Fálkinn


Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 20

Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 20
Hrúturinn, S21. marz—20. avru: Fjármálin, og þá aðallega sameiginlpgu fjármálin, verða ofarlega á baugi hjá þér þessa viku og mun ýmislegt nýtt koma íram í þeim efnum. Gæti verið um breyt- ingu i starfi að ræða eða jafnvel arf eftir einhvern fjarskyldan ættingja. Nautiö, 21. avríl—21. mat: Það má búast við einhverri breytingu i sambandi við maka þinn eða félaga, eitt- hvað sem þú hefur ekki gert þér nægilega grein fyrir en þú sérð i öðru ljósi. Gerðu enga bindandi samninga án þess að hafa athugað þá gaumgæfilega. Tvíburarnir, 22. maí—21. iúní: Þessi vika býður upp á fyrirtaks tækifæri til að komast að því hvernig samstarfs- menn þinir eru raunverulega innrættir. Um breytingu á vinnustað og heimili gæti ver- ið að ræða, en æskilegt er að leita ráða hjá maka eða félaga. Krabbinn. 22. rúní—23. iúlí: Þeim sem ógiftir eru býður þessi vika upp á tækifæri til ástarævintýra og fyrir flesta verður þetta vika skemmtana og ferðalaga. Þó er nokkur hætta á fljótfærni í sambandi við ferðaiög og er því gott að hafa hraðann í minna lagi. Liónið. 2í. júlí—23. áaúst: Þú færð tækifæri til að sýna hvað í þér býr varðandi það að gera heimili þitt fagurt og fjöiskyldu þína ánægða, en það er hætt við að þú verðir nokkuð hirðuiaus varð- andi peninga og eyðir því meiru en þú mátt. Mevian, 2í. áaúst—23. sevt.: Ekki er ólíklegt að bréf sem þér berst í hendur eða þá simtal verði til að skýra línurnar varðandi ættingja þína og þá sem þú umgengst daglega og hefur verið í vafa um hvernig þú ættir að koma fram við. Voain, 2i. sevt.—23. okt.: Þér gætu opnazt nýir möguleikar í fjár- málunum og ýmislegt það sem vafasámt hefur talizt hingað til fær nú aðra og betri meiningu. Þú ættir samt að athuga vel,. ef um kaup og sölu er að ræða, að allar hliðar mála komi skýrt í ljós. Drekinn. 2h. okt.—22. nóv.: Þú munt sjá fram á lausn margra þeirra vandamála sem þú hefur verið að glíma við að undanförnu. Það er mjög vafasamt að það borgi sig fyrir þig að hafa vini þína með í ráðum varðandi einkamál þín. BoamaSurinn. 23. nóv.—21. des.: Svo gæti farið að samstarfsmenn þinir hefðu raunverulega ástæðu til að öfunda þig af þeirri athygli sem yfirmenn þinir kynnu að sýna þér. Það er mest undir við brögðum þínum komið hvernig þér tekst að afla þér viðurkenningar. Bteinaeitin, 22. des.-—20. ianúar: Þessi vika mun skera úr um hvort Þú verður fyrir vonbrigðum varðandi málefni sem þú hefur verið að vinna að að undan- förnu og þú leggur mikið upp úr að takist vel. Þér gætu borizt fréttir langt að sem kæmu þér á óvart. Vatnsberinn. 21. ianúar—19. lebrúar: Það mun koma í ljós í þessari viku að þú hefur ekki stritað til einskis, því nú er komið að því að Þú hljótir viðurkenningu yíirmanna þinna og verðskuldaða athygli. Þetta gæti einnig táknað breytta atvinnu. F'iskarnir, 20. tebrúar•—20. marz: Gegn um ferðalög eða bréfaskriftir bjóð- ast þér tækifæri til að koma ár þinni vel fyrir borð hvað dagleg störf þín áhrærir. fyrir alla muni forðastu að lenda í deilum við félaga þinn eða á einn eða annap hátl að styggja hann. virkasti ,ofna- hreinsari' HEILDSÖLUBIRGÐIR: KRISTJÁN Ó. SKAGFJORÐ H.F. SÍMI 24120 (OKSIIL (OltTIW bilaleiga magnúsar skipholti 21 isimar: 2115)0-211115 Haukur (ju$muh({Mch HEIMASÍMl 21037 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.