Fálkinn


Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 8

Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 8
helmingi minni en allir sem eitthvað mega sín? Auðvitað vorum við höíð útundan. Við komumst ekki upp með að sitja í stássstof- unni innan um gestina og láta ljós okkar skina öll kvöld. Það var ekki til neins fyrir okkur að öskra á sjón- varpið þegar pabbi vildi hafa frið og ró. Okkur leyfðist ekki einu sinni að svara fyrir okkur, því að þá vorum við hortug. Ég man eftir kerlingunni, sem kallaði mig litlu, hvítu músina. Ég þakkaði henni fyrir og sagði, að það gleddi mig að vera ekki stór, grá rotta eins og hún. Móðir mín flengdi mig fyrir hortugheitin. Okkur kom ekki heldur til hugar að ganga í búðir og stela. Við tókum ekki búrhníf- inn hennar móður okkar og myrtum hálfa fjölskylduna. Foreldrar okkar vissu nefnilega ekkert annað um uppeldisaðferðir en það sem heilbrigð skynsemi sagði þeim. Þau vissu að vandamál átta ára drengs leysast með því einu að hann verði níu ára. Ástarsorgir fimmtán ára tánings eru venjulega fyrir bí á sextánda árinu og svo framvegis. Vitanlega eru táningarnir í dag óhamingjusamir. Þeir mega líka vera það fyrir mér. Mér finnst alltof mikil áherzla hafa verið lögð á rétt barnanna. Til hvers ættu börn að hafa einhvern rétt? Þegar ég var að alast upp reyndu börnin að geðjast foreldrum sinum. í dag eru það foreldrarnir sem gera sitt bezta til að falla börn- unum í geð. Það er sífellt að færast í vöxt að foreldrar vilji vera vinir barnanna sinna. Til hvers? Það er hlutverk foreldr- anna að vera foreldrar og það ætti að vera þeim nóg. Hvaða telpa þarf að eiga fertuga konu að vin? Ég skal að minnsta kosti ailtaf minnast þess að ég skulda sonum mínum ellefu ekki neitt. • Ég hef gefið þeim fæðu og klæði, húsaskjól og skóla- menntun. Ég hef komið þeim í KR. Hvað vilja þeir meira? Það er ekki eins og ég ætlist til endurgjalds frá þeim. Það eina sem ég heimta er að þeir sigri fyr- ir KR í hvert skipti sem þeir keppa. 2. KAFLI. VINNUKONUR. í dag hafa húsmæður þvottavélar, strauvélar, ryk- sugur, uppþvottavélar og hrærivélar. Vinnukona kom í stað heimilistækjanna í gamla daga. Sumar konur njóta þess að hafa vinnukonur til að losna við öll leiðinlegu verk- in og sitja sjálfar í stofunni og bródéra. Móðir mín var ekki af því taginu. Af öilu leiðinlegu fannst henni leiðinlegast að fara á fætur fyrir allar aldir á morgnana og kveikja upp í miðstöðinni, svo að allir hin- ir gætu vaknað í hlýju og notalegheitum. Þegar hún hafði vinnu- konur, skrönglaðist hún á fætur rétt fyrir sjö. Hún ætlaði ekki að vekja vinnukonuna, heldur setja yfir vatn í kaffi handa henni og kveikja upp 1 miðstöð- inni, svo að allt yrði elsku- legt þegar stúlkan stigi út úr rúminu. Það var ekki vegna þess. að skortur væri á vinnuafli, heldur var ástæðan sú, að hún móðir mín er bara svona. Hún lætur aldrei aðra gera það, sem henni þykir leiðinlegt að gera sjálfri. „Ég skal,“ segir hún. „Ég er vön þessu. Ég er fljótari að gera þetta en þú. Ég vil ekki að þú eyðileggir á þér hendurnar við þetta.“ KR-INGARNIR, bræður mínir, voru ekki einu sinni látnir moka tröppurnar. Hver vissi nema þeir rynnu til í hálkunni og brytu sína dýrmætu leggi? Við höfðum feitar vinnu- konur og . grindhpraðar vinnukonur, sterkar vinnu- konur og liðónýtar vinu- konur. Leiðinlegar vinnukon- ur. Af öllum þessum vinnu- konum er mér samt Stína minnisstæðust. Það var hún, sem kenndi mér að múta. Stína átti kærasta. Það var kvæntur maður, sem ók strætisvagninum, sem Stína tók í bæinn. Ég kallaði hann Njálsgötu — Gunnarsbraut Sólvalla- götuson eftir vagninum, sem hann ók. 8 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.