Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 66
46 5. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
Merkileg sýning á gíturum
hófst í Tónlistarsafni
Íslands, Hábraut 2 í Kópa-
vogi, á þriðjudaginn.
Margar kempur úr tónlistar-
bransanum lögðu leið sína
í safnið til að berja fagrar
fjalirnar augum.
Á þessari þriðju sýningu Tónlistar-
safnsins eru sýndir nokkrir helstu
djass-, rokk- og blúsgítarar lands-
ins sem og helstu tegundir magn-
ara. Sögufræg hljóðfæri eru til
sýnis, sem mörg hver voru notuð
þegar þekktustu lög Íslandssög-
unnar voru spiluð inn á band.
Þarna má líka sjá fyrsta íslenska
rafmagnsgítarinn af tegundinni
Strengir, sem Friðgeir Sigur-
björnsson smíðaði á Akureyri árið
1957. Á veggjum hangir fróðleik-
ur um hljóðfærin og eigendasaga
þeirra og skein áhuginn úr augum
gesta þegar þeir skoðuðu gersem-
arnar. drgunni@frettabladid.is
Kvikmyndir ★★★★
The Informant!
Leikstjóri: Steven Soderbergh
Aðalhlutverk: Matt Damon
Glórulaus uppljóstrari
Alríkislögreglan fær Mark Whitacre, rísandi stjörnu innan fyrirtækis sem
framleiðir amínósýruna lýsín, til þess að aðstoða við að uppræta samráð
innan lýsínsmarkaðarins. Þegar lögreglan fer að vinna nánar með Whitacre,
kemst hún að því að hann er ekki allur þar sem hann er séður.
The Informant! er leikstýrt af Steven Soderbergh, sem hefur meðal
annars gert Traffic og Ocean’s-myndirnar. Soderbergh tekst ávallt að koma
mér á óvart með fjölbreytilegum stíl sínum og er The
Informant! engin undantekning þar á. Hér nálgast
hann sannsögulegt viðfangsefni myndarinnar
sem grátbroslegt gamandrama og tekst vel til.
Handritið er áhugavert og ekki líður langt á milli
bráðfyndinna samtala.
Matt Damon neglir hlutverk uppljóstrarans
Whitacre með prýði. Þrátt fyrir að hann sé djúpt
sokkinn í skrifstofupólitík, spillingu og tugi aug-
ljósra lögbrota getur maður ekki annað en fundið til
með honum. Það skín í gegn að hann vill vel
en er augljóslega með lausa skrúfu.
Nálgun Soderberghs á efninu og góður
leikur Damons gerir Informant!
að skemmtilegri og áhuga-
verðri kvikmynd. Ekki er
annað hægt en að brosa
yfir því að aðgerðir hins
glórulausa Whitacres, í skjóli
þess að bæta vinnustað sinn,
hafi kostað hundruð fyrirtækja
marga milljarða í sektir vegna
verðsamráðs og breytt rekstri
fyrirtækja um allan heim.
Vignir Jón Vignisson
Niðurstaða: Áhugaverð og fyndin mynd með
góðum leikurum.
ÞRJÚ GÍTARSÉNÍ Ólafur Gaukur bendir Birni Thoroddsen og Jóni Páli Bjarnasyni á eitthvað sniðugt. Kannski á forláta hvítan Les
Paul Custom, sem hann notaði á Hótel Borg í kringum 1970 og er nú til sýnis í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Dóri Braga og Hreinn Valdimarsson
ræða um svartan Fender Stratocaster.
Óttar Felix Hauksson og Gunnar Örn
Sigurðsson við rafmagnsgítar sem sá
síðarnefndi smíðaði.
Fermingargítar Rúnars Þórs af gerðinni
Futurama.
