Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 51
FIMMTUDAGUR 5. nóvember 2009 31
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur
til að senda línu og leggja orð í
belg um málefni líðandi stundar.
Greinar og bréf skulu vera stutt
og gagnorð. Tekið er á móti efni á
netfanginu greinar@frettabladid.
is eða á vefsíðu Vísis, þar sem
finna má nánari leiðbeiningar.
Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í
Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum
miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og
til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir skrif-
ar um kynheilbrigðismál
Heildstæð stefnumótun í málefn-um kynheilbrigðis hefur ekki
verið mörkuð hér á landi. Vegna
þessa eru enn meiri líkur á að við
stöndum ekki vel að vígi til að tak-
ast á við afleiðingar kreppunnar
hvað varðar kynheilbrigði. Í ljósi
núverandi ástands er vert að líta
til reynslu Svía af áhrifum efna-
hagskreppunnar þar í landi upp
úr 1990 á kynfræðslu og kynheil-
brigðisþjónustu. Á þeim tíma var
dregið mjög úr framlögum til kyn-
fræðslu í sænskum skólum. Ára-
tug síðar voru Svíar að súpa seyð-
ið af þessari aðgerð þegar ýmsum
vandamálum sem tengjast kynlífi
og frjósemisheilbrigði fór fjölg-
andi. Skortur á stefnumótun og
heildarsýn í kynfræðslu, forvörn-
um og kynheilbrigðismálum bitnar
óneitanlega á þeim sem síst skyldi,
börnum og unglingum. Því væri
það verðugt verkefni að kanna
áhrif efnahagshrunsins 2008 hér
á landi á kynheilbrigði, ekki síst
meðal ungs fólks.
Árið 2000 lögðu Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin (WHO)
og Pan Am heilbrigðisstofnun-
in (PAHO) áherslu á nauðsyn
þess að þjóðir heims legðu sitt af
mörkum til að skapa kynferðis-
lega heilbrigð samfélög. Slík sam-
félög grundvallast samkvæmt
skýrslu þessara stofnana á átta
máttarstólpum, en þeir eru pólit-
ísk ábyrgð, skýr stefna, lög, rann-
sóknir, menntun og þjálfun þeirra
sem veita fræðslu og þjónustu,
góð kynfræðsla, menning og eft-
irlit. Saman mynda þessir mátt-
arstólpar eða áhersluatriði grund-
völlinn að kynferðislega heilbrigðu
samfélagi.
Þróun kynfræðslu og uppbygg-
ing kynheilbrigðisþjónustu hér á
landi ber þess nokkur merki að
heildstæða stefnumótun skorti
í báðum þessum málaflokkum.
Tökum nokkur dæmi. Pólitísk
ábyrgð og skýr stefna eru fyrstu
máttarstólparnir. Kynheilbrigði
eða kynheilsa er ótvírætt einn
af málaflokkum lýðheilsu, en er
þó hvergi að finna í núverandi
skipuriti Lýðheilsustöðvar. Kyn-
sjúkdómavarnir heyra undir sótt-
varnasvið landlæknisembættis-
ins, en þær eru aðeins einn þáttur
af mörgum sem heyra til kynheil-
brigðismála. Svo virðist sem hend-
ur Lýðheilsustöðvar séu bundnar
eigi hún að geta tekist á við mála-
flokkinn kynheilbrigði nema laga-
breytingar eða ný reglugerð um
varnir gegn kynsjúkdómum komi
til. Heilsuvísar kynheilbrigðis um
árangur kynfræðslu, kynlífsráð-
gjafar og forvarna hafa til dæmis
ekki verið tilgreindir hér á landi.
