Fálkinn - 27.09.1965, Qupperneq 36
Mér skilst, að þér hafið feng-
ið þá hlægilegu hugmynd, að
ég sé ekki sá, sem ég þó er,
sagði lávarðurinn. — Og þér
virðist halda, að þér getið
kúgað út úr mér fé þess vegna.
— Uss, sagði þá snillingur.
— Þetta er ljótt orð. Ég er alls
ekki að ógna yður. Ég hef að-
eins leyft mér að halda því
fram, að þér séuð alls ekki
hinn rétti Bernian lávarður.
Þetta er alls ekki fjárkúgun.
Hann stóð á fætur. — Ég skal
gefa yður símanúmer mitt, en
ég ráðlegg yður að nota það sem
fyrst.
— AU right, sagði Bernian lá-
varður. — Ég gefst þá upp En
tíu þúsund pund er alltof mik-
ið. Ég hef ekki einu sinni svo
mikla peninga.
— Minna gæti svo sem nægt.
Eitt þúsund?
— Fimm hundruð.
— Þúsund.
— Jæja, sjö hundruð og
fimmtíu, greitt út í hönd og
ekki eyri meira.
Snillingur hugsaði sig um.
— All right, sagði hann svo.
Bernian lávarður tók veski
sitt fram og taldi fimmtán
fimmtíu punda seðla í snilling.
Gjörið þér svo vel, sagði hann
kuldalega. — Og gerið mér
svo þann greiða að hverfa.
Snillingur hafði ekki neitt á
móti því. Stuttu seinna var
hann kominn út á götu, þar
sem hann nánast sveif í loft-
inu, því svo rikur hafði hann
aldrei verið. Hann þreifaði
öðru hvoru á vasa sínum, og
honum fannst unaðslegt að
finna til peninganna. í augna-
blikinu var honum ómögulegt
að láta sér detta í hug hvað
hann ætti að kaupaf sér. Hann
rölti um allan eftirmiðdaginn,
og að lokum kom hann að þeim
veitingastað, þar sem hann
hafði borðað fyrr um daginn.
Hann var orðinn hungraður
aftur, svo hann fór þangað inn.
Vínið og maturinn endurnýjaði
lífsþrek hans, svo hann fór að
gera framtíðaráætlanir í stór-
um stíl.
— Þjónn, reikninginn, kall-
aði hann svo.
Snillingur lagði fimmtíu
punda seðil á borðið, og þjónn-
inn hvarf augnablik til þess að
skipta honum. Það leið þó nokk-
ur stund áður en hann kom
aftur, en snillingur var of upp-
tekinn af sínum hugsunum til
þess að taka eftir því. Síðar»
gaf hann þjóninum ríflega
drykkjupeninga og yfirgaf
síðan salarkynnin. En í fordyr-
inu beið nú vertinn eftir hon-
um.
— Afsakið herra minn, en
ég verð að ónáða yður augna-
blik og biðja yður að koma
til skrifstofu minnar.
Svitinn rann í stríðum straum
niður snillingsbakið.
í skrifstofunni sátu tveir
herramenn, en snillingur var
ekki lengi að sjá, að þetta voru
leynilögreglumenn.
— Gerið svo vel að fá yður
sæti, sagði vertinn, og virtist
alúðlegur.
— Borguðuð þér með þess-
um fimmtíupundaseðil, sagði
annar herramannanna.
— Já, og snillingur andvarp-
aði.
Hvar fenguð þér hann?
— Vinur minn lét mig hafa
hann.
— Hvers vegna? j
— Það v^r borgun fyrir.
greiða.
— Hvers konar greiða?
— Hvaða rétt hafið þér til
þess að yfirheyra mig svo,
spurði þá snillingur og reis á
fætur. — Hvað hef ég gert?
— Framselt falskan peninga-?
seðil.
— Falskan? Snillingur þorn-
aði í munninum. — Þetta hlýt-
ur að vera misskilningur, stam-
aði hann. — Þennan seðil af-
henti Bernian lávarður mér
persónulega. Hann sneri sér,
síðan að vertinum: — Þér þekk-
ið hann. Hann borðaði hér í.
hádeginu. Það var mynd af
honum í dagblaðinu.
— Því miður. Þetta er frændi
lávarðarins, þekktur glæpamað-
ur og svindlari. Hann er eftir-
lýstur fyrir peningafölsun.
Herbergið tók að snúast
ískyggilega fyrir augum snill-
ingsins, og orð Boothbys berg-
máluðu óhugnanlega: -— Þegar
guð almáttugur framkallaði
þessa fjölskyldu virðist hann
hafa gleymt þeirri gjöf sinni,
sem við jarðarbörn köllum
heiðarleika .. .
• 7 dagar í maí
Framh. af bls. 5.
ir í aftursætunum að hlusta á
forsetann. Bílstjórinn segir, að
þessi bíll hafi allt í einu komið
í ljós á beygjunni beint fyrir
framan okkur, á miklum hraða,
breytt um stefnu og farið beint'
á garðinn."
Vegalögregluþjónninn gekk að
bílflakinu, seildist undir mæla-
borðið og slökkti á útvarpinu.
Þá kom hann auga á skrásetn-
ingarmerkið og bölvaði í hálf-
um hljóðum.
Platan aftan á Thunderbird-
bílnum var beygluð en auðvelt
var að lesa það sem á henni stóð.
Þetta var Kaliforníubíll, USS 1.
Eftirmáli.
Blaðaniannafundur
Jordans Lymans forseta.
Mánudaginn 20. maí kl. 20,30 f. h.
Forsetinn: Góðan dag. Ég er
með nokkrar tilkynningar.
í fyrsta lagi, undirbúningi
Husqvarna
Husqvama eldavélin er ómissandi i hverju
nútíma eldhúsi — þar fer saman nýtízkulegt útlit og allt
jtað sem tækni nútímans getur gert til þess að matargerð-
in verði liúsmóðiirinni auðveld og ánægjuleg. Husqvarna
eldavélar fást bæði sambyggðar og með sérbyggðum
bökunarofni.
Leiðarvisir á íslenzku, ásamt fjölda mataruppskrifta fylgir.
GUNNAR ASGEIRSSON H. F.
SUÐURLANDSBRAUT 16 — REYKJAVÍK — SÍMI 35200.
36 FÁLKINN