Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 22
22 5. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
GÓÐ HÚSRÁÐ
CAPPUCCINO ÁN
FLÓUNARSTÚTS
NEYTENDUR Ekki er útilokað að flugfélög í Noregi séu
sek um að villa um fyrir neytendum við útreikninga
á sköttum og öðrum gjöldum sem leggjast ofan á
fargjöldin. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem
unnin er af evrópskum vinnuhópi sem stýrt er af
umboðsmanni neytenda í Noregi og var kynnt í Ósló
í fyrradag.
Í skýrslunni segir að rannsóknir sýni að meira en
helmingur þeirra gjalda sem flugfélög kalli skatta
og aðrar greiðslur séu í raun rekstrarkostnaður. Það
geti villt um fyrir neytendum, sem telji fargjöldin
ódýr. Þá mun hafa komið í ljós að þau mörgu og mis-
munandi hugtök sem notuð eru til að lýsa sköttum
og öðrum greiðslum gera neytendum ákaflega erfitt
að bera saman tilboð flugfélaga.
Mælt er með því að heildarverð fyrir fargjald
skuli ávallt koma fram og að gjaldið skuli sett
saman úr þremur kostnaðarliðum, það er fargjaldi,
flugvallarsköttum og ríkissköttum. Önnur óhjá-
kvæmileg gjöld eins og eldsneytisálag, innrit-
unargjöld og þess háttar eiga að vera innifalin í
fargjaldinu.
Í rannsókninni fyrir gerð skýrslunnar var
upplýsingum safnað um 281 flug hjá 24 leiðandi
flugfélögum á 34 stórum flugvöllum víðs vegar um
Evrópu. Meðal þeirra voru Icelandair og Iceland
Express en upplýsinga var aflað frá Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. - jab
VÉL FRÁ ICELANDAIR Iceland Express og Icelandair tóku þátt í
rannsókn á verðlagningu flugmiða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Flugfélög hugsanlega sek um að villa vísvitandi um fyrir viðskiptavinum sínum:
Erfitt að bera tilboðin saman
Vatn er ekki bara vatn.
Sumir vatnsdrykkir eru
hættulegir tannheilsunni,
en aðrir skaðlausir með
öllu. Neytendur kunna ekki
alltaf að greina þar á milli.
Gosdrykkjaframleiðendurnir Vífil-
fell og Ölgerðin hafa síðustu miss-
eri sett á markað hverja nýjungina
á fætur annarri til þess að svala
þörf okkar fyrir svaladrykki.
Neytendur átta sig ekki alltaf
á því að sumir bragðbættu vatns-
drykkirnir, svo sem Kristall plús
og Eðaltoppur, eru með álíka
mikið sýruinnihald og gosdrykkir
og ávaxtasafar, sem þýðir að þeir
geta valdið glerungseyðingu.
Fjallað var um þessi mál á ráð-
stefnunni Heilsan og innkaupa-
karfan, sem heilbrigðisvísinda-
svið Háskóla Íslands efndi til í
síðustu viku. Þar voru meðal ann-
ars kynntar nýjar rannsóknir á
sýrustigi vatnsdrykkjanna.
Samkvæmt þeim rannsóknum er
sýrustig nýju bragðbættu vatns-
drykkjanna yfirleitt á bilinu 2,5
til 3,5. Þetta er svipað og sýrustig-
ið í öðrum gosdrykkjum, ávaxta-
söfum, íþróttadrykkjum og orku-
drykkjum.
„Það er synd að þessu sé stillt
upp sem hollustudrykkjum,“ segir
Inga B. Árnadóttir, forseti tann-
læknadeildar Háskóla Íslands,
sem hefur sérstaklega áhyggjur
af tannheilsu barna og unglinga.
Gamla sódavatnið er hins vegar
hættulaust, og sömu sögu er að
segja um gamla
Toppinn og Krist-
alinn, jafnvel þótt
til dæmis epla-
eða sítrónu-
bragði sé bætt
út í.
A nd r i Þ ór
Guðmundsson,
forstjóri Ölgerð-
arinnar, segir
að Kristall
plús og hinir
bragð-
bættu
vatns-
drykk-
irnir hafi
verið sér-
staklega
þróaðir
með holl-
ustu í huga
handa fólki
sem vildi
losa sig við
sykurinn.
„Við
bjuggum
til þennan
drykk sem
millistig
fyrir fólk
sem fannst
stökkið
í Kristal
kannski
of stórt af
því að það
vantaði fyll-
ingu í bragðið. Þessi drykkur er
hannaður til að vera hollur í alla
staði.“
Frá sjónarhóli tannverndar er
það hins vegar sítrónusýran sem
er varhugaverð, því þótt sykur-
inn vanti og viðbættu vítamínin
séu holl veldur sýran glerungs-
eyðingu.
„Við viljum fyrst og fremst
benda fólki á að kynna sér inni-
haldið og gera sér grein fyrir því
hvað efnin í þessum drykkjum
geta gert,“ segir Hólmfríður Guð-
mundsdóttir, tannlæknir hjá Lýð-
heilsustöð.
