Fálkinn - 27.09.1965, Page 26
<
í SVIÐSLJÓSINIJ —
BEIMEBIIÍT VIGGÓS80N SKRIFAR FVRIR UNGA FÓLKID
Bandaríska mánaðarblaðið Screen Parade efndi nýlega til verð-
launakeppni og verðlaunin voru mjög nýstárleg. En sá, sem hreppti
þau, átti kost á að hitta sjálfa Rolling Stones í eigin persónu og
ræða við þá um stund. Þegar dregið var, kom í ljós, að 9 ára
stúlka, Mindy Leone að nafni var vinningshafinn. Þegar henni var
tilkynnt um úrslitin, var hún yfir sig hrifin, þvi Mindy er mikill
og einlægur aðdáandi Rolling Stones.
Áður en lagt var af stað til hótelsins, sem Rollingarnir héldu
til i, var tekið loforð af blaðakonunni og ljósmyndaranum, sem
fyigdu stúlkunni, um að halda nafni hótelsins algerlega leyndu,
því þessum síðhærðu piltum hafði'þótt nóg um lætinn, þegar þeir
stigu úr flugvélinni og kærðu sig ekki um, að það endurtæki sig
við hótelið. En Mindy þurfti ekki að lofa neinu slíku, því það var
bundið fyrir augun á henni, þar til hún kom inn í hótelherbergið.
Myndirnar sýna, þegar verið er að leysa klútinn frá augum
stúlkunnar og viðbrögð hennar, þegar hún sá, hverjir stóðu fyrir
aftan hana. Óskadraumur hinnar 9 ára stúlku var orðinn að
veruieika
&☆i< tV☆-K☆-K☆-K☆-K ☆ -)< ☆ -K
STUTT EFTIR
Eins og komið hefur fram, þá rennur fresturinn út 1. október
til að skila atkvæðum í skoðanakönnunina, hver sé vinsælasta ís-
lenzka hljómsveitin og söngvarinn. Þátturinn þakkar þeim mörgu,
er sent hafa bréf og ég efast ekki um, að táningar taki góðan loka-
sprett. Utanáskriftin er FÁLKINN, f SVIÐSLJÓSINU, BOX 1411.
HLJÖD í
SALINililVI
Salurinn er þétt setinn
af prúðbúnum áheyrendum.
Öðru hvoru heyrast ræsking-
ar og hóstakjöltur, annars
er allt hljótt. Hvar erum við
stödd? í kirkju? Á bingó í
Austurbæjarbíói? Nei nú fór
ég alveg með það. Háttvirt-
ir lesendur. Við erum stödd
á sinfóníutónleikum í Bret-
landi, nánar tiltekið í Liver-
pool, en þessi borg er m. a.
fræg fyrir það að eiga knatt-
spyrnulið, sem sigrar okkar ágætu K. R.-inga og er
liðið kennt við borgina, en það er önnur saga.
Hin 80 manna sinfóníuhljómsveit hefur flutt fyrir
áheyrendur sína verlc eftir Grieg, Tshaikofsky og fleiri
öndvegis tónskáld og nú bíða áheyrendur spenntir eftir
að heyra síðasta tónverkið á efnisskránni. Stjórnandinn.
bankar með sprotanum í nótnaborðið. Eins konar merki
um það, að ef einhver ætli að hnerra núna, sé það ekki
leyfilegt. Hann lyftir höndunum (það er eins gott að
kjólfötin séu ekki of þröng). Það ríkir alger þögn í
salnum og hljóðfæraleikararnir bíða tilbúnir. Stjórnand-
inn sveiflar sprotanum snöggt og tónverkið er hafið. En
hvað er á seyði? Fólkið ókyrrist í sætum sínum og það
líður undrunarkliður yfir salinn. Reyndust kjólföt stjórn-
andans og þröng? Nei, langt frá því. Allir saumarnir
héldu. Ástæðan fyrir ókyrrðinni var sú, að þessi ágæta
sinfóníuhljómsveit að að leika Bítlalagið „I want to hold
your hand“. En brátt komst kyrrð á og það var ekki
um að villast, fólkið hlustaði af athygli. Árangurinn af
þessum óvæntu breytingum á efnisskránni varð sú, að
hljómsveitin hefur í hyggju að taka fleiri Bítlalög til
flutnings.
EKKI
HAFA
HÁTT
„Uss, ekki hafa hátt. Ég
ætla bara að myrða þig,“
gæti maður haldið að stúlkan
væri að segja, en hún heitir
Marisa Mell og fer með
stórt hlutverk í kvikmynd-
inni Masquerade.
26 FÁLKINN
í