Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 43
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 9neyðarkall ●
Æfingar og þjálfun eru stór hluti
af starfi björgunarsveitarmanna.
Hluti námsins fer fram í skóla-
stofum en annað þarf að kenna á
vettvangi. Á Gufuskálum á Snæ-
fellsnesi eru þjálfunarbúðir fyrir
leit og björgun. Þar var áður rekin
lóranstöð en miklar breytingar og
lagfæringar hafa átt sér stað svo
nú er þar mjög góð, alhliða þjálfun-
araðstaða, kennslustofur og gisti-
rými. Umhverfi Gufuskála er einn-
ig hentugt til þjálfunar og frábær
aðstaða til æfinga í rústabjörgun
sem vakið hefur athygli víða. En
það eru ekki bara björgunarsveit-
ir sem nýta sér aðstöðuna, lögregla
og slökkvilið eiga þar innkomu,
kvenna- og unglingadeildir halda
þar fundi og námskeið og Útivist-
arskóli unglinga er rekinn þar á
sumrin. Jafnframt gefst félags-
mönnum kostur á að leigja orlofs-
íbúðir þegar laust er.
Þjálfunarbúðir í
heimsklassa
Frá úttektaræfingu Íslensku alþjóða-
björgunarsveitarinnar á Gufuskálum í
september síðastliðnum.
MYND/INGÓLFUR HARALDSSON
Slysavarnafélagið Landsbjörg á og rekur
fjórtán björgunarskip og 125 hraðskreiða
björgunarbáta sem eru staðsettir hringinn í
kringum landið. Sinna þau um 100 aðstoðar-
beiðnum frá sæfarendum á ári hverju. Hér eru
nokkur dæmi um slík útköll:
Þær upplýsingar berast að átta manns af
danska varðskipinu Triton sé saknað eftir að
bátum þeirra hvolfdi fyrir utan brimgarðinn
þegar þeir reyndu að aðstoða við strand
Wilson Muga fyrir utan Sandgerði.
Björgunarskipið Gunnbjörg frá Raufarhöfn
var kallað út á rauðum forgangi þegar
Hildur ÞH 38 sökk skyndilega tæpum níu
sjómílum austur af Raufarhöfn. Um klukku-
stund síðar var áhöfninni bjargað um borð
í Gunnbjörgu.
Boð bárust um að Gísli KÓ 10 væri vélar-
vana um 30 sjómílur vestur af Reykjanesi.
Björgunarskip fór frá Grindavík og dró bát-
inn til hafnar. Veður var afar vont á svæðinu.
Björgunarbáturinn á Akranesi kallaður út
vegna vélarvana báts utan við Akranes. Átta
mínútum eftir útkall voru félagar björgun-
arfélagsins komnir og aðstoðuðu bátsverja.
Tilkynnt um veikan sjómann um borð í
skuttogara sem var við veiðar út af Reykja-
nesgrunni. Björgunarskip Grindavíkur sigldi
til móts við togarann og flutti hinn slasaða
til lands.
Björgunarskipið Gunnar Friðriksson frá
Ísafirði kallað út þegar bátur með tveimur
mönnum strandar í fjörunni. Þeir voru sóttir
með slöngubát, reyndust ómeiddir en
nokkuð blautir. Taug var komið í bátinn og
hann dreginn til Bolungarvíkur.
Með öflugu neti björgunarbáta hringinn í
kringum landið er hægt að bregðast hratt
við og koma þeim til hjálpar sem lent hafa
í erfiðum aðstæðum sem geta skapast úti á
sjó. Markmið Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar er að vera alltaf til taks með góðan
búnað og vel þjálfaða einstaklinga til að
geta sinnt þeim erfiðu aðstæðum sem geta
komið upp á sjó og við strendur landsins.
Hraðskreiðir björgunarbátar eru oft notaðir til
að komast fljótt og örugglega að sæfarendum í
vanda. MYND/BRYNJAR ÁSMUNDSSON
SJÓBJÖRGUN
● FJÁRÖFLUN BJÖRG-
UNARSVEITA Þrátt fyrir að
meðlimir björgunarsveita séu
allir sem einn sjálfboðaliðar er
rekstur öflugra björgunarsveita
afar kostnaðarsamur. Þjálfa þarf
björgunarsveitarfólk, tæki og tól
verða að vera tiltæk og í góðu
lagi, húsnæði þarf undir búnað
og olíu á tækin.
Félagseiningar Slysavarna-
félagsins Landsbjargar eru
fjárhagslega sjálfstæðar einingar
og afla sér fjár með ýmsu móti
en hæst ber þó sala flugelda
fyrir áramót og sala Neyðarkalls
í nóvember. Þar ná sveitirnar
sér í þorra þess rekstrarfjár sem
þær hafa úr að spila allt árið um
kring.