þessu tilfelli í góðri afstöðu við Sól og Mána. Þetta merki gefur þér talsvert mikla metnaðargirni og gerir þig áhugasama um að verða framar öðrum í lífinu. Þú munt ávallt leitast við að gera þitt bezta og munt ekki sætta þig vel við að verða aðeins í öðru sæti á hvaða vettvangi sem er. Þú ert mjög sterk í hinum svo- kölluðu eldmerkjum og þar af leiðandi býrðu yfir mikilli orku og skapi, en ert ekki að sama skapi tilfinninganæm. Þú verður um fram allt að gæta þess ,að skapsmunirnir bitni ekki of mikið á öðrum. Þú verður að læra að stjórna þeim. Þú hefur löngun til ferða- laga til útlanda, og að öllum likindum munt þú verða bú- sett erlendis um lengri eða skemmri tíma, en hvar sem þú verður búsett mun heimilislíf þitt verða ánægjulegt. Ef þú ætlar þér að fara út í nám, er það fyrsta skilyrðið fyrir þig að þú gerir þér fulla grein fyrir því út í hvað þú ert að fara og athugir allar hliðar gaum- gæfilega því að þá, og aðeins þá, mun þér ganga vel í því námi sem þú tekur þér fyrir hendur. Nú sem stendur er mjög hagstætt tímabil fyrir þig til að gera áætlanir um fram- tíðarstarf, því að Þó þú giftist er ekkert því til fyrirstöðu að þú hafir lært til einhvers þess starfs, sem þér kæmi að gagni jafnvel þó ekki væri um fullt starf að ræða. Þú munt ekki una því vel að vera húsmóðir, sem sér ekkert út yfir óhreina diska og þarf að sitja heima og vera áhorfandi. Þú ert list- ræn og þér munu bjóðast næg tækifæri. FALKINN 27

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.