Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 70
50 5. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 L L 16 L L 10 16 THIS IS IT kl. 5.30 - 8 - 10.30 THIS IS IT LÚXUS kl. 8 - 10.30 ZOMBIELAND kl. 6 - 8 - 10 FRIÐÞJÓFUR FORVITNI 2 kl. 3.40 JÓHANNES kl. 4 - 6 - 8 - 10 9 kl. 4 STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 5.20 - 8 - 10.40 SÍMI 462 3500 THIS IS IT kl. 5.45 - 8 - 10.10 JÓHANNES kl. 8 - 10 STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 5.40 * * Síðasta sýning L L 16 L 16 7 L L THIS IS IT kl. 5.30 - 8 - 10.30 ZOMBIELAND kl. 10 CAPITALISM kl. 6 - 9 JÓHANNES kl. 6 - 8 GUÐ BLESSI ÍSLAND kl. 5.45 SÍMI 530 1919 16 12 16 12 16 PARANORMAL ACTIVITY kl. 6 - 8 - 10 WANTED AND DESIRED kl. 5.45 ZOMBIELAND kl. 10.15 BROKEN EMBRACES kl. 6 - 9 STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 6 - 9 SÍMI 551 9000 SÍÐUSTU SÝNINGAR SÝN ING UM FER FÆ KKA ND I - A.K. - ÚTVARP SAGA - A.S.G. - BYLGJAN SÝND ÚT NÓVEMBER SÖKUM VINSÆLDA UPPLIFÐU LISTAMANNINN EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR. ÁÐUR ÓSÉÐ MYNDEFNI SEM HEIMURINN HEFUR BEÐIÐ EFTIR. Síðustu sýningar AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ, BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL..com/smarabio 25.000 MANNS! BÚÐU ÞIG UNDIR MATRÖÐ SEM ÞÚ GLEYMIR SEINT. SLÁANDI, ÓGNVEKJANDI OG SVO MÖGNUÐ AÐ ÞÚ SITUR EFTIR Í LOSTI! Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna16 V I P V I P 16 16 16 16 12 12 12 1212 12 L L L L L L L L TOM CARSON, GQ “MATT DAMON IS A JOY TO WATCH.” LEONARD MALTIN, ENTERTAINMENT TONIGHT “CLEVER, ORIGINAL AND VERY FUNNY.” THE INFORMANT kl. 5:50 - 8 - 10:20 THE INFORMANT kl. 8 - 10:20 TOY STORY 1 M/ ísl. Tali kl. 6(3D) COUPLES RETREAT kl. 5:50 - 8 - 10:20 GAMER kl. 8 - 10:20 GAMER kl. 6 FAME kl. 5:50 - 8 ORPHAN kl. 10:20 SURROGATES kl. 8 SÍÐ SÝN ALGJÖR SVEPPI kl. 6 FUNNY PEOPLE kl. 10 SÍÐ SÝN THE INFORMANT kl. 8:10 - 10:30 TOY STORY 1 M/ ísl. Tali kl. 6:15(3D) COUPLES RETREAT kl. 8:10D - 10:30D SKELLIBJALLA M/ ísl. Tali kl. 6:15D ORPHAN kl. 10:30 SURROGATES kl. 8:30 SÍÐ SÝN UPP M/ ísl. Tali kl. 6:15 COUPLES RETREAT kl. 8 ORPHAN kl. 8 - bara lúxus Sími: 553 2075 PARANORMAL ACTIVITY kl. 6, 8 og 10 16 COUPLES RETREAT kl. 8 og 10.15 12 FRIÐÞJÓFUR FORVITNI: ELTIÐ APANN kl. 6 - Ísl. tal L JÓHANNES kl. 6, 8 og 10 L T.V. - Kvikmyndir.is 26.000 MANNS Tónlist ★★★★ IV Hjálmar Hjálmar hljóðrituðu þessa fjórðu breiðskífu sína að hluta til í hinum goðsagnakenndu Tuff Gong og Harry J. stúdíóum á Jamaíku, fæðingarstað reggítónlistarinnar, með aðstoð þarlendra mikilmenna. Áhrifin leyna sér ekki. Sveitin nær hér loks að samstilla alla nauð- synlega strengi og útkoman er ein allra besta plata ársins. Strax í upphafslaginu, hinu ljúf- sára Í draumi, er ljóst að bandið er í gríðarlegu formi. Á það ekki síst við um forsöngvarann, Þor- stein Einarsson, sem fellur betur að undirspilinu en nokkru sinni fyrr með hófstilltri raddbeitingu, auk þess sem hann sýnir snilld- artakta í gítarleik eins og oftast áður. Þá syngur Sigurður Guð- mundsson orgelleikari tvö lag- anna með engu verri árangri, hið stórskemmtilega Það sýnir sig og Bob Marley-lagið Who the Cap Fit, sem umbreytist í Heyrist hverjum í ágætri snörun Braga Valdimars Skúlasonar (hörðustu áhugamenn hefðu líklega kosið að kafað hefði verið örlítið dýpra í reggí-kistuna í leit að heppilegu tökulagi, en verk- efnið er leyst með prýði). Raunar grúva Hjálmarnir sem heild svo ruddalega vel á plötunni að ekki hefði komið að sök að gefa ins- trúmental-köflum meira vægi hér og þar. Flestar lagasmíðarnar eru afbragðsgóðar og textarnir ein- faldir og áhrifaríkir í senn. Hið kunnuglega Manstu hefur alla burði