Fálkinn


Fálkinn - 26.04.1965, Blaðsíða 38

Fálkinn - 26.04.1965, Blaðsíða 38
Tvær laglegar, sænskar stúdínur, sem eru á ferðalagi á Ítalíu fá sér smá ferð um borgina, m. a. til að sjá Forum Romanum. Þær eru í fyllsta máta aðlaðandi, ljóshærð- ar, grannar og fagurlega vaxnar. Auðvit- að komast þær ekki hjá því að vekja eftir- tekt; karlmenn á vegi þeirra fylgja þeim eftir með augunum, aðrir flauta og láta í Ijós aðdáun sína. En það er eitt sem fer virkilega í taugarnar á þeim; nokkrir unglingspiltar hafa fylgt þeim eftir alla leið frá hótelinu, og þeir eru vægast sagt frekjulega nærgöngulir. Þeir skáskjóta sér í veg fyrir þær, vilja grípa um hendur þeirra og reyna að hefja samræður, en á svo ruddalegan hátt, að stúlkunum lízt hreint ekki svo á blikuna. Þegar þær koma inn í Forum sjá þær, að á bekk þar sitja tveir ungir menn, er leika á gítar og syngja nýjustu sumarlögin. Skyndilega koma þeir auga á þær sænsku og hina ófýsilegu fylgdarmenn þeirra. Sem örskot þrífa þeir fram úr tösku tvær sænskar stúdents- húfur og setja á höfuð sér . . . ganga síðan hröðum skrefum til stúlknanna, sem eru nú komnar í hálfgerð slagsmál við fylgdar- menn sína. Piltarnir tveir með stúdents- húfurnar ráðast þegar á hina piltana og reka þá á flótta með miklum glæsibrag. Hrifnar og þakklátar heilsa þá sænsku stúlkurnar riddurunum tveim, er segja á bjagaðri sænsku, að þeir hafi stúderað stutta stund við Uppsala-háskóla, og þeim sé engin ánægja meiri en að fá að bjarga þessum fallegu fulltrúum hins dásamlega lands frá því að lend í klónum á — papa- galli. — Og auðvitað bjóðast þeir til að sýna ungu dömunum hið markverðasta þar í nágrenninu — kynni hafa tekizt. Stúlkurnar yrðu skrýtnar á svipinn, ef þær yrðu síðan vitni að því, er bjargvætt- ir þeirra sitja daginn eftir yfir glasi með hinum freku fylgdarmönnum og lýsa fyr- ir þeim, hve dásamlegar þær sænsku hafi verið. Þessir ungu menn eru nefndir „papa- galli“ (í eintölu: papagallo), sem þýðir nánast „páfagaukar“, en er notað yfir þá ítalska karlmenn, er upp á eindæmi og eigin spýtur taka að sér að stytta erlend- um ferðakonum stundir, gera ferðina ör- lítið spennandi og veita þeim ýmsar

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.