Fálkinn - 26.04.1965, Blaðsíða 48
HVAÐ GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl:
Atvinna þín mun nú gefa af sér meiri tekj-
ur en oft áður. Þegar þessi vika er liðin, verð-
ur þú án efa reynslunni ríkari hvað samstarfs-
menn þína snertir. Smá ferðalag seinni hluta
vikunnar væri upplífgandi.
NautiS, 21. apríl—21. mai:
Þú munt verða nokkuð vel upplagður fyrri
hluta vikunnar og munt því hafa hug á að
vera meira úti að skemmta þér en venjulega.
Þú gætir einnig lent í ástarævintýri, en hætt
er við að einhverjir verði fyrir vonbrigðum
með gang mála.
Tvíburarnir, 22. maí—21. júní:
Fréttir af vini þínum í fjarlægð vekja
ánægju þína. Þótt þú hafir hug á að njóta
hvíldar og skemmtunar með fjölskyldu þinni,
munu einhver óvænt atvik koma í veg fyrir
að úr þessu geti orðið að mestu leyti.
Krabbinn, 22. júní—23. júlí:
Föstudagurinn er ekki heppilegur til að hefja
ferðalag. Smá heimsóknir tii vina munu verða
þér til skemmtunar. Það gæti sett að þér leið-
indi, ef þú leiddir hugann of mikið að því
hvað nágrannarnir segja.
LjóniS, 2b. júlí—23. ágúst:
Möguleikar þínir til að ná árangri £ starfi
og auka um leið tekjurnar eru nokkuð miklir,
svo framarlega sem þú sýnir ekki fljót.færni.
Föstudagurinn mun verða þér að mörgu leyti
nokkuð erfiður, hvað fjármálin snertir.
Meyjan, 2i. ágúst—23. sept.:
Fijótfærnislegar ákvarðanir geta aðeins haft
illar afleiðingar fyrir persónuleg vandamál, en
það má með lagni bæta úr ýmsu ssm aflaga
fer. Forðastu að vera að rifja upp gamlar
væringar.
Vogin, 2i. sept.—23. okt.:
Reynslan ætti að hafa kennt þér, að aðeins
lagni og harðfylgi geta rétt við fjárhaginn.
Þú ættir að fara gætilega með heilsuna seinni
hluta vikunnar, því hætt cr við að gömul mein-
ssmd skjóti upp kollinum að nýju, ef ekki er
farið varlega.
Drekinn, 2i. okt.—22. nðv.:
Þessi vika lofar nokkuð góðu um samband
þitt við maka þinn eða aðra þá sem þú hefur
afskipti af, þó mun föstudagur og laugardagur
ekki verða þér til ánægju, hvað ástamál og
skemmtanir snertir.
BogmaSurinn, 23. nóv.—21. des.:
Heimilis og fjölskyldulífið gæti orðið nokkuð
árekst asamt seinni hluta vikunnar. Þó mun
heilsufarið verða til þess að vinnan gengur auð-
veldlegar fyrir sig en ella.
Steingeitin, 22. des.—20. janúar:
Athygli annarra mun dragast að þér £ viku-
lokin. Reyndu því að koma þvi svo fyrir, að
persónuleg hagsmunamál þín veki athygli ann-
arra. Þó þú hafir löngun til að skemmta þér,
þá ættir þú að vera sem minnst á ferðinni.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. febrúar:
Þú ættir sem minnst að skipta þér af fjár-
málum þessa viku og endilega forðast að stofna
til skulda og óviturlegra fjárfestinga. Sérstak-
lega verður föstudagurinn erfiður, hvað þetta
snertir. Aftur á móti er heimilislíf þitt með
miklum blóma.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Spennan milli þín og maka þíns og félaga
eykst þegar á vikuna líður. Reyndu að draga
úr þessu með því að beina athyglinni að ein-
hverju öðru til dæmis með því að skipuleggja
smá ferðalag.
48
FALKINN