Kynheilbrigðismál er heldur ekki
að finna sem sérstakan málaflokk
í heilbrigðisáætlun stjórnvalda
til ársins 2010. Þar eru sett fram
markmið um að draga úr kyn-
sjúkdómum, þungunum unglings-
stúlkna og fóstureyðingum. Hins
vegar fylgir henni engin ætlun
um það hvern-
ig framkvæma
skuli áðurnefnd
markmið. Þótt
bæði heilbrigð-
isyfirvöld og
Heilsugæslan í
Reykjavík hafi
sett fram mark-
mið í því skyni
að byggja upp
kynheilbrigðis-
þjónustu fyrir unglinga hafa enn
engar framkvæmdaáætlanir verið
settar fram um það hvernig stað-
ið skuli að málum. Lög eru þriðji
máttarstólpinn. Árið 1975 voru sett
lög til að efla kynfræðslu og ráð-
gjöf um kynlíf í landinu og gáfu
þau góð fyrirheit. Rúmum þrjá-
tíu árum síðar er ljóst að minna
hefur orðið um efndir en til stóð,
til dæmis hvað varðar heildstæða
kynfræðslu. Hvergi er að finna
opinbera heildarsýn eða stefnu-
mörkun í málefnum kynfræðslu
fyrir kennara, stjórnendur skóla
eða annað fagfólk, en slíkar leið-
beiningar má finna víða erlendis.
Fimmti máttarstólpinn er mennt-
un og þjálfun þeirra sem veita
kynfræðslu og ráðgjöf. Í fram-
haldsskólum er kynfræðsla og ráð-
gjöf í málefnum kynheilbrigðis af
skornum skammti. Þar hefur skóla-
hjúkrunarfræðingum og forvarna-
fulltrúum í þeim skólum, þar sem
slíka er að finna, ekki verið gefinn
kostur á að sækja reglulega nám-
skeið eða fá markvissa þjálfun til
að sinna fræðslu og forvörnum í
sambandi við málaflokkinn kyn-
heilbrigði. Til dæmis er áberandi
hvað kynfræðsla virðist brota-
kennd þegar litið yfir markmið
kynfræðslu í námskrám grunn- og
framhaldsskóla. Af þessu má sjá
að máttarstólpar kynheilbrigðis-
mála á Íslandi standa á brauðfót-
um. Hið opinbera á þó ekki ein-
göngu að ábyrgjast fræðslu og
forvarnir á sviði kynheilbrigðis.
Samhliða opinberri stefnumótun í
kynheilbrigðismálum er það kost-
ur að margvísleg grasrótarsamtök
starfi á þessum vettvangi og að
gott samstarf sé á milli þeirra og
opinberra aðila. Þetta atriði heyr-
ir undir sjöunda máttarstólpann,
menningu. Í því felst að samfé-
lög og félagslegar hreyfingar geta
meðal annars stuðlað að opinni
umræðu um heilbrigði í kynlífi
og lagt sitt af mörkum í að styrkja
máttarstólpa kynheilbrigðis. Stjórn
Kynfræðifélag Íslands (Kynís), að
mínu frumkvæði sem þáverandi
formanns, hefur til dæmis beitt sér
fyrir því að sett yrði á laggirnar
háskólanám í kynfræði.
Höfundur er hjúkrunar- og kyn-
fræðingur á sviði kynfræðslu og
sérfræðingur í klínískri kynfræði
(NACS). Hún rekur Kynstur ráð-
gjafarstofu, sjá www.kynstur.is.
Standa stólpar kynheilbrigðismála á brauðfótum?
JÓNA INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
LANCÔME GJAFADAGAR
Í LYFJU LÁGMÚLA, SETBERGI OG LAUGAVEGI
FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG
Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir 2 Lancôme vörur:
~ Lancôme snyrtibudda
~ Primordiale krem 15 ml
~ Primordiale serum 10 ml
~ Lancôme maskari 2 ml
~ Color Fever varalitur
~ Svartur khol blýantur
~ Magnifique ilmur 5 ml
Fyrsti maskarinn sem þéttir
og gefur dramatískt útlit.
Augnaráð sem dáleiðir.
nýr HYPNÔSE DRAMA
Verðmæti kaupaukans kr. 13.000
Einnig aðrar gerðir kaupauka
Lágmúla 5 – sími 533-2309
Laugavegi 16 – sími 552-4045
Setbergi – sími 555-2306 * G
ild
ir
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t á
k
yn
ni
ng
u.
G
ild
ir
ek
ki
m
eð
2
B
oc
ag
e
eð
a
2
bl
ýö
nt
um
. E
in
n
ka
up
au
ki
á
v
ið
sk
ip
ta
vi
n.