Fréttablaðið - 09.10.2009, Page 22
„Þegar Yoko kom hingað á síðasta
ári var 6. október, dagurinn sem
allt hrundi, nýliðinn og ákveðin
skelfing ríkti meðal landsmanna.
Þá kviknaði þessi hugmynd hjá
henni, að bjóða fríar siglingar til
Viðeyjar í kringum afmælisdag
Johns Lennon. Svo er eins
og örlætið hafi undið upp
á sig og niðurstaðan er
sú að hún hefur ákveð-
ið að bjóða líka upp á
stórtónleika í Hafnar-
húsinu,“ segir Guðlaug
Elísabet Ólafsdóttir,
verkefnastjóri Við-
eyjar hjá menning-
ar- og ferðamálasviði
Reykjavíkurborgar. Í
tilefni tendrunar Frið-
arsúlunnar í dag býður
Yoko Ono, ekkja bítils-
ins fræga, Íslendingum upp
á fríar ferðir til Viðeyjar dag-
ana 9., 10. og 11. október. Í boði
Yoko verða einnig haldnir tón-
leikar til heiðurs John Lennon í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnar-
húsi.
Auk þess hefur Yoko Ono
ákveðið að bjóða Rauða krossi
Íslands að standa fyrir fjár-
söfnun samhliða þessum við-
burðum. Hún leggur einnig til
söfnunarinnar með beinum hætti,
en söfnunarfénu verður varið í
þágu fjölskyldna sem orðið hafa
fyrir áföllum vegna efnahags-
þrenginga undanfarna mánuði.
„Yoko var mjög umhugað um að
þessi viðburður leiddi til einhvers
góðs,“ segir Guðlaug.
Tónleikar til heiðurs John
Lennon voru haldnir á Nasa
fyrir réttum mánuði, á
fæðingardegi bítilsins,
undir yfirskriftinni
09.09.09. Að sögn Guð-
laugar verður í raun um
sömu dagskrá að ræða
á tónleikunum í kvöld,
þótt skipun söngvara
sé ekki sú sama í
smáatriðum. Meðal
þeirra sem syngja
þekkt lög Lennon
eru Egill Ólafs-
son, Björgvin
Halldórsson og
Krummi, sonur
hans, Jóhann
Helgason, Helgi
Björnsson og
Pál l Rósin-
kranz. Kynnir
er Ólafur Páll
Gunnarsson.
Dagskráin í
Hafnarhúsinu í kvöld hefst klukk-
an 20.00 þegar tendrun Friðar-
súlunnar verður sýnd beint á
tjaldi. Einnig verður sýnd heim-
ildarmynd Yoko Ono um friðar-
baráttu hennar og Lennons og
stiklur úr væntanlegri heim-
ildarmynd Ara Alexanders
Ergis um tilurð Friðarsúlunnar.
Minningartónleikarnir hefjast
klukkan 22.00. kjartan@frettabladid.is
Umhugað um að við-
burðurinn verði til góðs
Friðarsúlan verður tendruð opinberlega í þriðja sinn í kvöld. Yoko Ono býður upp á fríar ferðir til Viðeyj-
ar og minningartónleika um John Lennon af þessu tilefni. Rauði kross Íslands verður með fjáröflun.
Yoko Ono er
ekkja bítilsins
Johns Lennon.
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir er verkefna-
stjóri Viðeyjar.
Kveikt verður á friðarsúlunni
klukkan 20.00 í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
LISTAMAÐURINN Alexander Zaklynzky stendur fyrir kvikmyndasýn-
ingu í Hafnarhúsinu klukkan 18 á laugardag. Sýnd verður heimildarmynd-
in A Sea Change í leikstjórn Barböru Ettinger sem fjallar um áhrif meng-
unar og ofveiði á lífríki hafsins. Myndin hefur unnið til fjölda verðlauna.