Hún bendir einnig á
að í raun sé drykkju-
mynstrið hættulegast,
ekki endilega drykk-
irnir sjálfir.
„Þetta er mikið háð
því hversu ört fólk
er að drekka þetta.
Það tekur munnvatn-
ið 20-25 mínútur að
hlutleysa sýru-
stigið í munnin-
um, þannig að
hættulegast er
ef fólk er að
súpa á flösk-
unum allan
daginn á nokk-
urra mínútna
fresti.“
gudsteinn@
frettabladid.is
Sýrurnar éta
glerunginn
VARHUGAVERÐIR
HOLLUSTU-
DRYKKIR Þótt
Kristall sport og
Eðaltoppur séu
meinhollir drykkir
stafar tönnunum
hætta af.
HÓLMFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Yfir-
verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð hvetur
fólk til að kynna sér innihald bragð-
bættu vatnsdrykkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Neysla á léttvíni miðað við sölu
> Magn 1.000 lítrar
■ Jón Gestur Sörtveit
„Ef menn vilja búa til
cappuccino en eiga
ekki espressovél með
flóunarstút þá kann
ég eitt ráð sem virk-
ar,“ segir Jón Gestur
Sörtveit, ráðgjafi hjá
Atómstöðinni og áhugamaður um
kaffi. „Það er að hella upp á bragð-
mikið kaffi, svona 30 millilítra, og
skella svo svona 30 til 40 millilítrum
af fjörmjólk í tvær mínútur í örbylgju í
plastíláti, þannig að hún brenni ekki.
Svo er mjólkin stífþeytt með písk og
hellt úr í kaffið, og þá ertu kominn
með cappuccino.“ Jón Gestur segir
fjörmjólkina virka betur en aðrar
tegundir því hún þeytist best.
Sími 551-7722 · www.indianmango.is
Eldumindverskt
með hjartanu
Á horni Frakkastígs og Grettisgötu
IndianMangoRestaurant
Indian Mango í 2 sæti á
Trip Advisor
*An experience you won
’t want to miss!”
*Absolutely delicious
*Like nothing we have ta
sted before, lovely.
*Indian Mango is worth
a trip to Iceland
*One of the best in the w
orld...
*What a surprise to find
such excellent Indian
food in Iceland
Gluten
free
food
Blaðad
ómar:
Matur o
g Vín, M
orgunbla
ðið,
Steingrím
ur Sigur
geirsson
:
„Ný vídd
í indver
skri mat
argerð á
Íslandi“
„Magna
ður Man
gó“
Allt, Fré
ttablaði
ð, Edda
Jóhanns
dóttir
„Að elda
indversk
t með hj
artanu“
„Að vera
í matar
boði hjá
George
er eins o
g að
vera stad
dur á fím
m stjörn
u veiting
astað“
Sirrý skr
ifar, Mo
rgunblað
ið,
Sigríður
Arnardó
ttir
„...á fráb
ærum ve
itingasta
ð á heim
smælikv
arða
á Frakka
stíg.“
Sendiherra Indlands á Íslandi:„Wonderful food and service.. will definately recommend you...“
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS.
1987 1997 2007
1.672,0 1.720,9
4.000,5
„Verstu kaupin voru þegar ég keypti amerískan
bíl sem ég átti í hálft ár og var eiginlega bilaður
alveg frá því ég keypti hann,“ segir
Sigmar B. Hauksson, formaður Skot-
veiðifélags Íslands og matgæðingur
með meiru.
„Á endanum kostaði þessi bíll
mig mun meira en ég nokkurn tíma
borgaði fyrir hann á sínum tíma.
Hann var ekki bara venjulega bilaður
heldur var hann alltaf og stöðugt
bilaður. Svo bara dó hann og var aldrei
notaður framar. Ég man að maðurinn
sem seldi mér bílinn var alveg
óhemjulega glaður og vinkaði
mér þegar ég ók burtu,“ minn-
ist Sigmar þessa ómögulega
bíls.
„Bestu kaupin voru hins
vegar gúmmístígvél sem ég keypti fyrir um
tuttugu árum. Ég man ekki hvað þau kostuðu en
þegar ég fór að borga kostuðu þau tífalt meira
en ég hélt því ég hafði misreiknað mig um
eitt núll. Ég kunni ekki að hætta við þarna í
búðinni svo ég lét mig hafa það og keypti
stígvélin,“ rifjar Sigmar upp.
„Ég hafði miklar efasemdir um þetta
og brá ónotalega þegar ég sá Vísareikn-
inginn en þetta reyndust einhver bestu
kaup sem ég hef gert því ég á
þessi stígvél enn og það
sér ekki á þeim. Ég er
búinn að nota þau
alveg gríðarlega
mikið í stangveiði
og skotveiði og
gleðst jafnan þegar
ég fer í þau.“
NEYTANDINN: SIGMAR B. HAUKSSON
Stígvél á tíföldu verði og bilaður bíll