Fálkinn


Fálkinn - 25.04.1966, Blaðsíða 5

Fálkinn - 25.04.1966, Blaðsíða 5
Ég er svo hundleiður á að heyra þetta sífellda dropa- hljóð í vatnskrananum, en mér er ómögulegt að stöðva það. Geturðu ekki gefið mér ráð við þessu? — Reyndu að hætta að borga vatnsskattinn. I. rakari: — í dag blóðg- aðir þú Jensen illilega á hökubroddinum. Þú mátt ekki vera svona mikill klaufi. II. rakari: — Klaufi? Ónei. Ég er í makki við dótt- ur hans, sérðu, og skráman á hökunni þýðir, að ég geti hitt hana í kvöld. Við not- um dulmál, skilurðu. —v— Hansen kom á lögreglu- stöðina og tilkynnti að kon- an hans væri horfin. — Hve langt er síðan hún hvarf? spurði varðstjórinn — Ein vika, sagði Hansen. — Hvernig stendur á að þér hafið ekki tilkynnt þétta fyrr? — Hún sagðist ætla í 'síma- turninn á horninu og hringja til hennar móður sinnar . . . það er vant að taká tíma. Svo að ég var ékkért hrædd- ur um hana fyrstu dágána. —v— Skólinn var úti og börn- in farin á burt, öll nema Halli litli. — Nú, hvað vilt þú? spurði kennarinn. — Mig langaði til að spyrja yður um hvað ég hef lært í dag. — Er það nú spurning! Hvernig dettur þér þetta í hug? — Hann pabbi spyr mig alltaf að því þegar ég kem heim. Á skrifstofunni. — Þér sitjið og sofið fram á borðið! öskraði skrifstofu- stjórinn. — Æ, afsakið þér. Litli strákurinn minn hélt vöku fyrir mér í alla nótt. — Komið þér þá með hann á skrifstofuna á morg- un. Sterkt nýtt vopn í baráttu yðar gegn tannskemmdum Látið fjölskyldu yðar byrja að nota Einfaldar reglur, sem tryggja heilbrigðar tcnnur Það eru tvær grundvallarreglur, sem tryggja heilbrigðar tennur: (i) Burstið tennurnar reglulega tvisvar á dag. (2) Farið til tannlæknis tvisvar á ári. Munið að regluleg tannhreinsun er undirstaða heilbrigðra tanna og góms, hreins og fersks munns. Með því að bursta tennurnar vel f jarlagið þér mat, sem annars myndar skaðlegar sýrur. Burstið upp og niður, einnig bak við tennurnar, —verið vandvirk. Farið reglulega til tannlæknis, það sparar yður óþægindi og sársauka. Heilbrigðar tennur eru dýrmæt eign: þær auka gott heilsufar, velliðan og fegurð. Hirðið þvi vel um tennur yðar. Gibbs nÍBH1!1!gfillH!p Fluor TANNKREM X-GF 2/ICE-804! HIÐ NYJA GIBBS FLUOR TANNKREM STYRKIR TENNUR YÐAR GEGN SYRUM OG VERÐUR AHRIFA VART INNAN 21 DAGS: Um leið og þér byrjið að bursta tennurnar með Gibbs Fluor tannkremi verði þær ónæmar fyrir skaðlegum áhrifum munnvatnssýranna. Allir vita að sýrur valda tannskemmdum. Gibbs Fluor tannkrem styrkir glerung tannanna og gefur þeim meira mótstöðuafl gegn skaðlegum sýrum. Eftir þrjár vikur fer að gæta áhrifanna og þá getið þér varið tennurnar betur en nokkru sinni fyrr. Hin leynilega Gibbs formúla sem styrkir glcrung tannanna táknar stórkostlega framför á sviði tannvarna, þess vcgna er Gibbs Fluor tannkrem sterkasta vopnið í baráttu yðar við tannskemmdum. Þess vegna ættuð þér að byrja að nota Gibbs Fluor tannkrem strax í dag. Eftir 21. dagsnotkun Gibbs Fluor tannkrems, kvölds og morgna, hafa tcnnur yðar öðlast þann styrkleika, sem nauðsynlegur er gegn skaðlegum áhrifum sýranna. \ Hvernig Virkar Gibbs Fluor? Gibbs Fluor inniheldur efnasamsetningu sem hefur styrkjandi áhrif á glerung tannanna, sem nefnist “stannous fluoride”, sem ekki er hægt að nota í venjulegt tannkrem. Það þurfti fremmstu og reyndustu tannkremaframleiðendur Bretlands til að uppgötva formúlu þá, sem Gibbs Fluor tannkremið byggist á. Um leið og þér byrjið að nota Gibbs Fluor tannkrem virka efni þess á tvennan hátt, til að minnka upplausnarhættu glerung tannanna, svo bæði “stannous” og “fluoride” hafa þýðingarmiklu hlutvcrki að gcgna. FALKINN 5

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.