Fálkinn


Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 34

Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 34
£\® WSI3£\ gC3DD,[!,ÖC3@©B HANN hét því venjulega nafni Stefán Lee, en sumir freistuðust til að kalla hann snillinginn vegna þess, að það vandamál fyrirfannst ekki, sem hann átti erfitt með að leysa, og þeir kunningjar Stefáns Lee, sem höfðu komizt vel áfram í lífinu, gátu að meira eða minna leyti þakkað Stefáni Lee það. Það eina, sem Stefán Lee þurfti til þess að leysa yfir- þyrmandi vandamál, var örlítill tími til þess að hugsa og átta sig. Allt þetta fannst Stefáni Lee að minnsta kosti sjálfum. Eitt sinn hafði hann ætlað að verða leikari, en bað gaf hann upp á bátinn, en ekki skyldi hann verða svo gamall, að hann gleymdi síðasta hlutverk- inu sínu. Þá lék hann snilling. Einn venjulegan dag rölti hann niður Oxford stræt- 'ð, með tíu shillinga í vasanum. Það var aleiga hans. Hann var hungraður og hafði ekkert á móti þokka- 'egum hádegisverði. Hann andvarpaði og gekk inn Regent stræti, þar fór hann inn á veitingastað. — Má bjóða yður sæti? — Ekki alveg strax takk fyrir, svaraði snillingur- ;nn, — ég hafði ætlað mér að borða hér hádegisverð með kunningja mínum, en hann virðist ekki vera kominn svo ég ætla að bíða hans hér fyrir utan. Hann fór út á götuna, því hann hafði ekki þekkt nokkurn mann fyrir innan. Þrívegis gerði hann sömu tilraun á þremur veitinga- stöðum, en án árangurs. Og á fjórða staðnum, þar sem hann var að því kominn að gefast upp og borga mat sinn sjálfur, kom hann auga á Tony Lester og Joe Boothby, — þeir sátu tveir við borð, og ekki nóg með það, þar var þriðji stóllinn, og hann var auður! Snillingur nálgaðist þá örugglega. — Góðan dag, herrar mínir. Hann fékk ekki alúðlegar undirtektir. — Hjartans þakkir, og snillingur tók sér sæti og ók upp matseðilinn. — Tja, hvað skal það vera? Boothby þreif matseðilinn. — Nú skal ég ákveða. Snillingur brosti. Þetta bragð mistókst aldrei. Boothby ákvað, en snillingur borðaði, — eða át. Booth- by leit alltaf með meiri undrunarsvip á hann og að 'okum sagði hann: — Hafið þið heyrt það. Trúlofun hjá aðlinum. í tag var tilkynnt trúlofun Bernians lávarðar og ung- frú J. B. Foster. — Bernian lávarður. Var það ekki hann sem var 'úð einhverja vinnu í skóginum? spurði Tony Lester. /— Jú, í Kanada, svaraði Boothby. — Maður verð- ur að vona, að hann líkist ekki hinum í Bernian ciölskyldunni. Þegar guð almáttugur framkallaði þessa fjölskyldu virðist hann hafa gleymt þeirri gjöf sinni, sem við jarðarbörn köllum heiðarleika. Þetta er misheppnað fólk, allt saman, bætti hann við eins og hann hefði aldrei setið í fang- elsi sjálfur. — Ekki yrði ég undrandi, þótt þessi náungi væri bölvaður svindlari, þrumaði Lester. — Það er grunsamlegt að hann skuli hafa birzt aftur á þennan hátt. — Nei, hann er ekta, lagði snillingur til mál- anna. — Ég hitti hann í Montreal í Kanada fyrir nokkrum árum síðan. Hann sagði mér frá því, að hann ætti möguleika á því að erfa stórar fúlgur, og ég lofaði honum að sjá um, að mál- flutningsmaðurinn fengi að vita, hvar hann væri niðurkominn. Hann getur þakkað mér, hversu gott hann hefur það í dag. Boothby starði á hann. Hann var á leiðinni með svívirðilega athugasemd, þegar hann kom auga á mann nokkurn, sem sat innar á veitinga- staðnum og sneri baki í snilling. Boothby rýndi í dagblað, sem lá á borðinu. Þar var mynd af Bernian lávarði. Og það var ekki um að villast, að það var sami maðurinn og sá, sem sneri baki í snilling. — Ég ætla að heimsækja lávarðinn við tæki- færi, muldraði snillingur. — Ég skal spara þér það, hugsaði Boothby. Hann gaf þjóninum merki, skrifaði nokkur orð á blað, sem hann reif úr vasabók sinni, braut það síðan saman og rétti þjóninum. Á miðanum stóð: Kæri Bernian lávarður. Munið þér eftir Montreal? Ég óska yður til hamingju með trú- lofunina. Komið yfir að borðinu okkar augna- blik. S. Lee. — Viljið þér afhenda herramanninum, sem situr þarna, þennan miða, hvíslaði hann að Þjóninum. — Biðjið hann að koma að okkar borði. Hann gaut augunum að Bernian lávarði, sá hann taka á móti miðanum, hrukka ennið og standa síðan á fætur. Boothby beygði sig þá að snilling og sagði vingjarnlega: — Gamli vinur yðar, Bernian lávarður, er á leiðinni hingað Snillingur starði á hann. Þau svipbrigði, sem Boothby greindi á andliti hans, voru ríkuleg laun fyrir allt það, sem hann hafði mátt þola vegna rausins. Bernian lávarður nálgaðist. — Herra Lee? spurði hann. 34 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.