Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 68
48 5. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR Tónlist ★★★ Riceboy Sleeps Jónsi og Alex Afslappað og fallegt Riceboy Sleeps er fyrsta plata Jónsa í Sigur Rós og kærasta hans Alex Somers. Þetta er hálfgerð ambient-tónlist þar sem áhersla er lögð á að skapa töfrandi andrúms- loft þar sem kórsöngur, fiðlur og píanó koma helst við sögu. Lögin svífa áfram og hljóma stundum eins og inngangur að þessum frægu, löngu Sigur Rósar-lögum án þess að fara nokkurn tímann á svakalegt flug, enda er ekkert þarna sem grípur mann heljar- tökum. Mest heyrist í Jónsa í hinu níu mínútna Indian Summer, sem er reyndar ansi fagurt. Platan er mínimalísk, vel gerð og falleg á köflum en ég efast um að Riceboy verði oft á fóninum í framtíðinni, nema þegar maður vill slaka vel á og leita á slóðir töfrandi drauma- heima. Freyr Bjarnason Niðurstaða: Falleg og mínimalísk plata frá Jónsa og Alex. Tímaritið Star Magazine heldur því fram að Chris Martin, söngv- ari hljómsveitarinnar Coldplay, hafi haldið framhjá eiginkonu sinni með Kate Bosworth. Mart- in hefur verið giftur leikkonunni Gwyneth Paltrow frá árinu 2003 og eiga þau saman tvö börn. Samkvæmt heimildarmönnum Star Magazine sást til Martins og Bosworth á U2-tónleikum í Las Vegas þar sem þau létu vel að hvort öðru og virtist engu máli skipta þótt fjöldi manns yrði vitni að kossaflensi þeirra. Talsmenn Bosworth og Martins hafa þvertek- ið fyrir að sögusagn- irnar séu sannar, en Bosworth var nýlega sögð eiga í sambandi við sænska leikarann Alexander Skarsgård úr þáttunum True Blood. Kossaflens á almannafæri FRAMHJÁHALD? Chris Martin er sagður hafa kysst aðra konu en eiginkonu sína. „Lagið er algjörlega hefðbundið. Fyrsta hefð- bundna lagið sem ég sem,“ segir Ingólfur Þórar- insson – betur þekktur sem Ingó Veðurguð. Ingó sendir frá sér lagið Jólakrakkar fyrir jólin, en vefsíðan Monitor.is greindi frá þessu í vikunni. Hann segir allar jólaklisjurnar fá að njóta sín í laginu. „Allar jólaklisjurnar eru þarna í einum kór og allir hressir. Jólasnjór og ekkert vesen,“ segir Ingó, sem var staddur á Austfjörðum í miðri hringferð þegar Fréttablaðið náði á hann. „Það eru jólahljóðfæri, smá bjöllur og svo mætir jólasveinn og tekur bakraddir.“ Ingó segist vera jólabarn, en þrátt fyrir það var aldrei ætlunin að senda frá sér jólalag. „Ég ætlaði aldrei að gera jólalag. Svo bað Húsasmiðjan um stutt stef og ég sagði já og ákvað að klára lagið fyrst ég var mættur í stúdíóið,“ segir hann. „Nú er það tilbúið og það er alveg eins hægt að setja það í spilun fyrir jól.“ - afb Ingó gefur út jólalag JÓLABARN Ingó sendir frá sér hefðbundið jólalag á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ritgerð eftir leikkonuna Natalie Portman birtist nýverið í dag- blaðinu Huffington Post. Í ritgerðinni fjallar hún um heimssýn grænmetisæta, en leikkonan er þekkt fyrir að neyta ekki kjöts. Portman þótti þó heldur harðorð í garð þeirra sem kjósa að borða kjöt þegar hún líkti því við nauðg- un. „Það þarf skynsama hugsun til að geta tal- ist manneskja og betri útskýringu en „Mér finnst þetta bragðgott og þess vegna borða ég kjöt“. Ég er andvíg skoðunum Michaels Pollan í bókinni The Omnivore‘s Dilemma, sem fjall- ar heldur um kurteisi en að standa með trú sinni og skoð- unum. Væri þessi hugsunar- háttur yfirfærður á annað dæmi mundi það hljóma fjar- stæðukennt, til dæmis, Ég er andvíg nauðgun en ég ætla samt að fremja nauðgun til að geðjast gestgjöf- um mínum.“ Þessi skrif leikkonunnar hafa farið fyrir brjóstið á mörgum og þykir mönnum hún hafa gengið of langt með samlíkingum sínum. Of langt gengið GEKK OF LANGT Leikkonan þótti ganga of langt með sam- líkingum sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.