Fálkinn - 27.09.1965, Side 30
stökki, var Chuck kominu úl
og undir brúnina á svölunnm,
í eina staðinn, sem ég gat ekki
náð til háns. Nú hafði hann
riffilinn sjálfur.
Roy Aspinwall fylgdi honum
eins og óh.iákvæmilegur skuggi.
Ég hefði þurft að skjóta Roy til
að komast að Chuck, og ég
ímynda mér, að tilætlun Chucks
hafi verið sú.
Bobby Stillman kom síðastur
Og hann missti kjarkinn.
Hann tók tilhlaup úr myrkri
skrifstofunni fram i ljósið. Það
var eins og ljósið væri varnar
veggur, sem hann rækist á. Ég
sá hann líta upp á svalirnar, á
mig. Ég vissi, hvað hann var
að hugsa. Hann var að hugsa um
kúluna í veggnum við dyrnar
rétt hjá þar sem höfuð hans vai
núna. Og hina, sem hafði leitað
hans fyrir skömmu i myrkrinu,
fyrir utan. Kannski hugsaði hann
sem svo, að sú þriðja myndi
ekki missa marks. Kannski var
hann að komast á þá skoðun
að það væri hreint ekkerl
skemmtiiegt að leika skotskífu
yfirleitt.
Hann stóð stjarfur með bakíð
við dyrastafinn, hendurnar út
réttar og þreifaði meðfram
veggnum eftir einhverju. Ég veit
ekki hverju. Frelsun, ef til vill.
Chuck öskraði: „Haltu áfram,
bölvaður asninn þinn, stökktu!1'
„Fyrir alla muni,“ sagði ég,
„haltu áfram, Bobby. Hvað er að,
fellur þér ekki ljósið? Bilai
kjarkurinn, þegar þú getur ekk^
læðzt að fólki aftanfrá?“
Honum féll það ekki, Það vai
greinilegt. Ég sá andlit hans
sama sviplausa andlitið og á
myndinni, en nú var þar skelfing
í hverjum drætti, heigulsfölvinn
og starandi augun, sem flöktu
milli min og Chueks.
Hann var prýðilegt skotmark
Mér gat ekki skeikað. Ég gat
fellt hann i einu skoti og horft
á hann sprikla.
Svitinn rann í augun á mér
og ég þurrkaði hann með vinstri
hendinni. „Komdu þér út,“ sagði
ég við hann. „Snáfaðu burt, á
meðan þú ert enn á lífi.“
Hann tók undir sig stökk og
flýði. Fáein augnablik heyrði ég
hann brölti um i skrifstofunni
og það brast í glerbrotunum
undir skónum hans. Chuck æpti
á eftir honum: „Heigull! Heig
ull! En hann var allur á bak og
burt út um gluggann.
„Jæja, þá raggeit," sagði ég.
„Nú skulum við sjá hvað þú
ert hugaður.“
Chuck sagði mér ruddalega að
halda kjafti.
Síðan var aftur þögn í skemm
unni.
Bill færði höfuð sitt fast að
eyra mér. „Þeir eru að hvíslast
á þarna niðri. Ég heyri til
þeirra ...“
„Liggðu flatur," sagði ég.
„Færðu þig frá brúninni og
liggðu flatur.“ Ég ýtti honum
frá. „Chuck,“ sagði ég. „Chuck
Landrv Þú ert á eftir timanum.
Okkur hefur verið kunnugt um,
hver þú varst, síðan á miðviku-
daginn. Lögreglan er á hælunum
á þér.“
Hann var að tala við Roy,
hratt og hörkulega og þóttist
ekki heyra til mín. Hann lét sem
sér stæði á sama. Kannski var
það líka svo.
„Þú ert slyngur," sagði ég
„Tvö morð á samvizkunni og
ætlar nú að bæta öðrum tveim
við. Hvernig hefurðu hugsað þér
að íeyna þeim?"
Nú svaraði hann mér, fyrir-
litlega, fullur sjálfstrausts.
Hreykinn.
„Vandalaust," sagði hann.
„Treð ykkur inn í bílinn þinn,
ýti honum ofan í skurð og kveiki
í honum. Það mun líta út eins
og slys.“
„Þótt við séum fullir af riffil-
kúlum?“
„Ég skil riffilinn eftir í hönd-
um Bills og segi, að hann hafi
stolið honum frá mér. Þá fær
lögreglan eitthvað að spreyta
sljóa heilana á.
Það heyrðist varla nokkurt
hljóð til að aðvara mig. Roy
hafði farið úr skónum. Hann
hafði læðzt að hinum enda sval-
anna, og nú smeygði hann sér
fyrir súluna og var kominn i
stigann. Ég gat hvorki séð hann
né skotið á hann, nema rísa
upp, og ef ég gerði það, myndi
Chuck samstundis baun-a á mig
úr rifflinum.
