Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 60
40 5. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
Fyrsta plata Feldberg,
Don‘t Be a Stranger, er
komin út. Feldberg er
samstarfsverkefni söngkon-
unnar Rósu Birgittu Ísfeld,
sem syngur að auki með
hljómsveitinni Sometime,
og Einars Tönsberg, sem
hefur gert það gott sem ein-
yrkinn Eberg. Allt byrjaði
þetta með grípandi popplagi
í auglýsingu.
„Það var vegna Kringluauglýsingar
(lagið „Running Around“) sem við
hittumst fyrst. Upp úr því fórum við
að hittast reglulega til að sjá svona
hvað kæmi út úr því,“ segir Einar.
„Það var svo sem ekkert markmið
í fyrstu en fljótlega varð ljóst að það
yrði plata úr þessu,“ segir Rósa.
Vinnuhraðinn er mikill þegar
verið er að búa til lög í auglýsing-
ar – „Það þarf alltaf helst að klára
á morgun,“ segir Einar – en band-
ið gat leyft sér yfirlegu við plötu-
gerðina: „Lögin fengu að malla. Að
gera þessa plötu var dálítið eins og
að keyra traktor eftir þjóðvegi.“
„Við vissum ekki alveg hvert
þetta stefndi fyrr en tvö síðustu
lögin urðu til. Þau eru lög númer
eitt og tvö á plötunni. Þá límdist
platan loksins saman og við urðum
fullkomlega sátt,“ segir Rósa.
Einar segir það miklu erfiðara
að búa til popptónlist en svokallaða
„erfiða tónlist“ – „Miklu erfiðara!
Maður er berari. Allir geta gagnrýnt
popptónlist réttilega því það skilja
allir popp. Ef þú ert úti í einhverju
horni með þína músík geturðu bara
sagt að fólk skilji ekki tónlistina
þína ef það fílar hana ekki. Annars
ákváðum við nú bara að gera góð
lög og pældum ekkert of mikið í því
hvað við værum að gera.“
„Vinur minn sagði mér að það
væri svipaður fílingur í okkur og í
The Cardigans, en samt ekki endi-
lega svipaðar lagasmíðar. Ég hef
annars verið að hlusta ógeðslega
mikið á Dylan upp á síðkastið og
líka á nýju Emilíönuplötuna,“ segir
Rósa.
„Ég hef nú aldrei gefið út plötu
nema einhver segi hana eins og
Bítlana. Ætli maður sé ekki bara
fastur í sínum gömlu áhrifavöldum,“
segir Einar.
Feldberg-dúettinn segir að ýmis-
legt sé „farið að rúlla“ í útrásar-
brasi hljómsveitarinnar en að aug-
lýsingalega sé platan „mett“ (tvö
lög af henni eru notuð í auglýsing-
um). Allt er í gangi: „Það er komið
flott band í kringum þetta og öllum
finnst bara ógeðslega gaman,“ segir
Rósa. Útgáfutónleikarnir verða í
Þjóðleikhúskjallaranum upp úr
miðjum nóvember.
drgunni@frettabladid.is
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Það eru alltaf að koma fram nýjar vefsíður sem gera tónlistarmönnum
kleift að koma tónlist sinni á framfæri. Hér á Íslandi er Gogoyoko nýj-
asta dæmið, en úti í hinum stóra heimi njóta vefirnir Bandcamp.com
og Soundcloud.com vaxandi vinsælda. Báðir eru þeir töluvert notaðar
af íslenskum tónlistarmönnum. Á
Bandcamp setja tónlistarmenn inn
plötur sem hægt er að hlusta á í
heild sinni en svo ræður tónlistar-
maðurinn hvort hann selur tón-
listina og hvaða verð hann setur á
hana. Algengt lágmarksgjald fyrir
eitt lag er einn dollari, en tíu doll-
arar fyrir plötu. Á meðal Íslend-
inga á Bandcamp eru Ruxpin,
Akranes-sveitin Worm Is Green
(sem var að gefa út nýja plötu,
Glow) og tónlistarkonan Unnur
Arndísardóttir sem kallar sig Uni,
en platan hennar Enchanted er
fáanleg á Bandcamp.
Á Soundcloud er ekki seld tónlist,
en tónlistarmenn nota vefinn mikið
til þess að kynna sig og setja inn
nýtt efni. Þar finnast allar tegund-
ir tónlistar, en vefurinn er samt
sérstaklega vinsæll hjá raf- og danstónlistarmönnum, þar á meðal
íslenskum. Þar má til dæmis hlusta á nýtt efni frá Biogen, Skurken,
Hypno, Captain Fufanu, Asli og Ruxpin, en tónleikar þess síðarnefnda
frá Réttum eru þar í heild sinni. Það er líka fullt af DJ-mixum, t.d. frá
Thor, President Bongo, Jack Schidt og DJ Yamaho. Oft er eingöngu
hægt að hlusta á tónlistina í þar til gerðum spilara, en stundum er líka
hægt að hala henni niður. Tónlistarmaðurinn sjálfur stjórnar því.
Eins og sést á þessum tveimur vefsvæðum er ekkert lát á flottri tón-
list á Netinu. Spurningin er bara hvað maður hefur mikinn tíma til að
hlusta.
Hvað hefurðu mikinn tíma?
