Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 14
HVER ER AFSTAÐA FÓLKS TIL BOÐORÐANNA TÍU? TELUR ÞAÐ
AÐ BOÐORÐIN HAFI I DAG SAMA GILDI OG ÞEGAR
ÞAU VORU FYRST GERD HEYRINKUNN AF FJALLINU SÍNAÍ? VID
FENGJM MARGVÍSLEG SVÖR HJÁ ÞEIM SEM VORU SPURÐIR,
EN ALLIR ÁTTU ÞAÐ SAMMERKT AÐ TELJA BODSKAP
BODORÐANNA EIGA FULLT ERINDI TIL OKKAR.
BOBORÐIN TÍU
1. Þú skalt eigi aðra guði hafa.
2. Þú skalt eigi leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.
3. Halda skaltu hvíldardaginn heilagan.
4. Heiðra skaltu föður þinn og móður.
5. Þú skalt eigi mann deyða.
6. Þú skalt eigi drýgja hór.
7. Þú skalt cigi stela.
8. Þú skalt eigi Ijúgvitni bera gegn náunga þínum.
9. Þú skalt eigi girnast hús náunga þíns.
10. Þú skalt eigi girnast konu náunga þíns, eigi þræl hans
eða ambátt, eigi uxa hans né asna, né nokkuð það sem
náungi þinn á.
(Tekið eftir einni barnalærdómsbókinni.)
Frá því um 1400 árum
f. K. hafa hin tíu boðorð
verið kjarni lögmálsins í
hugum Gyðinga, hornsteinar
laga þeirra og réttar, og
grundvallar siðareglur sam-
félagsins.
Kristnin tók þau að erfð-
um, og til dæmis um mat
hennar á þeim nægir að
nefna, að þau eru ein höfuð
uppistaðan í Fræðum Lút-
hers og hafa verið kennd
SÉRA GUNNAR ÁRNASON
GILDI BOÐORDANNA
flestum börnum innan allra
kirkjudeilda fram á þennan
dag.
En nú er spurt hvort þau
séu ekki orðin úrelt á þess-
ari atómöld.
Vér skulum fyrst gera oss
tvennt ljóst.
Aldurinn sker ekki úr í
þessu máli. Lögmál lífsins,
bæði á sviði efnis og anda,
eru á voru máli ævarandi.
„Ein kynslóðin fer og önn-
ur kemur, en jörðin stend-
ur að eilífu. Og sólin rennur
upp og sólin gengur undir
og hraðar sér til samastaðar
síns þar sem hún rennur
upp. Vindurinn gengur til
suðurs og snýr sér til norð-
urs, hann snýr sér og snýr
sér, og fer aftur að hring-
snúast á nýjan leik.“
Þetta gerist í dag á sömu
lund og í tíð Predikarans..
Eins er það, sem í innsta
eðli sinu var satt, gott og
fagurt þegar Móses lifði, það
er enn satt, gott og fagurt.
í öðru lagi er það andi
boðorðanna en ekki bókstaf-
urinn, sem úrslitum ræður.
Ég hygg að allir menn
hérlendis muni sammála um,
að orðalag þeirra sé frá
mönnum en ekki Guði. Þetta
þýðir ekki að ég hafi eitt-
hvað út á það að setja. Ég
á við hitt, að kristnir menn
lesa svo miklu meira inn í
boðorðin, en Gyðingar. Þar
höfum vér Krist sjálfan fyrir
oss.
Eins og kunnugt er taldi
Jesús tvö boðorð, sem ekki
eru meðal hinna tíu, æðstu »
boðorðin í lögmálinu. Þessi:
Elska skalt þú drottinn, Guð
þinn, af öllu hjarta þínu og
allri sálu þinni og af öllum *
mætti þínum og af öllum
huga þínum, og náunga þinn
eins og sjálfan þig.
Hitt er samt ljóst að hann
varpaði ekki skugga á tíu
boðorðin. Þvert á móti víkk-
aði hann þau og dýpkaði.
„Þér hafið heyrt að sagt
var við forfeðurna: Þú skalt
ekki morð fremja, en hver
sem morð fremur, verður
sekur fyrir dóminum; en ég
segi yður, að hver sem reið-
ist bróður sínum, verður sek-
ur fyrir dóminum."
Skýringar Lúthers á boð-
14 FÁLKINN