„Hvað hefur hann með sér?“
spurði ég. „Slöngvu og smá
,steina?“
Ekkert svar.
Ég gat heyrt til Roy, þar sem
hann skreið upp stigann, eitt
þrep í einu, másandi og sjúgandi
upp í nefið af ákafa.
„Það er aðeins einn galli á
fyrirætlan þinni, Chuck,“ sagði
ég. „Hverjar skýringar ætlarðu
að gefa á líki Roys? Þvi ég
mun nefnilega skjóta hann á
sama augnabliki og hann teygir
sinn heimska haus yfir efsta
þrepið."
Hreyfingin í stiganum hætti.
Roy var ekkert gáfnaljós, en
jafnvel fáviti getur skilið ein-
falda yfirlýsingu sem þessa. Ég
gaf Bill merki og hann renndi
sér til mín á maganum, unz ég
gat hvíslað í eyra hans.
Chuck sagði: „Haltu áfram,
Roy. Hann getur ekkert gert
þér.“
„Já, komdu bara Roy,“ sagði
ég. „Þú munt komast að þvi.“
Ég gaf Bill fyrirmæli og hann
kinkaði kolli og fór að mjaka
sér á maganum í átt til stigans.
Roy sagði efablöndnum rómi:
„Heyrðu, Chuck ...“
Ég færði mig nær svalabrún-
inni.
„Haltu áfrarn," Chuck hvæsti
af reiði, „vió hvað ertu hræddur?
Ég ver þig.“
„Hann er hræddur við að
deyja,“ sagði ég. ,,Er ekki svo,
Roy? Og þú hefur lika ástæðu
til þess. Satt er það, hann ver
þig. Um leið og ég rís upp til
að skjóta þig, þá skýtur hann
mig. En það bjargar ekki lífi
þínu, heldurðu það?“
f Bill var nú nærri kominn að
stiganum.
„Og hvað“ sagði ég við Chuck,
„skyldir |iú vera svona hræddur
við, bleyðimennið? Mér. sýnist
þú ekki legg.ja þinn skrokk í
neina hættu.“
Bill olli nú meiri hávaða, svo
ég hækkaði röddina. Ég þurfti
ekki áð gera mér upp.
„Hvað gengur að ykkur báð-
um?“ kallaði ég. „Ég heyri ykk-
ur ekki hlæja eða skiþtast á
bröndurum, eins og þið gerðuð
fyrrum. Þetta er ekki eins
gaman, er það, þegar ég bíð
ykkar viðbúinn?"
Bill fleygði stöl niður stigann
með braki og bramli. Hann
fleygði öðrum og þeim þriðja.
Roy æpti, og þegar sá fjórði
kom í hann, hrapaði hann aftur
niður stigann. Ég skaut einu
skoti í gólfið við fætur hans,
þegar hann kom í ljós hjá súl-
unni. Ég ætlaði mér ekki að hæfa
hann. Held ég.
Chuck ætlaði aftur á móti að
hæfa mig, en gerði það ekki;
staða hans undir svölunum gerði
honum það ómögulegt.
Skotin tvö ollu gífurlegum
gauragangi í skemmunni og
síðan leið nokkur stund í algerri
þögn, er við héldum niðri í okk-
ur andanum og biðum.
Inn í þögnina barst lítið hljóð,
daufur ómur úr fjarska.
Hljóð í sírenum.
Við hlustuðum á það.
Það jókst og kom nær.
„Ha,“ sagði Roy. „Þetta er
lögreglan.“
Hljóðið beygði auðheyrilega,
svo ekki var um að villast, af
þjóðveginum niður á aukaveginn.
Chuck skaut á Ijósin í miðju
loftinu, það voru fimm hvítar
kúlur í þyrpingu. Hann braut
þrjár þeirra en hafði þá eytt
öllum skotunum. Enn lifði á
tveim ljósum.
Hann fleygði rifflinum frá sér
og hljóp að skrifstofudyrunúm.
Ég sendi kúlu í vegginn á
undan honum.
Hann féll á hækjur sér, snar-
snerist og skauzt aftur undir
svalirnar. Nú heyrðist vælið í
sírenunum niðri á veginum.
Roy sagði: „Hei, Chuck, hvað
eigum við að gera? sagðir þú
ekki...“
En Chuck var á harðahlaupum.
Ég heyrði þungt fótatak hans
á trégólfinu og nú reyndi hann
aftur, frá hinum enda svalanna,
í átt til dyranna, sem við Bill
LITAVER sf.
aufflýsir:
SADOULUX-Iökk allir Iitir.
Málning úti og inni mjög mikið litaúrval.
Allur saumur + stálsaumur mjög ódýr.
Tékkneskir pensla frá kr. 12—■.
LITAVEII mL
Grensásvegi 22
Sími 30280
Sendum heim.
Sendum gcgn póstkröfu um allt land.