Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 65
FIMMTUDAGUR 5. nóvember 2009 45
Milljarðamæringurinn og harð-
jaxlinn 50 Cent lýsti nýlega yfir
að hann eyddi rúmlega tveimur
milljónum króna í öryggi sitt í
hverri einustu viku.
„Heimili mitt er umkringt
myndbandsupptökuvélum,“ sagði
hann. „Ég þarf eftirlit. Ekki
aðeins til að líta eftir mér, held-
ur einnig til að verja mig. Það
er alltaf verið að kæra mig fyrir
allan fjandann og ég þarf mynda-
vélar til að fylgjast með
hlutunum.“
50 Cent
hefur lög að
mæla, en hann
hefur ósjaldan
verið fyrir rétti
síðustu ár.
Þá hefur oft
verið skotið
á hann svo
að yfirdrifin
öryggisgæsl-
an er skilj-
anleg.
Eyðir millum
í eigið öryggi
MÚRAÐUR
50 Cent
er annt um
öryggi sitt.
Hljómsveitin Múgsefjun kom
firnasterkt inn í fyrra með frum-
burð sinn, plötuna Skiptar skoð-
anir. Nú er farið að heyrast nýtt
lag með sveitinni, „Lesið í marm-
arann“, þar sem Spilverks-legur
Múgsefjunartónn er sleginn með
ógn „ástandslegum“ texta.
„Við erum að spá í að koma með
plötu með vorinu,“ segir Brynjar
Páll Björnsson, bassaleikari sveit-
arinnar. „Við erum bara í hálfgerð-
um dvala núna á meðan við semj-
um ný lög og tökum þau upp. Við
tökum svo eitt og eitt gigg til að
halda okkur við spilalega.“
Björn segir tónlist Múgsefjun-
ar vera í sífelldri endurskoðun.
„Næsta plata verður ekki eins
poppuð og hin, þó nýja lagið gefi
það kannski ekki í skyn. Við erum
að færast meira inn á rokkbraut-
ir og flækja okkur pínulítið meira
en áður. Þetta er bara skemmtileg
framþróun, held ég,“ segir hann.
Músefjun flækir sig
PLATA MEÐ VORINU Múgsefjun á Airwa-
ves í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Þetta er vefrit um íslenska list, allt frá tón- og
myndlist til kvikmyndagerðar og arkitektúrs. Við
höfum nú þegar gefið út þrjú blöð á heimasíðu okkar
pdflistin.is, en þangað getur fólk sótt vefritin. Hvert
rit er um þrjátíu til fjörutíu blaðsíður og hver lista-
maður fær í það minnsta eina opnu undir verk sín
og stutta umfjöllun,“ segir Heimir Gústafsson, einn
aðstandenda vefritsins PDFlistin. Ritið er gefið út
mánaðarlega og fjallar um íslenska neðanjarðarlist
auk þess sem stefnt er að því að halda listasýningar
í kjölfar hverrar útgáfu.
„Ég held að þetta sé eina PDF-tímaritið sem gefið
er út hér á enskri tungu. Þetta er góð auglýsing
fyrir íslenska listamenn því það er hægt að nálg-
ast vefritið um allan heim þannig það fær mjög víða
dreifingu,“ segir Heimir, en hann og samstarfsfé-
lagar hans stunda allir einhvers konar listnám og
því er unnið að vefritinu í hjáverkum. „Við erum öll
annað hvort í skóla eða vinnu og reynum að vinna að
ritinu í frítíma okkar enn sem komið er.“
Áhugasamir listamenn geta fengið umfjöllun í
vefritinu með því að senda póst á pdflistin.mag@
gmail.com. - sm
Íslensk list á alheimsvefnum
LISTRÆNT VEFRIT Heimir Gústafsson, Ásdís Gunnarsdóttir og
Haraldur Ari Karlsson standa að útgáfu vefritsins PDFlistin sem
fjallar um íslenska list. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Söngvarinn Robbie Williams
hefur staðfest að hann ætli að
starfa aftur með fyrrverandi
félögum sínum í Take That.
Robbie yfirgaf strákabandið
árið 1995 og hóf eigin sólóferil
sem hefur gengið vonum fram-
ar. Í spjallþætti Jonathan Ross
á BBC sagðist Robbie vonast til
að bralla eitthvað nýtt með Take
That. „Við höfum hist og gert hitt
og þetta. Ég get ekki sagt mikið
meira,“ sagði söngvarinn. Þátt-
urinn verður sýndur í heild sinni
á morgun. Take That lagði upp
laupana árið 1996 en kom aftur
saman 2005 án Robbie Williams,
við frábærar undirtektir.
Robbie aftur
í Take That
TAKE THAT Hljómsveitin Take That áður
en Robbie Williams sagði skilið við
hana.