til að verða sígilt popplag, Hærra ég og þú er einn vingjarn- legasti kreppusöngur sem heyrst hefur og Lítill fugl er einfald- lega gullfallegt. Dansvæna stuð- lagið Taktu þessa trommu brýtur upp stemninguna, á meðan Lýsi ljós þjónar sama tilgangi með dáleiðandi værð. Ska-gírinn góði sem Hjálmar eiga til að detta í er fjarverandi, en hefði aukið enn á fjölbreytnina. Flest er þó hér til fyrirmyndar. Reggíið er mun hreinræktaðra en áður hjá bandinu og hljóðblöndun eins og best verður á kosið með tónlist af þessu tagi. Umslagið (hannað af myndlistarmanninum Davíð Erni Halldórssyni) er með þeim flottari í seinni tíð og heim- ildarmynd um dvöl Hjálma á Jam- aíku sem fylgir með í pakkanum er skemmtileg viðbót. Dúndurefni frá einni bestu hljómsveit landsins. Kjartan Guðmundsson Niðurstaða: Alvöru reggí á bestu plötu Hjálma, sem er jafnframt ein besta plata ársins. Hjálmarnir í háloftunum Einar Már er kominn heim úr frægðarför um Danmörk þar sem danskir fjölmiðlar hafa tekið Hvítu bókinni hans opnum örmum. Danskir fjölmiðlar fara lofsam- legum orðum um Hvítu bók Ein- ars Más Guðmundssonar sem kom út þar í landi fyrir skömmu. Bókin fjallar um íslenska efnahagshrunið. Dagblaðið Kristeligt Dagblad birt- ir flennistórt viðtal við íslenska rithöfundinn undir fyrirsögninni: „Einar er ikke bare skuffet – Einar er vred“, sem myndi útleggjast á hið ylhýra: „Einar er ekki bara vonsvikinn – Einar er reiður“. Í við- talinu fer rithöfundurinn um víðan völl og segir meðal annars að fjöldi fólks hafi komið að máli við hann og sagt að hann gæti komið á prent hugsunum þeirra. „Ég varð þess vegna einhvers konar búktalari,“ segir Einar. Reiði Einars er sögð skína í gegn á síðum bókarinnar en sjálfur vill rithöfundurinn ekkert kannast við þá tilfinningu í samtali við Frétta- blaðið. „Ef þeim finnst ég vera reið- ur þá er það bara þeirra mat á því. Sjálfur upplifi ég þetta ekki svo- leiðis, mér finnst þetta sett fram af mikilli yfirvegun þótt auðvitað séu miklar tilfinningar í spilunum.“ Einar fór í kjölfar útgáfu bókarinn- ar í nokkur viðtöl, var meðal ann- ars myndaður fyrir framan versl- unarmiðstöðina Magasin Du Nord af danskri sjónvarpsstöð af aug- ljósum ástæðum. Hann hélt síðan í mikla upplestrarferð um Vestur- Jótland, heimsótti smábæi og þorp sem fæstir hafa heyrt um og upp- lifði þar á köflum minnkað ástand af íslenskum veruleika. „Mér var sagt að í sumum smábæjum þorðu bankamenn ekki út úr húsi. Þeir höfðu kannski ráðlagt fólki að leggja ævisparnað sinn í hluta- bréfakaup sem síðar meir hrundu í verði.“ Gagnrýnendur danskra fjölmiðla eru allir á einu máli um gæði bók- arinnar. Gagnrýnandi Politiken, Poul Pedersen, þykir Hvíta bókin alveg einstaklega vel skrifuð bók og gefur henni fimm stjörnur. Hann lætur þar ekki staðar numið heldur spyr sig hvar danskir rithöf- undar séu. Því svo sannarlega ríki líka efnahagsleg krísa heima fyrir. „Eru danskir rithöfundar virki- lega svona uppteknir af eigin list að þeir hafa gleymt samfélaginu sem þeir lifa í?“ spyr Pedersen og bætir við: „Hvar er eiginlega reiðin í Danmörku?“ freyrgigja@frettabladid.is Reiður Einar Már í Danmörku HRÓSAÐ Einari Má er hrósað í hástert fyrir Hvítu bókina í dönskum fjölmiðlum. Politiken gefur henni fimm stjörnur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR LADDI STEFÁN KARL HERDÍS ÞORVALDS STEFÁN HALLUR UNNUR BIRNAOG 26.000 MANNS Besta myndin síðan Sódóma Reykjavík ...Sannkölluð “feelgood” -mynd, ekki veitir af Þetta er alvöru tær snilld VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG 3/4 - Atli Steinn, Bylgjan 1/2 - S.V. MBL- A.K. - Útvarp Saga KEFLAVÍKSELFOSS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.