Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 21
föremandi kjörtu
UM daginn komst ég í dagbókina
hennar Lottu — af tilviljun vel að
merkja. Það kom mér ekki á óvart, að
hún skyldi trúa dagbók fyrir marglit-
um, spennandi og rómantískum atburð-
um, því að það gera víst flestar þrettán
ára stúlkur, en mér kom þetta samt á
óvart, því að hún hafði talað inn á
segulband, sem ég hélt að hún notaði
einungis til að safna inn á ærandi bítla-
lögum. Þegar það rann loks upp fyrir
mér hvað segulbandið var að flytja,
varð mér að sjálfsögðu ljóst, að ungl-
ingarnir í dag hafa ekki tíma til að
framan og svaraði öllum spurningum
vitlaust það sem eftir var kennslustund-
arinnar, og þá var ég viss um að ég
væri búin að klófesta hann, og í matar-
hléinu bauð hann mér í bíó, stúkusæti,
á morgun. Ég er alveg rugluð þegar ég
hugsa til þess. Ég hef aldrei setið í
stúkusæti hjá strák, en eins og Dúna
segir, einu sinni er allt fyrst. Það er
svo þægilegt að sitja í stúkusætum,
segir hún, ef mann langar til að halda
í höndina á einhverjum. Jerimías. Ég
er alveg frá!
Þriðjudagur. Kæra dagbók! Þetta hef-
ur verið hræðilegur dagur. Ég er alveg
brjáluð út í pabba. Hann er nízkari en
allt sem nízkt er. Hann Palli sagði í
skólanum, að hann gæti því miður ekki
boðið mér í bíó vegna þess að pabbi
hans hefði neitað að láta hann hafa
meira fyrirfram upp í vikuskammtinn,
bjástra með pénna og blek, eða önnur
úrelt fornnorræn skriffæri, hvað þá
fornnorrænar dagbækur. Aftur á móti
varð mér órótt af að hlusta á segul-
bandið.
Ég ætla að leyfa ykkur að heyra orð-
rétt fyrstu metrana — svo lokaði ég.
Ég var ekki viss um að ég hefði1 gott
af að heyra meira. , ; f, ;
„Mánudagur. Kæra dagbók! Þetta
hefur verið ljómandi skemmtilegur dag-
ur! Ég kynntist honum Palla í dag.
Hann er nýr í skólanum. Voðalega fínn
strákur — og sætur. Fyrst var hann
svolítið skotinn í ÚIlu, þessari hund-
leiðinlegu beinasleggju, en í latínutím-
anum horfði ég lengi, lengi í augu
hans, og þá varð hann eldrauður í
og hann væri ! alveg blankur. Palli
meina ég. Honum fannst þetta óskap-
léga leiðinlegt, því að hann hefði hlakk-
að svo mikið til. Ó, hann er svo sætur.
í matarhléinu spurði hann hvort ég
vildi ganga með hringinn hans. Dúna
er líka með hringinn hans Hinriks, en
hann er ekki nærri eins flott og hring-
urinn hans Pallk. Ekta silfur með hauS’,
kúpu, en ef maður snýr hringnum, þá
er hann alveg éins og trúlofunarhring-
ur. Svo sagði ég við Palla, að ég skyldi
bara lána honúm fimmtíu kall fyrir
bíómiðum, ef ég gæti slegið pabba, en
auðvitað var pabbi ekkert nema fýlan
þegar ég kom að spyrja hann. Hvað
í ósköpunum ég ætlaði að gera með
fimmtíu krónur? Hvort ég vissi ekki
UTLASAGAN M
EFTIR V
WILLY BREINHOLST
hvað fimmtíu krónur væru miklir pen-
ingar? Þá sagði ég honum að ég yrði
bara að kaupa nýja plötu, en hann
haggaðist ekki. Svo fór ég til mömmu.
En hún var auðvitað alveg blönk. Ég
skil ekki hvernig hún fer að því að
eyða öllum þessum peningum í allan
mögulegan óþarfa. Ég er fokvond út
f þau bæði tvö. Góða nótt!
Miðvikudagur. Kæra dagbók! Úlla,
þessi heimska gæs, er alltaf að gera
sér dælt við Palla, en það þýðir bara
ekkert fyrir hana. Þið hefðuð átt að
sjá á henni fésið þegar ég sýndi henni
hringinn hans Palla. Ég held að Palli
taki þetta mjög alvarlega. í matar-
hléinu var hann með tvær rjómaboll-
ur, og þegar enginn sá til, rétti hann
mér þá stærri. Svona gerir enginn nema
sá sem þykir verulega vænt um mann.
Til að sýna honum að ég elskaði hann
líka, sagði ég honum, að ég myndi út-
vega þessar fimmtíu krónur á morgun.
Þegar ég kom heim, gekk ég í skrokk
á pabba, en hann röflaði heil ósköp
og vildi vita hvað ég ætlaði að gera
rneð svo mikla peninga. Þá varð ég
reið og gerði allt vitlaust, læsti mig
inni og grét og neitaði að borða og
sagði mömmu að þetta væri allt pabba
að kenna, hann væri vitlaus og það
endaði með að ég fékk þrjátíu krónur.
Nú vantar mig bara tuttugu. Ég ætla
að útvega þær á morgun.
Fimmtudagur. Kæra dagbók! Þó að
ég geti alls ekki þolað hana Úllu, þá
hjálpaði hún mér í dag, greyið. Hana
vantaði svo mikið þrjátíu krónur til
að kaupa varalit, og ég lánaði henni
mína peninga með því loforði, að ég
fengi þá aftur á morgun, þegar hún fær
vikuskammtinn, og að hún lánaði inér
þá til viðbótar tuttugu krónur í .þakk-
lætisskyni. í reikningstímanum skrif-
aði ég Palla á miða, að hann gæti pantað
stúkusætin á morgun. Allt í lagi, elskan
svaraði hann, og ég ætla alltaf að geyma
þennan miða við hjartastað. Ég hlakka
óskaplega til morgundagsins. Góðá nótt,
elskhugi minn. «
Föstudagur. Kæra dagbók., Ég er
alveg búin.að vera. Ég er búin að-gráta
í þrjá tíma. Var í bíó með ltiöhámu
og pabba að sjá „Brennandi hjörtu“,
vegna þess að Palli kom ekki einá og
ákveðið hafði verið. Gettu hver sat
beint fyrir framan okkur, auðvitað fyr-
ir þrjátíu krónurnar mínar? Palli og
Úlla. Ég ætla að klóra úr henni augun
á morgun, þessari bölvaðri frekju, þess-
ari nautheimsku og illgjörnu gálu. ★ ★
J
FALKINN
21