DÁÐST AÐ MERKUM GÍTURUM
„Ég kalla þetta grúvgrúppuna,“
segir plötusnúðurinn Atli Rúnar
sem hefur stofnað hljómsveit-
ina A+. „Þetta er mitt hugarfóst-
ur. Það tekur oft á taugarnar að
vera popp-Dj, að hjakkast í sömu
partíblöðrunum allar helgar. Popp-
ið hefur eiginlega aldrei verið minn
vettvangur. Þessi tegund af tónlist
er nær mínu hjarta, svona house,
soul, fönk, grúv og diskó,“ segir
Atli Rúnar.
Með honum í A+ eru þeir Stein-
ar Sig, saxófónleikari, Jóhann
Hjörleifsson, slagverksleik-
ari og trommari Sálarinnar, og
bassaleikarinn Davíð Sveins.
Atli vill ekki meina að ætlunin
hafi verið að fylla upp í gat á mark-
aðnum með stofnun hjómsveitar-
innar, þó svo að giggin séu strax
farin að rúlla inn. „Mig langaði
bara til að gera eitthvað skemmti-
legt. Ég hef mikla trú á þessu og ég
hef mjög góða menn með mér.“
Tónlistin sem A+ spilar er ætluð
sem nokkurs konar bakgrunnstón-
list og til að skapa þægilega stemn-
ingu án þess að söngur komi við
sögu. „Þetta eru svona kokkteil-
boð og opnanir. Við tökum ekkert
gargið frá miðnætti og fram eftir,“
útskýrir Atli.
A+ kemur fyrst fram opinber-
lega á Pósthúsinu í kvöld og spilar
frá klukkan 22 til miðnættis. - fb
Þægileg bakgrunnstónlist A+
ATLI RÚNAR Plötusnúðurinn knái hefur
stofnað hljómsveitina A+, sem spilar á
Pósthúsinu í fyrsta sinn í kvöld.
MYND/AUÐUNN
Leikkonan unga Mischa Barton
var orsök slagsmála sem brutust
út á öldurhúsi nokkru í New
York-borg. „Ég stóð við hliðina á
náunga við barinn þegar Bart-
on gekk framhjá okkur. Áður en
ég veit af er náunginn búinn að
hella úr glasi sínu yfir Barton,
hún sneri sér við og spurði hvort
það hefði verið hann sem hellti
yfir hana. Náunginn sagðist hafa
gert það eftir að hún steig á tána
á honum,“ sagði sjónarvottur.
Barton svaraði fyrir sig með því
að skvetta úr sínum drykk fram-
an í manninn og gekk svo á brott.
Stuttu seinna kom vinur leikkon-
unnar til mannsins og bað hann
um að eiga við sig orð fyrir utan
barinn. „Þetta endaði með því að
sá sem hvolfdi úr drykknum gekk
haltrandi í burtu,“ sagði sjónar-
votturinn.
Fékk drykk
yfir sig
SVARAR FYRIR SIG Leikkonan Mischa
Barton lenti í slagsmálum á öldurhúsi.
Samband leikarans Mel Gibson
við kærustu sína, hina rússnesku
Oksönu, ku vera nokkuð stirt
aðeins nokkrum dögum eftir að
dóttir þeirra fæddist. „Mel áttaði
sig á því að vegna Oksönu hefur
hann lítið samband við börn sín.
Auk þess er hún mjög upptekin af
sjálfri sér, ferill hennar hefur for-
gang, ekki sambandið,“ sagði vinur
leikarans um málið. Að sögn vin-
arins saknar Gibson fyrrverandi
konu sinnar, Robyn, og sér mikið
eftir því að hafa komið eins illa
fram við hana og hann gerði.
Vinurinn segir jafnframt að
Gibson hafi hætt við væntanlegt
brúðkaup sitt og Oksönu og að tví-
sýnt sé hvort sambandið endist
mikið lengur.
Mel með bakþanka
MEÐ BAKÞANKA Mel Gibson sér eftir
fyrrverandi eiginkonu sinni og hefur
hætt við brúðkaup sitt og nýju kærust-
unnar.
Opið mán - föst 11:30 - 14:30
Opnunartilboð
Súpa, fi skur og
kaffi aðeins 990
gildir 5.nóv - 1
1.des.