UNI Tónlistarkonan Uni er með plötu
á Bandcamp-vefnum sem eins og
Soundcloud-vefurinn nýtur vaxandi
vinsælda.
> Plata vikunnar
Þorvaldur Þór Þorvaldsson
- Þorvaldur Þór Þorvaldsson
★★★
„Aðgengileg og vel spiluð
blanda af djassi, poppi og
rokki. Plata sem ætti að geta
höfðað til margra.“
- TJ
> Í SPILARANUM
Mumford & Sons - Sigh no More
Biffy Clyro – Only Revolutions
Molina and Johnson - Molina and Johnson
Weezer - Raditude
Helgi Björns - Kampavín
MUMFORD & SONSHELGI BJÖRNS
Julian Casablancas, söngvari
The Strokes, ætlar á næst-
unni að gefa út sitt fyrsta
jólalag. Lagið er hans útgáfa
af I Wish It Was Christmas
Today, sem heyrðist fyrst í
bandaríska gamanþættinum
Saturday Night Live. „Það
var gaman að semja þetta
lag. Allir virðast gera jóla-
lög einhvern tímann á lífs-
leiðinni og þess vegna lang-
aði mig að prófa þetta,“ sagði
Casablancas, sem gaf út sína
fyrstu sólóplötu fyrr í vik-
unni. „Núna get ég strikað
þetta út af listanum mínum.“
Lagið kemur út til niðurhals
og á sjö tommu smáskífu 21.
desember.
Casablancas með jólalag
JULIAN CASABLANCAS Söngvari The Strokes gefur út jólalag í desem-
ber.
Bandaríska hljómsveitin The
Flaming Lips hefur löngum verið
talin með þeim skrítnari í tónlist-
arbransanum. Sýrukenndur og til-
raunakenndur poppbræðingurinn
hefur oft á tíðum hitt í mark hjá
gagnrýnendum, sérstaklega með
plötunum The Soft Bulletin og
Yoshimi Battles the Pink Robots,
og hljómsveitin á sér dyggan aðdá-
endahóp innan indí-geirans.
Tólfta hljóðversplata The
Flaming Lips, hin tvöfalda Embry-
onic, kom út fyrir skömmu og
hefur fengið góða dóma hjá gagn-
rýnendum. Hún er sú fyrsta frá
sveitinni í þrjú ár, síðan At War
With the Mystics kom út við held-
ur misjafnar undirtektir.
Flest laganna á Embryonic urðu
til þegar þeir félagar spiluðu af
fingrum fram á þáverandi heim-
ili trommarans Stevens Drozd.
„Í byrjun voru þessi djammlög
oft ekkert sérlega spennandi. En
stundum komu upp augnablik
sem voru stórskrítin og á þeim
byggðum við þessa plötu,“ sagði
söngvarinn Wayne Coyne. Hann
bætir við að á plötunni sé vaðið
úr einu í annað, líkt og á frægum
tvöföldum plötum Bítlanna og Led
Zeppelin. „Meðal uppáhaldsplatn-
anna eru Hvíta albúmið, Physical
Graffiti og meira að segja lengri
plöturnar frá The Clash. Ástæðan
er að hluta til sú að þar er enginn
einn stíll og einn heildarsvipur
var ekki aðalmálið. Það var ein-
hvern veginn allt látið flakka,“
sagði Coyne.
Á meðal þeirra sem aðstoða
Coyne og félaga á nýju plötunni er
hljómsveitin MGMT, sem spilar í
laginu Worm Mountain, og Karen
O, söngkona Yeah Yeah Yeahs,
sem syngur í lögunum I Can Be a
Frog og Watching the Planets. - fb
Í fótspor Bítlanna og Zeppelin
WAYNE COYNE Embryonic er fyrsta
tvöfalda plata hljómsveitarinnar The
Flaming Lips.
Eins og traktor á þjóðvegi
ÞAÐ SKILJA ALLIR POPPTÓNLIST Hljómsveitin Feldberg þreföld í roðinu.
MYND/TÓMAS MAGNÚSSON
Feldberg-umslagið. 10cc-umslagið.
„KÓVER-KÓVER“
Það fer ekki á milli í hvað Feldberg vitnar með plötuumslagi plötunnar. Það
er sláandi líkt How Dare You? sem hljómsveitin 10cc sendi frá sér árið 1976.
Umslagið er eitt af mörgum sem listhönnunarhópurinn Hipgnosis hann-
aði, en Birgir Ísleifur Gunnarsson – Biggi í Motion Boys – tók myndirnar á
Feldberg-umslaginu. „Það er ekkert kóverlag á plötunni, en það er kóver-
kóver!“ gantast Einar. „Þetta er uppáhaldsumslagið mitt og er búið að vera
það lengi. Þegar ég var krakki dundaði ég mér við að skoða það,“ segir Rósa.
„Ég rakst svo á það aftur í plötuumslaga-bók nýlega og fannst það vera
fullkomið fyrir okkur.“
Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir!
Fréttablaðið er með 106% meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað, höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009.
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna
dagblað landsins með glæsilegt
forskot á samkeppnisaðila sinn
eins og síðasta könnun Capacent
Gallup ótvírætt sýnir.
Við erum auðvitað rífandi stolt af
þessum góða árangri og bendum
auglýsendum á að notfæra sér
forskot okkar þegar þeir velja
auglýsingamiðill.
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
72%
35%
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki