Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 32
Þessi ungi herramaður býr alveg
hinum megin á hnettinum, eða i
Ástralíu. Pétur heitir hann og er
10 ára gamall. Hann ku vera tals-
verður ærslabelgur. Útbrotin sem
hann hefur í andlitinu angra
hann ekkert að eigin sögn en þau
stafa af flugum, sem á að vera
mikið af þarna hinum megin. En
hvað um það, Pétur er mjög
ánægður með tilveruna, og geri
margir aðrir betur!
Þetta er Genevieve Danolle, sem eitt sinn var kölluð vændis-
kona dauðans. Hún var elcki aðeins fallegasti njósnari Gestapó
lögreglunnar í stríðinu, heldur einnig sá hættulegasti. Hún gekk
undir nafninu agent 73, og það var verk hennar, að hundruð
franskra manna og kvenna voru send í fangabúðir og það í
dauðann, og þó trúðu engir öðru en því, að hún væri óvenju-
fögur vændiskona.
Og þó var það svo, að Frakkar slepptu henni þrívegis úr haldi
eftir að stríðinu var lokið vegna skorts á sönnunum, þangað
til að lokum að þeir höfðu nægar sannanir, og þá var hún auð-
vitað líflátin.
VARIJÐ/IRRAÐSTAFAIMIR
Það eru til ýmsar leiðir
til þess að verja sig fyrir
ribböldum. Og framleiðend-
ur sem kunna sína grein,
vita að fyrir utan ríkt fólk
er fátt eins eftirsótt af óbóta-
mönnum og fallegt fólk. Og
því er nýfarið að framleiða
varnartæki fyrir kvenfólk,
sem meðfylgjandi mynd sýn-
ir. — Ekki ætlum við að
mæla með þessu tæki frekar
en öðrum svipuðum. Kann-
ski hjálpar það, kannski
ekki. Það verður hver og
einn að reyna að segja sér
sjálfur.
HÚN MANDY
Rice-Davies, varð fræg á
sínum tíma fyrir kunnings-
skap sinn við fröken Krist-
ine Keeler, sem fræg varð'
fyrir kunningsskap sinn við
herra Profumo sem var
frægur fyrir það að vera
ráðherra í brezku stjórninni.
Fröken Keeler lenti í stein-
inum eins og kunnugt er,
en fröken Rice-Davies slapp
með frægðina eina samán,
gerðist söngkona á nætur-
klúbbum víðs vegar í Evrópu
en er nú gift og vill taka
til við að f jölga mannkyninu,
að eigin sögn.
■t
32
FALKINN