Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 41
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 7neyðarkall ●
Slysavarnadeildir voru stofnaðar
vegna tíðra sjóslysa í upphafi síð-
ustu aldar og hafa verið starfandi
allar götur síðan. Með árunum
hafa verkefnin breyst. Í dag eru
þau margbreytileg og fara í raun
eftir þörfinni í hverju byggðarlagi
fyrir sig.
Deildirnar hafa löngum lagt
áherslu á slysavarnir barna og
byrja margar þeirra strax við fæð-
ingu barns með því að senda for-
eldrum nýburagjöf með bæklingi
félagsins, Er öryggi barna tryggt
á þínu heimili? Þær fylgja því svo
eftir úti í umferðinni með hjóla-
dögum og könnunum á öryggisbún-
aði barna í bílum sem hefur skilað
þeim árangri að einungis þrjú pró-
sent barna eru laus í bílum í dag,
frá því að vera 32 prósent þegar
kannanirnar voru fyrst gerðar
fyrir fjórtán árum.
Störf deildanna eru fjölbreytt
og skemmtileg og eru áhugasam-
ir hvattir til að hafa samband við
deildina í sínu byggðarlagi til að
athuga hvort þarna sé ekki rétti
starfsvettvangurinn til að gefa af
sér í þjóðfélaginu.
Slysavarnadeildir
Á síðasta ári tók Garðabær stórt
skref í átt að auknu öryggi eldri
borgara í sveitarfélagi sínu með því
að bjóða upp á öryggisheimsóknir til
allra bæjarbúa 75 ára og eldri í sam-
vinnu við Slysavarnafélagið Lands-
björg. Verkefnið er upprunnið hjá
einni af slysavarnadeildum félags-
ins og hefur síðan verði eflt og boðið
sveitarfélögum og var Kópavogur
það sveitarfélag sem reið á vaðið.
Samkvæmt Slysaskrá Íslands
eru 75 prósent slysa hjá eldri borg-
urum heima- og frítímaslys. Um 18
prósent þeirra sem slasast, slasast
það alvarlega að þeir þurfa að leggj-
ast inn á sjúkrahús og sumir þeirra
eiga aldrei afturkvæmt af stofnun-
um eftir það. Algengustu heima-
slysin hjá þessum aldurshópi eru
fallslys í svefnherbergjum eða setu-
stofu. Flest eru tengd þáttum sem
auðvelt er að laga, eins og hálum
gólfum, lélegri lýsingu og lausum
mottum. Þessir þættir eru meðal
þeirra fjölmörgu atriða sem skoð-
uð eru í heimsóknunum og ef íbúar
vilja er bætt úr öryggisatriðunum í
heimsókninni.
Heimsóknir til
eldri borgara
Samkvæmt Slysaskrá Íslands eru 75 pró-
sent slysa hjá eldri borgurum heima- og
frítímaslys. NORDICPHOTOS/GETTY
● INNFLUTNINGUR Á
SJÚKRAGÖGNUM Slysa-
varnafélagið Landsbjörg hefur
verið í fararbroddi í sölu sjúkra-
kassa og sjúkrabúnaðar í mörg ár.
Sjúkrakassar félagsins eru á fjölda
vinnustaða, heimila og sumar-
húsa um land allt.
Félagið hefur kappkostað að
hafa aðeins til sölu viðurkenndar
vörur, enda er val á sjúkrakössum
og innihald þeirra meðal annars
byggt á margra ára reynslu þeirra
félaga úr björgunarsveitum
félagsins sem sinnt hafa skyndi-
hjálparkennslu.
Nýverið var fyrirkomulagi
um sölu á sjúkrakössum og
sjúkrabúnaði breytt þannig að öll
sala og þjónusta er nú í höndum
Sjúkrakassaþjónustunnar ehf.
Vörur frá fyrirtækinu má einnig
fá á skrifstofu Slysavarnafélagsins
Landsbjargar.
Störf deildanna eru fjölbreytt og skemmtileg.
RISALEIKIR Í
MEISTARADEILD EV
RÓPU
Barcelona – Inter Mil
an
Arsenal – Standard L
iège
Debrecen – Liverpoo
l
Man.Utd. – Besiktas
NÓVEMBER
ALLT VINSÆLAST
A
ÍÞRÓTTAEFNI
Í HEIMI
TOPPSLAGIR Í ENSKA BOLTANUM
CHELSEA – MAN. UTD.
ARSENAL – CHELSEA
EVERTON – LIVERPOOL
LIVERPOOL – MAN. CITY
GOLFVEISLA
Heimsmótaröð
in í golfi
Dubai World Ch
ampionship
Chevron World
Challenge
ÞÝSKI HANDBOLTIN
N
Allir bestu handknatt
leiks-
menn Íslands
NBA
besti körfubolti í heim
i
BOX: SUPER SIX
MÓTARÖÐIN
Nikolai Valuev og
Manny Pacquiao
ENSKI DEILDABIKAR
INN
8. liða úrslit
LEIKUR ÁRSINS Á SPÁNIBarcelona – Real Madrid
5.390 KR.
Á MÁNUÐI Í 3 MÁNUÐI
FYRIR KREDITKORTHAFA VISA
FRÁBÆRT
ÁSKRIFTARTILBOÐ
Á AÐEINS
5.290 KR.
Á MÁNUÐI Í 3 MÁNU
ÐI
FYRIR KREDITKORTH
AFA VISA
FRÁBÆRT
ÁSKRIFTARTILBOÐ
Á AÐEINS