Fálkinn - 27.09.1965, Síða 27
^☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆^
* FRÁ LESENDUNUM:
^ ... Mér finnst Fálkinn vera bezta vikublaðið, því hann
* birtir/ svo mikið efni fyrir unga fólkið. T. d. er þátturinn
í SVIÐSLJÓSINU alveg fyrirtak. Viltu vera svo góður að
skrifa ' eitthvað um Tempó . .
Þátturinn þakkar lofið. Það er undir Temþó-aðdáendum
komið, hvort að þeir verða einir af þeim 10 hljómsveitum,
sem kynntar verða í blaðinu.
... Ég var að lesa greinina Hver er vinsælasta hljómsveitin,
en ég hef nú frekar lítinn áhuga á þessu, þó að ég sé ekki
nema 14 ára. En mig langar til að biðja ykkur um að birta
grein og mynd af SAVANNA-tríóinu.
Með beztu kveðju,
Signý Ástmars.
Skagaströnd ...
, Það er aldrei að vita nema grein um Savannatríóið birtist
nú í vetur.
„.. Mér var skipað að taka fram penna og — ja auðvitað
skrifa. Nú, jæja, þátturinn í SVIÐSLJÓSINU er langbezti
þátturinn í Fálkanum og tel ég hann mega vera áfram eins
og hann er.
Verið þið svo bless.
Dóra Kristinsdóttir.
Akranesi ...
Það er ánægjulegt að vita það, hvað þátturinn nýtur mikilla
vinsælda. Enn hefur ekkert skammarbréf borizt — en ég
bíð spenntur.
... Ég mæli eindregið með Gautum frá Siglufirði sem vin-
sælustu hljómsveitinni. Þá langar mig til að fá birta mynd
af stúlkunum þrem, sem skipa The Supremes. Að svo mæltu
þakka ég fyrir allt gott.
Sigtryggur Sigurjónsson.
Siglufirði...
Það eru allar líkur fyrir því að von þín um að fá birta
umrædda mynd hafi þegar rætzt, er þetta birtist.
| I STUTTU MÁLI:
Tarzan-myndirnar eru ekki alveg liðnar undir lok, þó að
þær séu ekki framleiddar í eins stórum stíl og áður fyrr.
Kvikmyndaframleiðandinn Sy Weintraub hefur í bígerð nýja
Tarzanmynd og það verður sænsk stúlka, sem fer með hlut-
verk Jane.
„Nei takk, ekki fisk handa mér,“ sagði Sandra Dee með
hryllingi þegar hún kom til hádegisverðar eftir að hafa þrauk-
að í 6 tíma kvikmyndasenu úti í steikjandi sól ásamt 1,5 kg
af dauðum fiskum.
VERTHUS OG
LJÓSMYIMDUM
Herra Póstur,
Ég er einn af þeim sem fer
stundum á verthús, og um dag-
inn skrapp ég á veitingahús,
sem er staðsett nálægt Tjörn-
inni. Það var svosem ekkert
umtalsvert, en það var einn
hlutur, sem vakti athygli mína
og mér finnst ógeðfelldur. Þar
gengur um maður með ljós-
myndavél og tekur myndir af
fólki fyrir peninga. Þetta er
vissulega atvinna út af fyrir
sig og ekkert um það að kvarta.
En að líðast að maðurinn taki
myndir af drukknu fólki, fyrir
90 krónur, jafnvel svo drukknu,
að það er utan við þennan
heim. Þetta horfði ég upp á
hann gera, og fannst mér það
vægast sagt ógfellt.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Haraldur.
Svar:
ÞaO er ekJci hœgt að mynda
sér skoðun um þetta án þess
að þekkja málið, og ekki vitum
við hversu mikið er hæft í
þessu hjá þér. Og það var ekk-
ert að þakka.
ÓLI HEFUR
ÁHYGGJUR
Kæri Póstur,
Ég er einn þeirra sem reyki
sígarettur og hyggst ekki hætta
því bráðlega. Ég reyki 10 siga-
rettur á dag og er Það ekkert
einsdæmi. En eftir að sú vit-
leysa var framkvæmd að hætta
að selja sígarettur I lausasölu
hafa reykingar mínar aukizt
töluvert. Ég held að það hafi
verið alrangt að ætla að draga
MAnSTc' ÞfzóAR v/i-0
VORUtt A£>L£l»CA
LQC>(?u ö(p )PSÖ F í
úr reykingum með þessu. Þegar
svona er neyðist maður til þess
að kaupa heilan pakka eða ekki
neitt, og úr því að maður reyk-
ir þá verður það heill pakki,
og siðan er hann örar reyktur
en annars hefði verið. Nei, ég
er hræddur um að ef þessii
snjöllu ráðamenn vilja reyna
að stuðla að bættu lungnaheil-
brigði, þá geri þeiÉ ekki annað
betra en að taka upp lausasölu
á sigarettum aftur.
ölafur P.
Svar:
Já, þú segir nokkuð, ÓU
minn. Ef til vill er þetta rétt
hjá þér og ef til vill ekki. En
hitt er annað mál, að ef þú
hættir að reykja, þá ertu búinn
að ryðja þessu áhyggjuefni
burtu um leið.
UM PÓSTHÚSIÐ
Ágæti Fálki,
Hvernig er þetta pósthús okk-
ar Islendinga eiginlega starf-
rækt? Ég kom niður í bæ um
sjöleytið fyrir stuttu síðan og
ætlaði að póstleggja bréf en
hafði ekki frímerki. Jú, það á
vist að vera frímerkjasjálfsali
á pósthúsinu og þangað fór ég
i góðri trú. En þá var bara
merki á henni upp á Það að
hún (sjálfsalan) væri lokuð! og
hvergi hægt að fá frímerki í
miðbænum. Þetta er þokkaleg
þjónusta við kúnnann! Hvað á
að gera við svona menn?
Einn reiði.r.
Svar:
Það er rétt, 'póstliúsið á ákúr-
ur skilið fyrir svona lagað. En
við skulum vona að um slys
hafi verið að ræða i þetta
skipti og svona hlutir séu ekki
daglegir viðbuðir.
FÁLKINN 21